Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Investor Presentation 2023

Feb 9, 2023

2191_rns_2023-02-09_d01d0391-c477-4188-9d29-0a4c80e7af2d.html

Investor Presentation

Open in viewer

Opens in your device viewer

Marel: 2022 Fjárfestakynning

Marel: 2022 Fjárfestakynning

Marel hf. birti ársuppgjör 2022 eftir lokun markaða þann 8. febrúar 2023.

Meðfylgjandi má finna fjárfestakynninguna sem farið verður yfir á afkomufundi með markaðsaðilum í dag, fimmtudaginn 9. febrúar 2023 kl. 8:30. Þar munu stjórnendur kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild sinni.

Skráning á vefvarp fer fram hér. Fundinum verður streymt beint á Zoom og upptaka af fundinum verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger 2022 myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa yfir 8.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Tekjur Marel námu um 1,7 milljarði evra árið 2022 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.

Viðhengi: