AI assistant
Marel — M&A Activity 2015
Nov 21, 2015
2191_rns_2015-11-21_b19564df-a7f3-457d-9876-b18c3a4d893e.pdf
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
- november, 2015
marel Innovation Through Partnership
Marel undirritar kaup á MPS meat processing system
-Hagstæð langtímafjármögnun tryggð
Marel tilkynnir að félagið hefur sambykkt kaup á MPS meat processing systems. Heildar kaupverð (Enterprise Value) er 382 milljónir evra. Samhliða tilkynnir Marel um samkomulag um langtímafjármögnun á allri samstæðunni að fjárhæð 670 milljónum evra á hagstæðum kjörum.
MPS er alþjóðlegur leiðtogi í framleiðslu á búnáði fyrir fyrsta stig kjøtvinnslu. Kaupin styðja því við framboð Marel á búnáði fyrir öll stig kjøtvinnslu sem leiðir til betri samkeppnisstöðu félagsins í kjøtiðnaði á heimsvisu. Engin skörun er í vörulínu félaganna tveggja og þá passar alþjóðleg starfsemi félaganna vel saman sem skapar grundvöll fyrir áframhaldandi vöxt og arðsemi.
Með kaupunum styrkir Marel stöðu sína sem leiðandi framleiðandi á háþróuðum búnáði og kerfum til vinnslu á kjúklingi, kjøti, og fiski. Kaupin eru að fullu í samræmi við áður tilkynnta stefnu Marel um frekari vöxt og aukna arðsemi félagsins til frambúðar. Kaupin styðja við framboð Marel á heildarlausnum í kjøtvinnslu og ýta einnig undir jafnari tekjuskiptingu, bæði á milli mismunandi iðnaða og markaðssvæða. Í sameinuðu félagi er áætlað að kjøtiðnaður muni skila um það bil 30% af heildartekjum og EBITDA á ársgrundvelli.
MPS meat processing system
MPS er leiðandi á heimsvisu í framleiðslu og þróun búnáðar til frumvinnslu í kjøti. Undir forystu styrkra stjórnenda hefur félagið vaxið og hagnast vel á síðustu misserum. Áætlaðar árstekjur félagsins fyrir 2015 nema 150 milljónum evra og EBITDA fyrir sama tímabil verður nálægt 40 milljónum evra. Fyrirtækið er með um 670 starfsmenn og eru höfuðstöðvar þess staðsettar í Hollandi. Framleiðsla fer að mestu fram í Hollandi og Kína en að auki hefur félagið yfir að ráða öflugu alþjóðlegu neti sölu- og þjónustueininga sem sinna fjölbreyttum viðskiptahópi um allan heim.
Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel:
„MPS passar vel við Marel og mun styrkja félagið. Við þekkjumst vel enda höfum við sett upp fjölmargar verksmiðjur fyrir viðskiptavini í kjøtiðnaðinum um heim allan. Í þeim verkefnum hefur MPS komið með framúrskarandi þekkingu og lausnir fyrir fyrsta stig kjøtvinnslunnar að borðinu á meðan við höfum komið með það sem þarf fyrir næstu skref í vinnsluferlinu og svo hugbúnaðinn sem bindur þetta allt saman. Saman erum við sterkari og í lykilstöðu við að veita kjøtframleiðendum heildarlausnir.
Yfirtakan mun styrkja stöðu Marel sem markaðsléiðtoga á ört vaxandi markaði og auka samkeppnishæfni og arðsemi til lengri tíma litið. Sameining MPS og Marel er að mörgu leyti svipuð samruna Marel og Stork Food Systems fyrir átta árum síðan. Sú sameining skilaði áframhaldandi innri vexti og frábærum heildarlausnum til viðskiptavina okkar sem leiddi til mikillar virðisaukningar fyrir viðskiptavini og hluthafa.“
Remko Rosman forstjóri MPS meat processing system:
„Við erum mjög spent að gerast hluti af Marel og yfir því að hafa fundið framtiðar samastað fyrir MPS og starfsmenn okkar. Vöruframboð og starfsemi félaganna samsvarar sér vel og sameiginlegur styrkur okkar mun bæta samkeppnisstöðu okkar. Marel og MPS hafa bæði gegnt mikilvægu hlutverki í þróun matvæla framleiðslu í heiminum og saman erum við í betri stöðu en áður til að fjárfesta í framtiðarvexti og nýsköpun sem mun auka virðissköpun viðskiptavina okkar.“
Marel hf • Austurhraun 9 • IS-210 Gardabaer • Iceland
[email protected] • marel.com • Tel. +354-563-8000 • Fax +354-563-8001
Fréttatilkynning
- november, 2015
marel Innovation Through Partnership
Nánar um yfirtökuna
Kaupin eru gerð með fyrirvara um sambykki samkeppnisyfirvalda. Búast má við að öll formleg skilyrði samningsins verði uppfyllt á fyrsta ársfjörðungi 2016. David Wilson, framkvæmdastjóri kjötönaðar hjá Marel og Remko Rosman, forstjóri MPS munu hafa mikilvægu hlutverki að gegna í framtíð Marel.
Hluthafar MPS, þeirra á meðal stjórnendur MPS, munu nota hluta kaupverðsins í að fjárfesta í Marel. Samkvæmt samkomulagi munu þeir kaupa 10,8 milljón hluti í Marel á genginu 213 kr. á hlut og skuldbinda þeir sig til að eiga hlutina í 18 mánuði frá kaupunum hið minnsta.
Hagstæð langtímafjármögnun tryggð
Samhliða yfirtökunni hefur Marel tryggt hagstæða langtímafjármögnun til 5 ára fyrir félagrið í heild. Fjármögnunin er tryggð af Rabobank og nemur nærri 670 milljónum evra og eru skilmálar og vaxtakjör í samræmi við núverandi markaðsaðstæður. Fjármögnunin gefur Marel aukin fjárhagslegan sveigjanleika og styður við vöxt og framgang félagsins.
Fjárhagsleg staða Marel verður sterk eftir sem áður og skuldahlutfallið verður innan þeirra marka sem langtímastefna félagsins kveður á um.
Kynningafundur:
Marel boðar til kynningarfundar mánudaginn 23. nóvember kl. 16:00. Nánari upplýsingar um fundinn verða sendar út síðar.
Frekari upplýsingar veitir:
Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta. Símar: 563-8626 og 853-8626.
Um Marel
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvisu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fisk, kjöt og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 lóndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.
Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:
Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.
Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.
Marel hf • Austurhraun 9 • IS-210 Gardabaer • Iceland
[email protected] • marel.com • Tel. +354-563-8000 • Fax +354-563-8001