Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Earnings Release 2014

Feb 4, 2015

2191_rns_2015-02-04_16f674df-bbc3-4ddf-82fe-67e108b79d4d.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Fréttatilkynning

  1. februar 2015

marel

Marel kynnir afkomu ársins 2014

(Allar upphæðir í evrum)

4F 2014 – Söluhæsti fjórðungur frá upphafi og sterkt sjóðstreymi

  • Tekjur á fjórða ársfjórðungi 2014 námu 200,0 milljónum evra [4F 2013: 168,2m].
  • Leiðrétt EBITDA* á fjórða ársfjórðungi var 28,1 milljónir evra sem er 14,1% af tekjum. EBITDA var 21,0 milljónir evra sem er 10,5% af tekjum [4F 2013: 14,1m].
  • Leiðréttur rekstrarhagnaður* (adj. EBIT) á fjórða ársfjórðungi var 16,1 milljónir evra, sem er 8,0% af tekjum. EBIT var 8,5 milljón evra sem er 4,2% af tekjum [4F 2013: 7,4m].
  • Hagnaður fjórða ársfjórðungs 2014 nam 3,0 milljónum evra [4F 2013: 3,7m]. Hagnaður á hlut var 0,41 evru sent [4F 2013: 0,50 evru sent á hlut].
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 32,7 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi 2014 [4F 2013: 34,7 milljónir evra]. Nettó vaxtaberandi skuldir í lok fjórðungsins námu 174,3 milljónum evra [4F 2013: 217,1 milljónir evra].

2014 – Markviss markaðssókn samhliða einföldun rekstrar

  • Tekjur ársins 2014 námu 712,6 milljónum evra og hækkuðu um 7,7% frá fyrra ári. [2013: 661,5m].
  • Leiðrétt EBITDA* var 83,7 milljónir evra sem er 11,7% af tekjum. EBITDA var 66,7 milljónir evra sem er 9,4% of tekjum [2013: 69,4m].
  • Leiðréttur rekstrarhagnaður * (e. adj. EBIT) árið 2014 var 48,8 milljónir evra sem er 6,8% af tekjum. EBIT var 29,2 milljónir evra sem er 4,1% af tekjum [2013: 42,9m].
  • Hagnaður ársins 2014 nam 11,7 milljónum evra [2013: 20,6m]. Hagnaður er litaður af einskiptiskostnaði í tengslum við hagræðingu í rekstri á árinu 2014. Hagnaður á hlut nam 1,60 evru sent [2013: 2,81 evru sent].
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 102,2 milljónum evra [2013: 80,3m]. Nettó vaxtaberandi skuldir í lok ársins námu 174,3 milljónum evra [2013: 217,1m].

Marel náði 7,7% tekjuvexti á árinu og leiðréttur rekstrarhagnaður nam 48,8 milljónum evra sem er í takti við áætlun félagsins fyrir tímabilið. Pantanabókin stendur í 175 milljónum við upphaf ársins samanborið við 132 milljónir evra í upphafi ársins 2014. Marel gerir ráð fyrir áframhaldandi innri vexti 2015 og góðri aukningu í rekstrarhagnaði og afkomu eftir skatt. Megináherslan er sem fyrr, á aukna skilvirkni í markaðssókn og rekstri með það að markmiði að rekstrarhagnaður ársins 2017 verði yfir 100 milljónum evra.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

"Fjórði ársfjórðungur var góður fyrir Marel með metveltu og sölu. Í fjórðungnum jókst sala um 19% og nýjar pantanir um 27% frá sama tímabili fyrra árs.

Árið 2014 var ár framfara og breytinga hjá Marel. Árið fór rólega af stað en með vorinu varð sjáanlegur viðsnúningur með markvissri markaðssókn samhliða aukinni skilvirkni í rekstri. Gott jafnvægi er á milli uppbyggingaverkefna fyrir viðskiptavini, (e. Greenfield) endurnýjunarverkefna og viðhaldsverkefna og þá er landfræðileg dreifing verkefna góð. Það er meðbyr á mörkuðum, sérstaklega í Norður-Ameriku sem nær að vega á móti umróti í Austur-Evrópu og öðrum löndum sem reiða sig á hrávöru.

