Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Earnings Release 2016

Jul 27, 2016

2191_rns_2016-07-27_4cad1c78-4b85-4e58-9479-f143ef717998.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

marel

Marel
Austurhraun 9
210 Gardabaer
Iceland

t +354-563-8000
f +354-563-8001
w www.marel.com

Marel kynnir afkomu annars ársfjórðungs 2016

(Allar upphæðir í evrum)

Hæsti ársfjórðungur í tekjum og rekstrarhagnaði

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi 2016 námu 264,2 milljónum evra [2F 2015: 218,3m]. Pro forma tekjur á öðrum ársfjórðungi 2015 námu 253,1 milljón evra.
  • EBITDA á öðrum ársfjórðungi 2016 var 48,4 milljónir evra sem er 18,3% af tekjum [2F 2015: Leiðrétt EBITDA 37,2m, 17,1%]. Pro forma leiðrétt EBITDA á öðrum ársfjórðungi 2015 nam 47,7 milljónum evra eða 18,9% af tekjum.
  • EBIT á öðrum ársfjórðungi 2016 var 39,7 milljónir evra, sem er 15,0% af tekjum [2F 2015: Leiðréttur rekstrarhagnaður EBIT 29,7m, 13,6% af tekjum]. Pro forma leiðrétt EBIT* á öðrum ársfjórðungi 2015 nam 38,4 milljónum evra eða 15,2% af tekjum.
  • Hagnaður annars ársfjórðungs 2016 nam 22,1 milljón evra [2F 2015: 19,5m]. Hagnaður á hlut var 3,09 evru sent [2F 2015: 2,71 evru sent].
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 43,7 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi 2016 [2F 2015: 23,7m]. Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) í lok annars ársfjórðungs 2016 er 2,7x.
  • Pantanabókin stóð í 306,5 milljónum evra við lok annars ársfjórðungs 2016 samanborið við 340,0 milljónir í lok fyrsta ársfjórðungs 2016 [2F 2015: 165,9m]. Pro forma pantanabók við lok annars ársfjórðungs 2015 var 272,5 milljónir evra.

Annar ársfjórðungur 2016 var góður fyrir Marel með mettekjum að upphæð 264 milljónir evra og 15,0% EBIT. Rekstrarniðurstaða og arðsemi var góð á fyrri helmingi ársins 2016. Pro forma tekjur á fyrri helmingi ársins 2016 námu 498 milljónum evra með 15,1% EBIT.

Pantanir á öðrum ársfjórðungi 2016 námu 231 milljónum evra og samtals 485 milljónum evra frá áramótum. Pantanastaða fyrir staðlaða vöru og varahluti var sterk í öllum iðnuðum. Á fyrri helmingi ársins tryggði Marel sér nokkur stór verkefni (e. greenfields) í kjúklingaiðnaði en á sama tímabili hafa markaðsaðstæður í kjöt- og fiskiðnaði verið lakari.

Sjóðstreymi frá rekstri er sterkt og Marel heldur áfram að fjárfesta í innviðum til að vera undirbúið fyrir framtíðarvöxt og virðisaukningu. Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) í lok annars ársfjórðungs 2016 er 2,7x sem er í samræmi við markmið félagsins um fjárhagsskipan.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

„Við erum ánægð með annan ársfjórðung sem skilar mettekjum og rekstrarhagnaði. Tekjur fjórðungsins námu 264 milljónum evra með 15,0% EBIT.

Á árinu 2016 höfum við kynnt fjölmargar nýjar og skilvirkari lausnir til leiks fyrir viðskiptavini okkar í kjúklinga-, kjöt- og fiskiðnaði sem gerir þeim kleift að styrkja stöðu sína og auka sjálfðærni í rekstri. Sjóðstreymi er sterkt og við höldum áfram að fjárfesta í innviðum Marel með bættri vinnuaðstöðu, tækjum og búnaði til að undirbúa framtíðarvöxt og virðisaukningu. Prátt fyrir tímabundna aukningu í fjárfestingum styrkjum við fjárhagsstöðu og lækkum skuldahlutfall félagsins.

Á síðasta ári sáum við mikinn innri vöxt í tekjum og umtalsverða aukningu í pöntunum, bæði hjá Marel og MPS. Marel eykur verulega umfang og afkomu á fyrri hluta ársins með MPS um borð. Til lengri tíma litið eru horfur Marel mjög góðar en til skemmri tíma litið hefur óvissa í heimsbúskapnum aukist. Marel gerir ráð fyrir höflegum innri vexti í tekjum og rekstrarhagnaði sameinaðs félags á árinu 2016“.

Endurskipulagningu í Seattle lokið

Á fyrri helmingi ársins 2015 var starfsemi nokkurra eininga á borð við háhraða skurðartækni (e. high speed slicing og frysta (e.freezing) lögð af. Á fyrri hluta ársins 2016 endurskipulagði Marel starfsemi sína í Seattle í Bandaríkjunum og fækkáði starfsmönnum um 50. Marel leggur nú áherslu á staðlaðan hátæknibúnað fyrir sjó-

ADVANCING FOOD PROCESSING

*Rekstrarniðurstaða aðlögur fyrir afskrift á öefnislegum eignum sem tengjast yfirtöku á MPS.

**Rekstrarniðurstaða leiðrétt fyrir hagræðingarkostnaði í tengslum við áætlun um einfaldara og skilvirkara Marel.

Pro forma rekstrarniðurstaða er samanlagður rekstur Marel og MPS. Pro forma tölur auðvelda samanburð á undirliggjandi rekstri á milli tímabila.


marel

Marel
Austurhraun 9
210 Gardabaer
Iceland

t +354-563-8000
f +354-563-8001
w www.marel.com

vinnslu (e. onboard) í stað sérhannaðra lausna. Tekjur og pantanir af aflagðri starfsemi eru 15 milljónum evra lægri á fyrri hluta ársins 2016 en fyrir sama tímabil 2015.

Horfur

Marel gerir ráð fyrir hóflegum innri vexti í tekjum og rekstrarhagnaði (EBIT*) sameinaðs félags á árinu 2016.

Til meðal og lengri tíma litið, telur Marel að nýsköpun og sterk markaðsstaða um allan heim í öllum iðnuðum félagsins muni skila góðum vexti og aukinni arðsemi. Framtiðarhorfur eru góðar og gert er ráð fyrir því að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum. Markmið Marel er að halda áfram að vaxa hraðar en markaðurinn.

Langtímahorfur Marel eru góðar en til skemmri tíma litið hefur óvissa í heimsbúskapnum aukist. Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjörðunga vegna efnahagspróunar á heimsvísu, sveiflna í póntunum og tímasetningar stærri verkefna.

Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasiðu Marel: http://marel.com/corporate/investor-relations/publications

Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins.

Kynningarfundur 28. júlí 2016

Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 28. júlí kl. 8:30 í húsnæði þess að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.

Birtingardagar fyrir reikningsárið 2016

    1. ársfjörðungur 2016 26. október 2016
    1. ársfjörðungur 2016 1. febrúar 2017
    1. ársfjörðungur 2017 5. maí 2017
    1. ársfjörðungur 2017 26. júlí 2017
    1. ársfjörðungur 2017 25. október 2017
    1. ársfjörðungur 2017 31. janúar 2018

Birting fjárhagsupplysinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.

Frekari upplýsingar veitir:

Auðbjörð Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta. Símar: 563-8626 og 853-8626

Um Marel

Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimssvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fisk, kjötí og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 lóndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:

Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sinu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft bau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.

Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.

ADVANCING FOOD PROCESSING

*Rekstrarniðurstaða aðlögur fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirtöku á MPS.

**Rekstrarniðurstaða leiðrétt fyrir hagræðingarkostnaði í tengslum við áætlun um einfaldara og skilvirkara Marel.

Pro forma rekstrarniðurstaða er samanlagður rekstur Marel og MPS. Pro forma tölur auðvelda samanburð á undirliggjandi rekstri á milli tímabila.