AI assistant
Marel — M&A Activity 2023
Nov 24, 2023
2191_rns_2023-11-24_177c660c-11fc-4b3a-bf42-fc161ceac007.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Marel: Upplýsingar til viðbótar við tilkynningu 24. nóvember 2023 kl. 03:00 GMT
Marel: Upplýsingar til viðbótar við tilkynningu 24. nóvember 2023 kl. 03:00 GMT
Með tilvísun í tilkynningu Marel sem birt var fyrr í dag um óskuldbindandi viljayfirlýsingu, varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í félaginu vill Marel koma eftirfarandi viðbótarupplýsingum á framfæri.
John Bean Technologies Corporation (JBT) lagði fram óskuldbindandi viljayfirlýsingu þar sem eftirfrandi skilmálar koma fram:
- Fyrirvarar: Óskuldbindandi viljayfirlýsingin tekur fram að valfrjálst yfirtökutilboð verði aðeins sent að undangenginni ásættanlegri niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og stjórnarsamþykki JBT. Þá kemur fram að mögulegt valfrjálst yfirtökutilboð JBT, þegar og ef það verður lagt fram, verði háð eftirfarandi fyrirvörum:
- Samþykki viðeigandi eftirlitsaðila
- Samþykki hluthafa JBT
- Að a.m.k. 90% hluthafa Marel samþykki tilboðið
- Tillaga að verðmati/greiðslufyrirkomulagi: Í óskuldbindandi viljayfirlýsingu JBT er fyrirhugað verð 3,15 evrur á hlut (482 krónur á hlut miðað við skiptigengi ISK/EUR 153,3), fyrir allt útistandandi hlutafé í Marel. Þá er tillaga JBT að verðmati byggð á þeirri forsendu að útistandandi hlutir séu 754 milljónir og staða áhvílandi lána nemi 827 milljónum evra.
- Endurgjald: Óskuldbindandi viljayfirlýsingin gerir ráð fyrir að 25% af endurgjaldinu verði greitt með reiðufé og 75% verði í formi hlutabréfa í JBT. Það kemur jafnframt fram að hluthafar Marel muni eiga u.þ.b. 36% af hlutum í JBT eftir möguleg viðskipti. Engar frekari upplýsingar koma fram eða liggja fyrir um gengi hluta í JBT eða hugsanlegt skiptigengi.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger 2022 myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa um 8.000 manns í yfir 30 löndum. Tekjur Marel námu um 1,7 milljarði evra árið 2022 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.
Viðhengi: