Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Earnings Release 2017

Oct 25, 2017

2191_rns_2017-10-25_79ebdfa5-6cfa-40ab-9161-1f6b4c6eee49.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

marel

Marel
Austurhraun 9
210 Gardabaer
Iceland

t +354-563-8000
f +354-563-8001
w www.marel.com

Marel kynnir afkomu þriðja ársfjórðungs 2017

(Allar upphæðir í evrum)

Þriðji ársfjórðungur 2017 – Sterk samkeppnisstaða og meðbyr á mörkuðum

  • Tekjur á þriðja ársfjórðungi 2017 námu 247,0 milljónum evra [3F 2016: 234,8m].
  • EBITDA á þriðja ársfjórðungi 2017 var 45,8 milljónir evra sem er 18,6% af tekjum [3F 2016: EBITDA 41,5m, 17,7% af tekjum].
  • EBIT á þriðja ársfjórðungi 2017 var 37,6 milljónir evra sem er 15,2% af tekjum [3F 2016: EBIT 33,4m, 14,2% af tekjum].
  • Hagnaður á þriðja ársfjórðungi 2017 nam 23,2 milljónum evra [3F 2016: 17,3m]. Hagnaður á hlut var 3,29 evru sent [3F 2016: 2,42 evru sent].
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 71,8 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi 2017 [3F 2016: 33,2m]. Skuldahlutfall var x2,0 (nettó skuldir/EBITDA) við lok þriðja ársfjórðungs 2017.
  • Pantanabókin stóð í 467,6 milljónum evra við lok þriðja ársfjórðungs 2017 samanborið við 418,9 milljónir evra við lok annars ársfjórðungs 2017 [3F 2016: 305,1m].

Metpantanir voru á þriðja ársfjórðungi 2017, eða sem námu 296 milljónum evra. Markaðsaðstæður eru áfram góðar og samkeppnisstaða Marel er sterk. Pantanabókin stendur vel og nam 468 milljónum evra við lok fjórðungsins. Tekjur fyrir tímabilið námu 247 milljónum evra og rekstrarhagnaður (EBIT*) var 15,2%.

Tekjur fyrstu níu mánaða ársins 2017 námu 743 milljónum evra, samanborið við 733 milljónir evra (pro forma) fyrir sama tímabil 2016. EBIT* fyrstu níu mánaða ársins 2017 nam 111 milljónum evra (15% af tekjum), samanborið við 108 milljónir evra á pro forma grunni fyrir sama tímabil 2016 (14,8% af tekjum).

Kaup Marel á brasiliška félaginu Sulmaq sem framleiðir búnað fyrir frumvinnslu kjóts, gengu formlega í gegn 31. ágúst 2017. Árlegar tekjur Sulmaq nema um það bil 25 milljónum evra. Til skemmri tíma litið munu kaupin ekki hafa efnisleg áhrif á rekstrarniðurstöðu Marel.

Sjóðstregmi frá rekstri var óvenjulega sterkt á þriðja ársfjórðungi. Skuldahlutfall félagsins heldur áfram að lækka þrátt fyrir kaupin á Sulmaq fyrir kaupverð nálægt 26 milljónum evra og nettó kaup á eigin bréfum fyrir 12 milljónir evra á tímabilinu. Við lok þriðja ársfjórðungs var skuldahlutfallið komið niður í x2,0 nettó skuldir/EBITDA, samanborið við x2,15 við lok annars ársfjórðungs 2017. Marel mun áfram fjárfesta til framtíðar til að vera betur í stakk búið til að styðja við frekari vöxt og virðisaukningu.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

„Samkeppnisstaða Marel er sterk og það er góður meðbyr á mörkuðum sem skilaði sér í aukinni sölu og námu pantanir á fjórðungsins 296 milljónum evra. Við erum ánægð með rekstrarniðurstöðu fjórðungsins, en tekjur félagsins námu 247 milljónum evra og EBIT var rúmlega 15%.

Þessi sterka niðurstaða fékkst, þrátt fyrir að rekstrarniðurstaðan í kjöti hafi gefið eftir á þriðja ársfjórðungi samanborið við fyrri fjórðunga. Firnasterk afkoma í kjúklingi á tímabilinu bætir það upp, sem er til vitnis um hvernig viðskiptamódel Marel virkar. Sem leiðandi félag á heimsvísu í þróun hátæknibúnaðar fyrir vinnslu á kjúklingi, kjöti og fiskí náum við að jafna sveiflur á milli rekstrareininga og skila góðri heildarniðurstöðu.

