AI assistant
Marel — Earnings Release 2016
Jul 27, 2016
2191_rns_2016-07-27_e6a0ee5f-7972-46c0-897d-e2bace2d5ca8.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Marel 2F 2016-Hæsti ársfjórðungur í tekjum og rekstrarhagnaði
Marel 2F 2016-Hæsti ársfjórðungur í tekjum og rekstrarhagnaði
Marel kynnir afkomu annars ársfjórðungs 2016
(Allar upphæðir í evrum)
Hæsti ársfjórðungur í tekjum og rekstrarhagnaði
-- Tekjur á öðrum ársfjórðungi 2016 námu 264,2 milljónum evra [2F 2015:
218,3m]. Pro forma tekjur á öðrum ársfjórðungi 2015 námu 253,1 milljón
evra.
-- EBITDA á öðrum ársfjórðungi 2016 var 48,4 milljónir evra sem er 18,3% af
tekjum [2F 2015: Leiðrétt EBITDA** 37,2m, 17,1%]. Pro forma leiðrétt
EBITDA** á öðrum ársfjórðungi 2015 nam 47,7 milljónum evra eða 18,9% af
tekjum.
-- EBIT* á öðrum ársfjórðungi 2016 var 39,7 milljónir evra, sem er 15,0% af
tekjum [2F 2015: Leiðréttur rekstrarhagnaður EBIT** 29,7m, 13,6% af
tekjum]. Pro forma leiðrétt EBIT** á öðrum ársfjórðungi 2015 nam 38,4
milljónum evra eða 15,2% af tekjum.
-- Hagnaður annars ársfjórðungs 2016 nam 22,1 milljón evra [2F 2015: 19,5m].
Hagnaður á hlut var 3,09 evru sent [2F 2015: 2,71 evru sent].
-- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 43,7 milljónum
evra á öðrum ársfjórðungi 2016 [2F 2015: 23,7m]. Skuldahlutfall (nettó
skuldir/EBITDA) í lok annars ársfjórðungs 2016 er 2,7x.
-- Pantanabókin stóð í 306,5 milljónum evra við lok annars ársfjórðungs 2016
samanborið við 340,0 milljónir í lok fyrsta ársfjórðungs 2016 [2F 2015:
165,9m]. Pro forma pantanabók við lok annars árs-fjórðungs 2015 var 272,5
milljónir evra.
Annar ársfjórðungur 2016 var góður fyrir Marel með mettekjum að upphæð 264
milljónir evra og 15,0% EBIT*. Rekstrarniðurstaða og arðsemi var góð á fyrri
helmingi ársins 2016. Pro forma tekjur á fyrri helmingi ársins 2016 námu 498
milljónum evra með 15,1% EBIT*.
Pantanir á öðrum ársfjórðungi 2016 námu 231 milljónum evra og samtals 485
milljónum evra frá áramótum. Pantanastaða fyrir staðlaða vöru og varahluti var
sterk í öllum iðnuðum. Á fyrri helmingi ársins tryggði Marel sér nokkur stór
verkefni (e. greenfields) í kjúklingaiðnaði en á sama tímabili hafa
markaðsaðstæður í kjöt- og fiskiðnaði verið lakari.
Sjóðstreymi frá rekstri er sterkt og Marel heldur áfram að fjárfesta í innviðum
til að vera undirbúið fyrir fram-tíðarvöxt og virðisaukningu. Skuldahlutfall
(nettó skuldir/EBITDA) í lok annars ársfjórðungs 2016 er 2,7x sem er í samræmi
við markmið félagsins um fjárhagsskipan.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:
„Við erum ánægð með annan ársfjórðung sem skilar mettekjum og rekstrarhagnaði.
Tekjur fjórðungsins námu 264 milljónum evra með 15,0% EBIT.
Á árinu 2016 höfum við kynnt fjölmargar nýjar og skilvirkari lausnir til leiks
fyrir viðskiptavini okkar í kjúklinga-, kjöt- og fiskiðnaði sem gerir þeim
kleift að styrkja stöðu sína og auka sjálfbærni í rekstri. Sjóðstreymi er
sterkt og við höldum áfram að fjárfesta í innviðum Marel með bættri
vinnuaðstöðu, tækjum og búnaði til að undirbúa framtíðarvöxt og virðisaukningu.
Þrátt fyrir tímabundna aukningu í fjárfestingum styrkjum við fjárhagsstöðu og
lækkum skuldahlutfall félagsins.
Á síðasta ári sáum við mikinn innri vöxt í tekjum og umtalsverða aukningu í
pöntunum, bæði hjá Marel og MPS. Marel eykur verulega umfang og afkomu á fyrri
hluta ársins með MPS um borð. Til lengri tíma litið eru horfur Marel mjög góðar
en til skemmri tíma litið hefur óvissa í heimsbúskapnum aukist. Marel gerir ráð
fyrir hóflegum innri vexti í tekjum og rekstrarhagnaði sameinaðs félags á árinu
2016“.
Endurskipulagningu í Seattle lokið
Á fyrri helmingi ársins 2015 var starfsemi nokkurra eininga á borð við háhraða
skurðartækni (e. high speed slicing og frysta (e.freezing) lögð af. Á fyrri
hluta ársins 2016 endurskipulagði Marel starfsemi sína í Seattle í
Bandaríkjunum og fækkaði starfsmönnum um 50. Marel leggur nú áherslu á
staðlaðan hátæknibúnað fyrir sjó-vinnslu (e. onboard) í stað sérhannaðra
lausna. Tekjur og pantanir af aflagðri starfsemi eru 15 milljónum evra lægri á
fyrri hluta ársins 2016 en fyrir sama tímabil 2015.
Horfur
Marel gerir ráð fyrir hóflegum innri vexti í tekjum og rekstrarhagnaði (EBIT*)
sameinaðs félags á árinu 2016.
Til meðal og lengri tíma litið, telur Marel að nýsköpun og sterk markaðsstaða
um allan heim í öllum iðnuðum félagsins muni skila góðum vexti og aukinni
arðsemi. Framtíðarhorfur eru góðar og gert er ráð fyrir því að markaðsvöxtur
nemi 4-6% á næstu árum. Markmið Marel er að halda áfram að vaxa hraðar en
markaðurinn.
Langtímahorfur Marel eru góðar en til skemmri tíma litið hefur óvissa í
heimsbúskapnum aukist. Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði
breytileg milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í
pöntunum og tímasetningar stærri verkefna.
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta
uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á
heimasíðu Marel: http://marel.com/corporate/investor-relations/publications
Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins.
Kynningarfundur 28. júlí 2016
Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 28. júlí kl.
8:30 í húsnæði þess að Austur-hrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig
netvarpað: www.marel.com/webcast.
Birtingardagar fyrir reikningsárið 2016
-- 3. ársfjórðungur 2016 26. október 2016
-- 4. ársfjórðungur 2016 1. febrúar 2017
-- 1. ársfjórðungur 2017 5. maí 2017
-- 2. ársfjórðungur 2017 26. júlí 2017
-- 3. ársfjórðungur 2017 25. október 2017
-- 4. ársfjórðungur 2017 31. janúar 2018
Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.
Frekari upplýsingar veitir:
Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta. Símar: 563-8626
og 853-8626
Viðhengi: