Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Earnings Release 2017

May 3, 2017

2191_rns_2017-05-03_cad07eec-f2c5-4276-9a04-c81144788097.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

marel

Marel
Austurhraun 9
210 Gardabaer
Iceland

t +354-563-8000
f +354-563-8001
w www.marel.com

Marel kynnir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2017

(Allar upphæðir í evrum)

Fyrsti ársfjórðungur 2016 – Sterk pantanastaða og traustur rekstur

  • Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2017 námu 252,5 milljónum evra [1F 2016: 220,6m]. Pro forma tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2016 námu 233,9 milljónum evra.
  • EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2017 var 46,0 milljónir evra sem er 18,2% af tekjum [1F 2016: EBITDA 38,2m, 17,3% af tekjum]. Pro forma EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2016 nam 42,5 milljónum evra eða 18,2% af tekjum.
  • EBIT á fyrsta ársfjórðungi 2017 var 37,7 milljónir evra sem er 14,9% af tekjum [1F 2016: EBIT 31,1m, 14,1% af tekjum]. Pro forma EBIT* á fyrsta ársfjórðungi 2016 nam 35,2 milljónum evra eða 15,1% af tekjum.
  • Hagnaður fyrsta ársfjórðungs 2017 nam 21,3 milljónum evra [1F 2016: 13,8m]. Hagnaður á hlut var 2,99 evru sent [1F 2016: 1,93 evru sent].
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 37,9 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2017 [1F 2016: 27,9m]. Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) í lok fyrsta ársfjórðungs 2017 var x2,19.
  • Pantanabókin stóð í 390,3 milljónum evra við lok fyrsta ársfjórðungs 2017 samanborið við 349,5 milljónir evra í lok fjóð ársfjórðungs 2016 [1F 2016: 339,9m].

Árið byrjar vel hjá Marel. Nýjar pantanir á fyrsta ársfjórðungi 2017 námu 293 milljónum evra sem dreifast vel á milli kjúklinga-, kjöt- og fiskónaða auk þess að vera vel dreifðar á milli võruflokka og heimsálfa. Pantanabókin stendur í 390 milljónum evra og hefur aldrei verið stærri. Til samanburðar var pantanabókin 340 milljónir evra á sama tíma fyrir ári síðan. Tekjur námu 252 milljónum evra og EBIT* var 14,9%.

Fjárhagsstaða félagsins er traust og sjóðsstreymi sterkt. Á fyrsta ársfjórðungi 2017 samþykkti aðalfundur Marel að greiða hluthöfum að og að kaupa eigin bréf fyrir samtals 22,1 milljónir evra. Skuldahlutfallið er x2,19 EBITDA við lok fyrsta ársfjórðungs 2017 sem er í samræmi við stefnu félagsins um fjárhagsskipan.

Marel hefur tryggt framlengingu á fjármögnun félagsins á hagstæðum kjörum sem endurspegla fjárhagslegan styrk Marel og markaðsaðstæður. Fjármögnunin nemur um 640 milljónum evra á vaxtalaginu EURI-BOR/LIBOR + 185 bps, sem mun breytast með skuldsetningarhlutfalli félagsins við lok hvers ársfjórðungs. Lokagjaldagi fjármögnunarinnar er í mái 2022. Pæssar breytingar auka sveigjanleika í rekstri og stýðja við metnaðarfulla áætlun félagsins um vöxt og virðisaukningu til lengri tíma litið sem kynnt var á aðalfundi félagsins í mars síðastliðnum.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

„Árið 2017 byrjar vel fyrir Marel og við sjáum vöxt í tekjum, rekstrarhagnaði og pantanastöðu. Innri vöxtur tekna frá fyrra ári nemur næri 8% og rekstrarafkoma er traust með um 15% EBIT“.

Marel er nú að uppskera afrakstur stöðugrar fjárfestingar okkar í nýsköpun og styrkingu okkar á võruframboði heildarlausna. Pantanastaða er sterk og jafnvægi er á milli kjúklinga- kjöt- og fiskónaða um heim allan.

Fjárhagsstaða félagsins og sjóðsstreymi eru sterk. Við tilkynnum nú um framlengingu fjármögnunar okkar á hagstæðum kjörum sem gefur okkur aukin sveigjanleika til að stýðja við metnaðarfulla áætlun okkar um vöxt og virðisaukningu.

Ég vil þakka viðskiptavinum okkar og starfsfólki fyrir frábært starf, í sameiningu erum við að umbreyta matvælaframleiðslu á heimsvísu.

ADVANCING FOOD PROCESSING

*Rekstrarniðurstaða aðlögur fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirtóku á MPS.

Pro forma rekstrarniðurstaða er samanlagður rekstur Marel og MPS. Pro forma tölur auðvelda samanburð á undirliggjandi rekstri á milli tímabila.


marel

Marel
Austurhraun 9
210 Gardabaer
Iceland
t +354-563-8000
f +354-563-8001
w www.marel.com

Horfur

Marel stefnir á 12% árlegan meðalvöxt tekna næstu 10 árin.

  • Marel gerir ráð fyrir að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum
  • Marel ætlar að vaxa hraðar en markaðurinn með sterkri markaðsstöðu og nýsköpun
  • Áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi getur stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári
  • Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjuvöxtur

Áætlaður vöxtur verður ekki línulegur og veltur á þeim tækifærum sem í boði eru hverju sinni og hagsveiflum. Gera má ráð fyrir því að afkoman verði breytileg milli ársfjörðunga vegna efnahagsþróunar, sveifla í þöntunum og tímasetningu stærri verkefna.

Kauphallardagur Marel í Danmörku

Marel heldur kynningarfund með fjárfestum og markaðsaðilum í sýningarhúsi sínu Progress Point í Kaupmannahöfn þann 2. nóvember 2017. Frekari upplýsingar og skráning verða kynnt á heimasíðu félagsins www.marel.com á komandi víkum.

Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning

í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasíðu Marel og má þar m.a. finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins; http://marel.com/corporate/investor-relations/publications

Kynningarfundur 4. maí 2017

Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 4. maí kl. 8:30 í húsnæði þess að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.

Fjárhagsdagatal Marel

    1. ársfjörðungur 2017: 26. júlí 2017
    1. ársfjörðungur 2017: 25. október 2017
  • Kauphallardagur Marel: 2. nóvember 2017
    1. ársfjörðungur 2017: 7. febrúar 2018

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.

Frekari upplýsingar veitir: Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta. Símar: 563-8626 og 853-8626

Um Marel

Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háppróðum búnáði og kerfum til vinnslu á fisk, kjötí og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 lönðum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:

Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft báu áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.

Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.

ADVANCING
FOOD PROCESSING

*Rekstrarniðurstaða aðlögð fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirtöku á MPS.

Pro forma rekstrarniðurstaða er samanlagður rekstur Marel og MPS. Pro forma tölur auðvelda samanburð á un-dirliggjandi rekstri á milli tímabila.