Góð afkoma og sterkt sjóðstregmi gerir okkur kleift að halda áfram að fjárfesta í nýsköpun og uppbyggingu innviða. Á þriðja ársfjórðungi gengu kaupin á Sulmaq formlega í gegn fyrir 26 milljónir evra og til viðbótar námu nettó kaup á eigin bréfum 12 milljónum evra á tímabilinu. Fjárhagsleg staða Marel er góð og nettó skuldir nema nú tvisvar sinnum EBITDA.

Við munum halda áfram að vinna með nýjum og núverandi viðskiptavinum okkar að því að umbreyta matvælaíramleiðslu á heimsvísu“.

ADVANCING FOOD PROCESSING

*Rekstrarniðurstaða aðlögud fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirtöku á MPS.

Pro forma rekstrarniðurstaða er samanlagður rekstur Marel og MPS. Pro forma tölur auðvelda samanburð á undirliggjandi rekstri á milli tímabila.


marel

Marel
Austurhraun 9
210 Gardabaer
Iceland
t +354-563-8000
f +354-563-8001
w www.marel.com

Horfur

Gert er ráð fyrir áframhaldandi góðum markaðsaðstæðum í kjúklingi og fiskki, en í kjöti má gera ráð fyrir lakari horfum til skemmri tíma litið. Langtímahorfur eru góðar þvert á alla iðnaði. Sterk staða pantanabókar gefur til kynna að tekjur verði hærri á næstu misserum.

Marel stefnir á 12% árlegan meðalvöxt tekna næstu 10 árin.

  • Marel gerir ráð fyrir að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum
  • Marel ætlar að vaxa hraðar en markaðurinn með sterkri markaðsstöðu og nýsköpun
  • Áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi getur stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári
  • Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjuvöxtur

Áætlaður vöxtur verður ekki línulegur og veltur á þeim tækifærum sem í boði eru hverju sinni og hagsveiflum. Gera má ráð fyrir því að afkoman verði breytileg milli ársfjörðunga vegna efnahagsþróunar, sveifla í póntunum og tímasetninga stærri verkefna.

Kauphallardagur Marel í Danmörku

Marel heldur kynningarfund með fjárfestum og markaðsaðilum í sýningarhúsi sínu Progress Point í Kaupmannahöfn þann 2. nóvember 2017.

Kynningarfundur 26. október 2017

Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 26. október kl. 8:30 í húsnæði þess að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.

Fjárhagsdagatal Marel

  • Kauphallardagur Marel 2. nóvember 2017
    1. ársfjörðungur 2017 7. febrúar 2018
    1. ársfjörðungur 2018 2. maí 2018
    1. ársfjörðungur 2018 25. júlí 2018
    1. ársfjörðungur 2018 31. október 2018
    1. ársfjörðungur 2018 6. febrúar 2019

Birting fjárhagsupplysinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.

Frekari upplysingar veitir: Tinna Molphy, Fjárfestatengill. Símar: 563-8603 og 853-8603

Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasíðu Marel og má þar m.a. finna lykiltölur og yfirlit yfir markaðí félagsins; http://marel.com/corporate/investor-relations/publications

Um Marel

Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háppróðum búnæði og kerfum til vinnslu á fiskki, kjöti og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 lóndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:

Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumherfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.

Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.

ADVANCING
FOOD PROCESSING
*Rekstrarniðurstaða aðlögur fyrir afskrift á öefnislegum eignum sem tengjast yfirtöku á MPS.
Pro forma rekstrarniðurstaða er samanlagður rekstur Marel og MPS. Pro forma tölur auðvelda samanburð á un-dirliggjandi rekstri á milli tímabila.


marel

Marel
Austurhraun 9
210 Gardabaer
Iceland
t +354-563-8000
f +354-563-8001
w www.marel.com

ADVANCING
FOOD PROCESSING

*Rekstrarniðurstaða aðlögurð fyrir afskrift á öefnislegum eignum sem tengjast yfirtöku á MPS.

Pro forma rekstrarniðurstaða er samanlagður rekstur Marel og MPS. Pro forma tölur auðvelda samanburð á un-dirliggjandi rekstri á milli tímabila.