Áætlun okkar um einfaldara og skilvirkara Marel, nær til tveggja ára og nú hefst síðari hluti þeirrar vegferðar. Hagræðing rekstrar er á áætlun og samhliða erum við einnig að fjárfesta í vexti til framtíðar í gegnum nýsköpun og

*Leiðrétt fyrir einskiptiskostnaði í tengslum við hagræðingaraðgerðir


fjárfestingu í innviðum sem munu styðja við félagið til framtíðar. Við erum á réttri leið eins og bætt rekstarafkoma á síðari hluta ársins 2014 sýnir og við erum bjartsýn í upphafi árs 2015. Staða pantana er góð, markviss skref til lækkunar á kostnaðargrunni hafa verið tekin og við stefnum á góðan innri vöxt og aukinn hagnað á árinu 2015 samanborið við fyrra ár."

Einfaldara og skilvirkara Marel

Áætlun um einfaldara og skilvirkara Marel er tveggja ára hagræðingarverkefni sem hófst í ársbyrjun 2014. Verkefnið gengur samkvæmt áætlun og stefnt er að því að þjónusta viðskiptavini betur og auka arðsemi félagsins með það að markmiði að rekstrarhagnaður ársins 2017 verði yfir 100 milljónum evra.

Markmiðið er að mæta þörfum viðskiptavina með skilvirkari hætti og lækka árlegan kostnaðargrunn félagsins um 25 milljónir evra. Áætlaður heildarkostnaður til greiðslu vegna hagræðingaraðgerða er 25 milljónir evra á tímabilinu 2014-2015 en kostnaður í rekstrarreikningi getur ekki verið að fullu metin á þessum tímapunkti. Á árinu 2014 var ráðist í aðgerðir sem gert er ráð fyrir að muni lækka árlegan kostnaðargrunn félagsins um 14 milljónir evra. Einskiptiskostnaður til greiðslu nemur 14 milljónum evra. Heildareinskiptiskostnaður í rekstrarreikningi á sama tímabili nemur 19,6 milljónum evra og er mismunurinn tilkomin m.a. vegna endurmats eigna. Einskiptiskostnaður vegna aðgerða í fjórða ársfjörðungi nam 7,6 milljónum evra þar af eru 6,5 milljónir evra til greiðslu.

Marel er að hagræða í rekstri félagsins og hámarka framleiðslukerfi sitt samhliða því sem verið er að fjárfesta í framtíðarvexti í gegnum nýsköpun og fjárfestingu í innviðum. Samhliða því að auka skilvirkni í rekstri hefur Marel tekist að skerpa á markaðssökn sem hefur skilað aukinni sölu með sterku sjóðstrey mi sem hefur skilað sér í að vaxtaberandi skuldir/EBITDA stöðu í 2,08 í árslok 2014 borið saman við 3,13 í árslok 2013.

Til viðbótar við einskiptiskostnað í tengslum við hagræðingarverkefnið einfaldara og skilvirkara Marel er einskiptiskostnaður í tengslum við sölu-, stjórnunar- og nýsköpunarkostnað.

Aðgerðir til hagræðingar í rekstri 2014:

  • Breytingar á skipulagi kjötðnaðar þar sem þrjár einingar voru sameinaðar sem skilar betri nýtingu í nýsköpunar- og sölustarfsemi félagsins.
  • Flutningur á starfsemi í laxaiðnaði frá Norresundsby til Stovring í Danmörku. Flutningnum var að fullu lokið í öðrum ársfjörðungi 2014 og frá og með þriðja ársfjörðungi hefur starfsemi Marel í laxaiðnaði verið rekinn með auknum afköstum og skilvirkni.
  • Endurskipulagning á starfsemi Marel í Hollandi og flutningur á starfsemi frá Oss til Boxmeer. Aðgerðinni var að fullu lokið fyrir árslok 2014 og mun auka skilvirkni í nýsköpun og sölu til framtíðar.
  • Lokun á framleiðslueiningu Marel í Singapore. Einingunni verður að fullu lokað fyrir mitt ár 2015. Marel mun í samstarfi við leiðandi framleiðendur bjóða áfram frysta í vörulínum sínum.
  • Hagræðing á starfsemi Marel í fullvinnslu.

