Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Investor Presentation 2020

Apr 21, 2020

2191_rns_2020-04-21_7d2feff0-53be-4f94-ae55-e579e2d27953.html

Investor Presentation

Open in viewer

Opens in your device viewer

Marel: 1F 2020 Fjárfestakynning

Marel: 1F 2020 Fjárfestakynning

Marel hf. birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2020 eftir lokun markaðar þann 20. apríl 2020.

Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum

Í dag, þriðjudag 21. apríl 2020 kl. 8:30 verður haldinn rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fyrsta ársfjórðungi.

Meðfylgjandi má finna 1F 2020 fjárfestakynningu sem farið verður yfir á afkomufundinum.

Fundinum er vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/IR eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7520
  • NL: +31 20 721 9496
  • UK: +44 33 3300 9268
  • US: +1 833 823 0586

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa um 6.300 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti um 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á hlutabréfum í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.

Viðhengi: