Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Earnings Release 2016

Feb 8, 2017

2191_rns_2017-02-08_0ea5dd52-a319-4413-8f63-95d5e4ea48d4.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

marel

Marel
Austurhraun 9
210 Gardabaer
Iceland

t +354-563-8000
f +354-563-8001
w www.marel.com

Marel kynnir afkomu fjórða ársfjórðungs 2016

(Allar upphæðir í evrum)

Fjórði ársfjórðungur 2016 – Metfjórðungur í nýjum verkefnum um heim allan

  • Tekjur á fjórða ársfjórðungi 2016 námu 250 milljónum evra [4F 2015: 201,9m]. Pro forma tekjur á fjórða ársfjórðungi 2015 námu 248,8 milljónum evra.
  • EBITDA á fjórða ársfjórðungi 2016 var 47,3 milljónir evra sem er 18,9% af tekjum [4F 2015: Leiðrétt EBITDA 30,0m, 14,9% af tekjum]. Pro forma leiðrétt EBITDA á fjórða ársfjórðungi 2015 nam 37,9 milljónum evra eða 15,2% af tekjum.
  • EBIT á fjórða ársfjórðungi 2016 var 35,1 milljónir evra, sem er 14,0% af tekjum [4F 2015: Leiðréttur rekstrarhagnaður EBIT 22,2m, 11,0% af tekjum]. Pro forma leiðrétt EBIT* á fjórða ársfjórðungi 2015 nam 34,9 milljónum evra eða 14,0% af tekjum.
  • Hagnaður fjórða ársfjórðungs 2016 nam 22,6 milljónum evra [4F 2015: 9,9m]. Hagnaður á hlut var 3,15 evru sent [4F 2015: 1,40 evru sent].
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 74,3 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi 2016 [4F 2015: 26,9m]. Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) í lok fjórða ársfjórðungs 2016 er x2,25.
  • Pantanabókin stóð í 349,5 milljónum evra við lok fjórða ársfjórðungs 2016 samanborið við 305,1 milljónir evra í lok þriðja ársfjórðungs 2016 [4F 2015: 180,1m]. Pro forma pantanabók við lok fjórða ársfjórðungs 2015 var 319,8 milljónir evra.

Árið 2016 – Góð rekstrarniðurstaða með 14,6% EBIT*

  • Pro forma tekjur ársins 2016 námu 983,0 milljónum evra [Pro forma tekjur 2015: 975,8m]. Tekjur ársins 2016 námu 969,7 milljónum evra en 818,6 milljónum evra árið 2015.
  • Pro forma EBITDA var 179,7 milljónir evra sem er 18,3% af tekjum [Pro forma 2015 leiðrétt EBITDA: 175,7m, eða 18,0% af tekjum]. EBITDA fyrir árið 2016 var 175,4 milljónir evra (18,1% af tekjum) borið saman við leiðrétt EBITDA 2015 sem nam 135,8 milljónum evra eða 16,6% af tekjum.
  • Pro forma EBIT 2016 var 143,5 milljónir evra sem er 14,6% af tekjum [Pro forma 2015 leiðréttur rekstrarhagnaður EBIT 133,7m eða 13,7% af tekjum]. Leiðrétt EBIT* fyrir 2016 nam 139,4 milljónum evra (14,4% af tekjum) en nam 99,9 milljónum evra árið 2015 (12,2% af tekjum).
  • Hagnaður ársins 2016 nam 75,8 milljónum evra [2015: 56,7m]. Hagnaður á hlut nam 10,59 evru sentum en 7,93 evru sentum árið 2015.
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 179,0 milljónum evra [2015: 119,7m]. Nettó vaxtaberandi skuldir í lok ársins 2016 námu 403,6 milljónum evra, en 142,8 milljónum evra í lok ársins 2015.

Móttekar pantanir á fjórða ársfjórðungi 2016 nema 295 milljónum sem er metsala og dreifist sú sala vel á milli kjúklinga-, kjöt og fiskónaðar. Aukin fjöldi stærri verkefna á fjórða ársfjórðungi er í takt við það sem kynnt var með rekstrarniðurstöðu þriðja ársfjórðungs 2016 þegar sagt var að horfurnar fyrir stærri verkefni hefðu tekið við sér að nýju eftir laka byrjun á árinu. Fyrir árið í heild voru móttekar pantanir fyrir staðlaða vöru og varahluti sterkar í öllum iðnuðum. Pantanabókin í árslok 2016 stendur í 350 milljónum evra samanborið við 320 milljónir í árslok 2015.

Pro forma tekjur ársins 2016 námu 983,0 milljónum evra samanborið við 975,8 milljónir árið 2015. Pro forma EBIT* jókst á milli ára og var 143,5 milljónir evra (14,6%) samanborið við 133,7 milljónir evra 2015 (13,7%). Sjóðstreymi frá rekstri var sterkt sem leiðir til þess að skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) er x2,25 við árslok 2016 samanborið við x2,9 eftir yfirtökuna á MPS í upphafi ársins.

Á aðalfundi félagsins fyrir árið 2017, sem haldinn verður 2. mars næstkomandi, mun stjórn Marel leggja til að hluthafar fái greiddan að fyrir rekstrarárið 2016 sem nemur 2,14 evru sentum á hlut. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um 15,3 milljónum evra sem samsvarar um 20% af nettó hagnaði ársins. Arðgreiðslutillaga þessi er í samræmi við markmið um fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnu félagsins. Stjórn Marel hefur jafnframt veitt stjórnendum félagsins heimild til að kaupa eigin bréf fyrir allt að 15 milljónir evra að kaupvirði. Hlutirnir eru ætlaðir sem endurgjald í mögulegum fyrirtækjakaupum.

ADVANCING FOOD PROCESSING

*Rekstrarniðurstaða aðlögur fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirtöku á MPS.

**Rekstrarniðurstaða leiðrétt fyrir hagræðingarkostnaði í tengslum við áætun um einfaldara og skilvirkara Marel og kostnaði tengdum yfirtökuna á MPS

Pro forma rekstrarniðurstaða er samanlagður rekstur Marel og MPS. Pro forma tölur auðvelda samanburð á undirliggjandi rekstri á milli tímabila.


marel

Marel
Austurhraun 9
210 Gardabaer
Iceland

t +354-563-8000
f +354-563-8001
w www.marel.com

Marel gerir ráð fyrir að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum. Með sterkri markaðsstöðu og nýsköpun ætlar Marel með innri vexti að vaxa hraðar en markaðurinn. Gera má ráð fyrir því að afkoman verði breytileg milli ársfjörðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pontunum og tímasetningu stærri verkefna. Að auki hyggst félagið halda áfram að vaxa með yfirtökum í samræmi við stefnu félagsins.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

„Árið 2016 var fráðært ár fyrir Marel. Sölumet var slegið í fjörða ársfjörðungi með mótteknum pontunum upp á 295 milljónir evra og dreifist sú sala vel á milli kjúklinga-, kjöt og fiskíðnaðar. Viðskiptavinir okkar eru að setja upp tímamótaverksmiðjur í Asíu, Suður-Ameríku, Norður-Ameríku og Evrópu sem mun gera þeim kleift að bjóða upp á hágæða matvæli á hagstæðu verði. Önnur spennandi verkefni voru einnig tryggð í Afríku og Mið-Austurlöndum.

Við gengum frá kaupunum á MPS í byrjun ársins 2016 og gátum þar með boðið viðskiptavinum okkar í kjötiðnaði upp á heildarlausnir. Sameining félaganna gengur vel og hefur þegar skapað aukin verðmæti fyrir viðskiptavini okkar og hluthafa. Vert er að minna á að við yfirtökum MPS í byrjun árs án þess að gefa út nýtt hlutafé og hagnaður á hlut jókst um 34% á milli ára. Fjárhagsstaða félagsins er traust og sjóðsstreymi er sterkt sem leiðir til þess að skuldahlutfall er x2,25 EBITDA við árslok 2016.

Til að tryggja áframhaldandi vöxt og virðissköpun höfum við fjárfest vel í innviðum okkar og kynnt til sögunnar nýstárlegar og snjallar lausnir sem munu auka skilvirkni og sjálfbærni í matvælaíramleiðslu. Að lokum vil ég þakka viðskiptavinum okkar og starfsmönnum fyrir viðburðaríkt og ánægjulegt ár. Saman höldum við áfram að umbylta matvælaíramleiðslu á heimsvísu.“

Hagræðingaraðgerðir og breytingar í framkvæmdastjórn Marel

Frá og með 1. apríl 2017 mun David Wilson taka við af Remko Rosman sem framkvæmdastjóri Marel Meat. Jesper Hjortshøj mun taka við af David Wilson sem framkvæmdastjóri fullvinnslu (e. further processing) frá og með 8. febrúar 2017.

Stjórnendabreytingar í Marel Meat

Frá árinu 2005 hefur MPS meat processing systems verið undir stjórn Remko Rosman og á þeim tíma hefur félagið vaxið og styrkt samkeppnisstöðu sína. Nú hefur Remko Rosman ákveði að takast á við nýjar áskoranir í matvælageiranum, en þó ekki í samkeppni við Marel.

Með yfirtöku Marel á MPS í janúar 2016 varð Marel leiðandi á heimsvísu í þróun og sölu á heildarlausnum fyrir kjötiðnað. Sameining félaganna gengur vel og árið 2016 var megináhersla lögð á að sameina söluteymi og reikningsskil. Sameining mun á næstu árum eiga sér stað á öðrum sviðum svo sem framleiðslu, innkaupastýringu og þjónustu.

David Wilson var framkvæmdastjóri kjötiðnaðar Marel 2012 til 2016 og gegndi hann mikilvægu hlutverki við yfirtökuna á MPS. David Wilson hefur starfað fyrir Marel frá árinu 1998 og hefur verið í framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2013.

Marel í stakk búið fyrir frekari vöxt í fullvinnslu eftir hagræðingaraðgerðir

Marel er leiðandi á heimsvísu í þróun, sölu og þjónustu á heildarlausnum fyrir kjúklinga-, kjöt- og fiskíðnaðinn frá frumvinnslu til áframvinnslu og fullvinnslu. Á árinu 2016 hefur David Wilson leitt árangursríkar hagræðingaraðgerðir í starfsemi Marel í fullvinnslu (e. further processing). Á fjörða ársfjörðungi 2016 endurskipulagði Marel vöruframboð sitt, hagræddi í skipuriti og stjórn í starfsemi félagsins í fullvinnslu. Teymi Marel í fullvinnslu leggur nú áherslu á nýsköpun, þjónustu og vörustjórn á meðan salan fer að mestu leyti fram í gegnum kjúklinga-, kjöt- og fiskíðnaði Marel.

Jesper Hjortshøj mun frá og með 8. febrúar leiða starfsemi Marel í fullvinnslu sem framkvæmdastjóri og mun hann taka sæti í framkvæmdastjórn Marel. Undir leiðsögn Jesper Hjortshøj verður nýsköpun og vörustjórn efld til að styrkja starfsemina og tryggja framtíðarvöxt og verðmætasköpun á markaðinum fyrir pylsur og tilbúna rétti. Jesper Hjortshøj hefur verið hjá Marel síðan 2006 og gegnt ýmsum stjórnendastöðum fyrir félagið: framkvæmdastjóri stefnumótunar í nýsköpun, framkvæmdastjóri vöruseturs og markaðsstjóri.

