Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Investor Presentation 2021

Nov 11, 2021

2191_rns_2021-11-11_afded123-e5e9-4d4c-a610-6c147d99881b.html

Investor Presentation

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Marel: Tækifæri til vaxtar – Fjárfestadagar 2021

Marel: Tækifæri til vaxtar – Fjárfestadagar 2021

Meðfylgjandi er kynningin frá fjárfestafundi Marel um tækifæri til vaxtar.

Í ár heldur Marel rafræna fjárfestadaga þar sem stjórnendur Marel ásamt sérfræðingum og viðskiptavinum veita einstaka 360° innsýn í starfsemi Marel.

Í dag, 11. nóvember 2021, fer fram rafrænn fjárfestadagur Marel með fjárfestum og markaðsaðilum. Yfirskrift viðburðar dagsins er “Tækifæri til vaxtar” en þar munu lykilstjórnendur Marel, þar á meðal Árni Oddur Þórðarson forstjóri, Linda Jónsdóttir fjármálastjóri og Árni Sigurðsson framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga, fara yfir metnaðarfulla stefnu félagsins um vöxt til næstu ára.

Skráning fer fram hér og er opin öllum. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á marel.com/cmd360.

Þessi fjárfestadagur er partur af 360° viðburðaseríu Marel og er annar af fimm rafrænum viðburðum sem fara fram í nóvember og desember, hver með sitt þema.

Fjárfestadagar Marel 360° - viðburðasería

  • 7. október Rafræn heimsókn í höfuðstöðvar Marel og hvítfiskvinnslu Brim
  • 11. nóvember Tækifæri til vaxtar
  • 18. nóvember – Sala og þjónusta á heimsvísu
  • 2. desember – Stafrænar lausnir
  • 9. desember – Sjálfbærni

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.

Samskiptasvið

Fjölmiðlafyrirspurnir skulu sendar á Samskiptasvið Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8200.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1.238 milljónum evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.

Viðhengi: