AI assistant
Marel — M&A Activity 2016
Jan 29, 2016
2191_rns_2016-01-29_e62bf91d-235b-442d-a4bb-60d76f87a852.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Marel gengur frá kaupum á MPS meat processing systems
Marel gengur frá kaupum á MPS meat processing systems
Marel hefur í dag gengið formlega frá kaupum á MPS Meat Processing systems
(MPS).
Þann 21. nóvember sl. sendi Marel frá sér tilkynningu um að félagið hefði
samþykkt kaup á MPS fyrir 382 milljónir evra. Kaupin voru gerð með fyrirvara um
samþykki samkeppnisyfirvalda sem hefur nú fengist án athugasemda. Þar af
leiðandi var gengið frá kaupunum í dag, 29. janúar 2016.
Hagstæð langtímafjármögnun tryggð
Eins og tilkynnt var þann 21. nóvember 2015, gekk Marel frá hagstæðri
langtímafjármögnun til 5 ára fyrir félagið í heild, samhliða kaupunum á MPS.
Heildarlánsfjárhæðin nemur um 670 milljónum evra og taka skilmálar og vaxtakjör
lánanna hliðsjón af núverandi markaðsaðstæðum. Lánin eru að öllu leyti
hefðbundin (e. senior). Fjármögnunin hefur nú leyst af hólmi fyrri fjármögnun,
sem var blanda af hefðbundnum (e. senior) og greiðsluvíkjandi (e. junior)
lánum, og er leidd af ABN Amro, ING og Rabobank (e. Bookrunning Mandated Lead
Arrangers). Fjármögnunin samanstendur af 343 milljóna evru láni, 105 milljóna
Bandaríkjadala láni og 225 milljóna evra ádráttarláni (e. revolver). Gjalddagi
lánanna er í nóvember 2020. Vaxtaálagið er EURIBOR/LIBOR + 275 bps sem mun
breytast í takt við skuldsetningarhlutfall félagsins.
Fjármögnunin eykur fjárhagslegan sveigjanleika félagsins og mun styðja við vöxt
þess og framgang. Fjárhagsleg staða Marel verður sterk eftir sem áður og áætlað
skuldahlutfall er innan þeirra marka sem langtímastefna félagsins kveður á um.
Hluthafar MPS, þeirra á meðal stjórnendur MPS, munu í tengslum við kaupin nota
hluta kaupverðsins til fjárfestingar í Marel eða sem nemur um 16 milljónum
evra. Samkvæmt samkomulagi kaupa þeir 10,8 milljón hluti í Marel á genginu 213
kr. á hlut og skuldbinda þeir sig til að eiga hlutina í 18 mánuði frá kaupunum
hið minnsta.
Marel býður nú upp á heildarlausnir í kjöti
Marel og MPS munu í sameiningu vera í fararbroddi í þróun og sölu á
heildarlausnum til kjötframleiðenda. Félögin eiga vel saman og skörun í
vörulínum félaganna er afar takmörkuð. Þá fellur alþjóðleg starfsemi beggja
félaganna vel saman sem skapar grundvöll fyrir áframhaldandi vöxt og arðsemi.
MPS er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu og þróun búnaðar til frumvinnslu á
kjöti. Undir forystu styrkra stjórnenda hefur félagið vaxið og hagnast vel á
síðustu misserum. Samkvæmt óendurskoðuðum reikningum MPS voru tekjur og EBITDA
félagsins fyrir árið 2015 ívið hærri en þær áætluðu tölur sem birtar voru í
tilkynningu Marel þann 21. nóvember sl. MPS hefur yfir að ráða öflugu
alþjóðlegu neti sölu- og þjónustueininga sem sinna fjölbreyttum viðskiptahópi
um allan heim.
Með kaupunum styrkir Marel stöðu sína sem leiðandi framleiðandi á háþróuðum
búnaði og kerfum til vinnslu á kjúklingi, kjöti, og fiski. Kaupin eru að fullu
í samræmi við áður kynnta stefnu Marel um frekari vöxt og aukna arðsemi
félagsins til frambúðar. Kaupin styðja við framboð Marel á heildarlausnum í
kjötvinnslu og ýta einnig undir jafnari tekjuskiptingu, bæði á milli mismunandi
iðnaða og markaðssvæða. Í sameinuðu félagi er áætlað að kjötiðnaður muni skila
um það bil 30% af heildartekjum og EBITDA á ársgrundvelli.
Ráðgjafakostnaður Marel í tengslum við kaupin á MPS nemur 3,3 milljónum evra og
er að fullu gjaldfærður í fjórða ársfjórðungi 2015. Kaupin og ný
langtímafjármögnun félagsins verða kynnt frekar á kynningarfundi fimmtudaginn
4. febrúar nk. kl. 8:30, þar sem uppgjör félagsins fyrir árið 2015 verður
jafnframt kynnt.