Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel M&A Activity 2024

Sep 12, 2024

2191_rns_2024-09-12_d47d076e-89b2-49ae-9cdc-601d3d9d426e.pdf

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Fréttatilkynning

12 September 2024 21:35:00 GMT

marel

Marel: JBT kynnir fyrirhugað framtíðarskipulag JBT Marel

John Bean Technologies Corporation („JBT“) hefur, eins og áður hefur verið tilkynnt um, lagt fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt útgefið og útistandandi hlutafé í Marel hf. („Marel“). Yfirtökutilboðið gildir til, eftir því hvort gerist fyrr, (i) þess dags þegar þrjár vikur eru frá því að skilyrði valfrjálsa tilboðsins er snúa að samþykki eftirlitsyfirvalda hafa verið uppfyllt eða fallið hefur verið frá því, eða (ii) kl. 17:00 að islenskum tima hinn 11. nóvember 2024, nema að tilboðstimabilið verði framlengt.

JBT og Marel hafa að undanförnu unnið saman að undirbúningi fyrirhugaðrar sameiningar félaganna og í dag birti JBT tillógu að skipulagi JBT Marel, sem er aðgengileg hér.

Skipulagsbreytingarnar sem lagðar eru til eru háðar því að af sameiningu félaganna verði, og myndu taka gildi eftir uppgjör viðskiptanna.

Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um að hefðbundin skilyrði hafi verið uppfyllt, þar með talið samþykki frá viðeigandi eftirlitsaðilum og samþykki hluthafa Marel. Gert er ráð fyrir að viðskiptin verði frágengin fyrir árslok 2024.

Spurningar hluthafa um tilboðsferlið

Þeir hluthafar sem eiga hlutabréf í félaginu skráð hjá Nasdaq Iceland hf. geta haft samband við Arion banka hf. með spurningar í tengslum við samþykktarferli og/eða uppgjör tilboðsins á netfangið [email protected].

Þeir hluthafar sem eiga hlutabréf í félaginu skráð á Euronext Amsterdam skulu hafa samband við sinn vörsluaðila til þess að nálgast upplýsingar um samþykktarferli og/eða uppgjör tilboðsins. Vörsluaðilar og hluthafar geta haft samband við ABN AMRO Bank N.V. með spurningar á netfangið [email protected].

Marel hefur ráðið J.P. Morgan sem fjármálaráðgjafa og jafnframt fengið Rabobank til að gefa stjórn félagsins sjálfstætt ált varðandi sanngirni á greiðslu til hluthafa í fyrirhuguðu yfirtökutilboði. Lagalegir ráðgjafar eru Baker McKenzie (Bandarikin), BBA/Fjeldco (Ísland), og Osborne Clarke (Holland).

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í sima 563 8001.

Marel

Austurhraun 9

IS-210 Gardabaer


Fréttatilkynning

12 September 2024 21:35:00 GMT

marel

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er i fararbroddi á heimsvisu i þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu. Marel var stofnað árið 1983 og hjá félaginu starfa um 7.300 starfsmenn i yfir 30 löndum (þar af um 800 starfsmenn á Íslandi) og þjónusta viðskiptavini i yfir 140 löndum. Lykilmarkaðir félagsins eru í vinnslu alifugla, kjóts, fisks, gæludýrafóðurs, plöntupróteina og fóðurs fyrir fiskeldi. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands og Euronext Amsterdam og skilaði 1,7 milljarði evra í tekjur árið 2023 (257 milljarðar króna), en 46% af heildartekjum koma frá þjónustu og varahlutum. Árlega fjárfestir Marel 5-6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun, eða um 15 milljörðum króna árið 2023, með áherslu á sjálfvirkni, róbóttatækni og stafraenar lausnir sem tryggja örugg matvæli sem unnin eru á hagkvæman og sjálfbaran hátt. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.

Viðhengi

Marel: JBT kynnir fyrirhugað framtiðarskipulag JBT Marel

Marel

Austurhraun 9

IS-210 Gardabaer