ADVANCING FOOD PROCESSING

*Rekstramiðurstaða aðlögur fyrir afskrift á öefnislegum eignum sem tengjast yfirtöku á MPS.

**Rekstramiðurstaða leiðrétt fyrir hagræðingarkostnaði í tengslum við áætun um einfaldara og skilvirkara Marel og kostnaði tengdum yfirtökuna á MPS

Pro forma rekstramiðurstaða er samanlagður rekstur Marel og MPS. Pro forma tölur auðvelda samanburð á undirliggjandi rekstri á milli tímabila.


marel

Marel
Austurhraun 9
210 Gardabaer
Iceland

t +354-563-8000
f +354-563-8001
w www.marel.com

Tillaga um arðgreiðslu

Á aðalfundi ársins 2017, sem haldinn verður 2. mars næstkomandi, mun stjórn Marel leggja til að hluthafar fái greidd 2,14 evru sent í arð á hlut fyrir rekstrarárið 2016. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla, miðað við núverandi fjölda útistandandi hluta, nemur um 15,3 milljónum evra sem samsvarar um 20% af nettó hagnaði ársins. Arðgreiðslutillaga þessi er í samræmi við markmið um fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnu félagsins.

Verði tillagan samþykkt af hluthöfum félagsins, munu hlutabréf sem skipta um hendur frá og með 3. mars 2017 (e. ex-date = arðleysisdagur) verða án arðsréttinda og réttur hluthafa til arðgreiðslu verður miðaður við hlutaskrá félagsins í lok viðskipta hinn 6. mars 2017 sem yrði arðsréttindadagur (e. record date). Stjórn leggur til að arðurinn verði greiddur út 23. mars 2017.

Horfur

Marel gerir ráð fyrir að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum. Með sterkri markaðsstöðu og nýsköpun ætlar Marel með innri vexti að vaxa hraðar en markaðurinn. Gera má ráð fyrir því að afkoman verði breytileg milli ársfjörðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna. Að auki hyggst félagði halda áfram að vaxa með yfirtökum í samræmi við stefnu félagsins.

Kauphallardagur Marel í Danmörku

Marel heldur kynningarfund með fjárfestum og markaðsaðilum í sýningarhúsi sínu Progress Point í Kaupmannahöfn þann 2. nóvember 2017. Frekari upplýsingar og skráning verða kynnt á heimasiðu félagsins www.marel.com á komandi vikum.

Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning
í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasiðu Marel og má þar m.a. finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins;
http://marel.com/corporate/investor-relations/publications

Kynningarfundur 9. febrúar 2017

Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimtudaginn 9. febrúar kl. 8:30 í húsnæði þess að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.

Birtingardagar fyrir reikningsárið 2017 og 2018

    1. ársfjörðungur 2017: 3. maí 2017
    1. ársfjörðungur 2017: 26. júlí 2017
    1. ársfjörðungur 2017: 25. október 2017
  • Kauphallardagur Marel: 2. nóvember 2017
    1. ársfjörðungur 2018: 7. febrúar 2018

Birting fjárhagspupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.

Frekari upplýsingar veitir: Auðbjörð Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta. Símar: 563-8626 og 853-8626

Um Marel

Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á hápróðum búnáði og kerfum til vinnslu á fisk, kjöti og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 lóndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:

Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.

Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.

ADVANCING FOOD PROCESSING

Rekstrarniðurstaða aðlögur fyrir afskrift á öefnislegum eignum sem tengjast yfirtöku á MPS.
*Rekstrarniðurstaða leiðrétt fyrir hagræðingarkostnaði í tengslum við áætlun um einfaldara og skilvirkara Marel og kostnaði tengdum yfirtökuna á MPS

Pro forma rekstrarniðurstaða er samanlagður rekstur Marel og MPS. Pro forma tölur auðvelda samanburð á un-dirliggjandi rekstri á milli tímabila.