AI assistant
Marel — Earnings Release 2016
Apr 25, 2016
2191_rns_2016-04-25_1043dd10-50eb-4fca-badc-4a8994d67cd2.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
marel
Marel
Austurhraun 9
210 Gardabaer
Iceland
t +354-563-8000 f +354-563-8001 w www.marel.com
Marel kynnir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2016
(Allar upphæðir í evrum)
Pro forma rekstrarhagnaður 15% af tekjum og sterk pantanabók
1F 2016 – Pro forma rekstrarniðurstaða
- Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2016 námu 233,9 milljónum evra [1F 2015: 244,1m þar af eru 6 milljónir vegna aflagðrar starfsemi].
- Leiðréttur rekstrarhagnaður (EBIT) á fyrsta ársfjórðungi 2016 var 35,2 milljónir evra, sem er 15,1% af tekjum [1F 2015: Leiðréttur rekstrarhagnaður EBIT* 35,2m og 14,4% af tekjum].
- Pantanabókin stóð í 339,9 milljónum evra við lok fyrsta ársfjórðungs 2016 [1F 2015: 289,3m]
Pro forma rekstrarniðurstaða er samanlagður rekstur Marel og MPS fyrir allan ársfjórðunginn. Pro forma tölur auðvelda samanburð á undirliggjandi rekstri á milli tímabila.
Pantanastaða félagsins er sterk eftir góða sölu sem nemur 254 milljónum evra í fyrsta ársfjórðungi. Góð dreifing er í sölu á heimsvísu og sömuleiðis á milli staðlaðrar vöru og stærri verkefna. Stærri verkefni fyrir viðskiptavini koma m.a. frá Indlandi, Bandaríkjunum, Brasiliu og Evrópu. Sjóðstrey mi var sterkt og rekstrarniðurstaða góð sem leiðir til þess að skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) er 2,9x sem er í samræmi við markmið félagsins um fjárhagsskipan.
Pro forma Tekjur Marel námu 234 milljónum með 15% EBIT*. Yfirtakan á MPS hefur jákvæð áhrif á rekstrarniðurstöðu félagsins. Sterk pantanabók og tímaseting á afhendingu á vörum til viðskiptavina gefur til kynna hækkun á tekjum félagsins á komandi ársfjórðungum.
Marel gerir ráð fyrir hóflegum innri vexti í tekjum og rekstrarhagnaði (EBIT*) sameinaðs félags á árinu 2016 til samanburðar við pro forma tekjur á árinu 2015 sem námu 977 milljónum evra og leiðréttan rekstrarhagnað (EBIT) sem nam 133 milljónum evra.
1F 2016 – Rekstrarniðurstaða samkvæmt reikningsskilum
- Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2016 námu 220,6 milljónum evra [1F 2015: 209,3m].
- EBITDA á fyrsta ársfjórðungi var 38,2 milljónir evra sem er 17,3% af tekjum. [1F 2015: Leiðrétt EBIT-DA** 36,9m, 17,6%].
- EBIT á fyrsta ársfjórðungi 2016 var 31,1 milljónir evra, sem er 14,1% af tekjum [1F 2015: Leiðréttur rekstrarhagnaður EBIT* 23,8m, 11,4%].
- Hagnaður fyrsta ársfjórðungs 2016 nam 13,8 milljónum evra [1F 2015: 12,6m. Hagnaður á hlut var 1,93 evru sent [1F 2015: 1,73 evru sent].
- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 27,9 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2016 [1F 2015: 39,5 milljónir evra].
- Pantanabókin stóð í 339,9 milljónum evra í lok fyrsta ársfjórðungs samanborið við 178 milljónir evra í lok fyrsta ársfjórðungs 2015 [4F 2015: 180,9m].
Marel tók yfir MPS 29.janúar 2016 og innifela reikningsskil félagsins sem nú eru birt því rekstur MPS í febrúar og mars 2016.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:
„Árið 2016 fer vel af stað. Ég vil bjóða starfsmenn MPS velkomna um borð. Við höfum frá fyrsta degi unnið sem eitt samheldið teymi. Pantanabók félagsins er sterk og nemur 340 milljónum evra eftir mjög góða sölu í fyrsta ársfjórðungi upp á 254 milljónir evra. Samanlögð rekstrarniðurstaða er 15% af tekjum.
MPS hefur jákvæð áhrif á reksturinn. Við bjóðum nú upp á heildarlausnir og þjónustu til kjúklinga-, kjöt- og fiskframleiðenda. Sala til kjötönaðar var 33% af heildartekjum með framúrskarandi rekstrarniðurstöðu.
ADVANCING FOOD PROCESSING
*Rekstrarniðurstaða aðlðguð fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirtöku á MPS.
**Rekstrarniðurstaða leiðrétt fyrir hagræðingarkostnaði í tengslum við áætun um einfaldara og skilvirkara Marel.
marel
Marel
Austurhraun 9
210 Gardabaer
Iceland
t +354-563-8000
f +354-563-8001
w www.marel.com
Sterk pantanabók og tímasetning á afhendingu á vörum til viðskiptavina gefur til kynna hækkun á tekjum félagsins á komandi ársfjörðungum. Við gerum ráð fyrir höfllegum innri vexti í tekjum og rekstrarhagnaði (EBIT*) sameinaðs félags á árinu 2016 til samanburðar við pro forma tekjur á árinu 2015 sem námu 977 milljónum evra og leiðréttan rekstrarhagnað (EBIT) sem nam 133 milljónum evra".
Horfur
Marel gerir ráð fyrir höfllegum innri vexti í tekjum og rekstrarhagnaði (EBIT*) sameinaðs félags á árinu 2016 til samanburðar við pro forma tekjur á árinu 2015 sem námu 977 milljónum evra og leiðréttan rekstrarhagnað (EBIT) sem nam 133 milljónum evra.
Sterkt vöruframboð og markviss markaðssókn ásamt meðbyr á mörkuðum hafa verið helstu drifkraftar öflugs tekjuvaxtar Marel á síðustu ársfjörðungum. Til meðal og lengri tíma litið, telur Marel að nýsköpun og sterk markaðsstaða um allan heim í öllum iðnuðum félagsins muni skila góðum vexti og aukinni arðsemi. Framtíðar-horfur eru góðar og gert er ráð fyrir því að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum. Markmið Marel er að halda áfram að vaxa hraðar en markaðurinn.
Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjörðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og tímasetningar stærri verkefna.
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasiðu Marel: http://marel.com/404?url=/2016Q41
Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins.
Kynningarfundur 26. apríl 2016
Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins þriðjudaginn 26. apríl kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.
Birtingardagar fyrir reikningsárið 2016
-
- ársfjörðungur 2016
- júlí 2016
-
- ársfjörðungur 2016
- október 2016
-
- ársfjörðungur 2016
- febrúar 2017
Birting fjárhagsupplysinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.
Frekari upplýsingar veita:
Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta. Símar: 563-8626 og 853-8626
Um Marel
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á hápróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fisk, kjöti og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 lóndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.
Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:
Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft báu áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.
Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda
ADVANCING FOOD PROCESSING
*Rekstrarniðurstaða aðlögur fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirlöku á MPS.
**Rekstrarniðurstaða leiðrétt fyrir hagræðingarkostnaði í tengslum við áætlun um einfaldara og skilvirkara Marel.