Hagræðingaraðgerðum verður haldið áfram á árinu. Í janúar tilkynnti Marel að framleiðslustarfsemi félagsins í Des Moines, Iowa verður sameinuð starfseiningu félagsins í Gainesville, Georgíu. Markmiðið með þessum fyrirhuguðu breytingum er samþætting í rekstri starfseininganna sem mun styrkja samkeppnisstöðu félagsins. Aðgerðin er til samræmis við þá stefnu félagsins að hámarka framleiðslukerfið og auka áherslu á stærri einingar þar sem mismunandi iðnaðir koma saman undir einu þaki. Flutningar á framleiðslustarfsemi frá Des Moines til Gainesville hófust í janúar 2015 og verður þeim að fullu lokið fyrir árslok 2015.

Fastráðnir starfsmenn eru 3.800 í árslok 2014 samanborið við 4.000 í ársbyrjun. Til þess að vega á móti sveiflum í eftirspurn eru tímabundnir starfsmenn ráðnir og var fjöldi þeirra 250 við árslok samanborið við 130 í ársbyrjun. Þetta endurspeglar aukna sölu og góða stöðu pantanabókar. Lokun á framleiðslueiningu í Singapore og samþætting rekstrar í Bandaríkjunum munu hafa í fór með sér frekari fækkun starfsmanna eins og áður hefur verið tilkynnt.

Page 2 of 6


Tillaga um arðgreiðslu

Á aðalfundi ársins 2015, sem haldinn verður 4. mars næstkomandi, mun stjórn Marel leggja til að hluthafar fái greidd 0,48 evru sent í arð á hlut fyrir rekstrarárið 2014. Miðað við fjölda útistandandi hluta nú nemur fyrirhuguð heildararðgreiðsla um 3,5 milljónum evra, sem samsvarar um 30% af nettó hagnaði ársins. Arðgreiðslutillaga þessi er í samræmi við markmið um fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnu félagsins.

Verði tillagan samþykkt af hluthöfum félagsins, munu hlutabréf sem skipta um hendur frá og með 5. mars 2015 (e. ex-date = arðleysisdagur) verða án arðsréttinda og réttur hluthafa til arðgreiðslu verður miðaður við hlutaskrá félagsins í lok viðskipta hinn 6. mars 2015 sem yrði arðsréttindadagur (e. record date). Stjórn Marel leggur til að arður verði greiddur út hinn 27. mars 2015 (e. payment date).

Horfur

Byggt á góðri stöðu pantana við upphaf ársins 2015 og meðbyr á mörkuðum gerir Marel gerir ráð fyrir áframhaldandi innri vexti 2015 og góðri aukningu í rekstrarhagnaði og afkomu eftir skatt. Megináherslan er sem fyrr, á aukna skilvirkni í markaðssökn og rekstri með það að markmiði að rekstrarhagnaður ársins 2017 verði yfir 100 milljónum evra.

Til meðal og lengri tíma litið, telur Marel að nýsköpun og sterk markaðsstaða um allan heim í öllum iðnuðum félagsins muni skila góðum vexti og aukinni arðsemi. Framtíðarhorfur eru góðar og gert er ráð fyrir því að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum. Markmið Marel er að halda áfram að vaxa hraðar en markaðurinn.

Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjörðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í þöntunum og tímasetningar stærri verkefna.

Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasiðu Marel: www.marel.com/2014Q4

Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins.

Kynningarfundur 5. febrúar 2015

Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 5. febrúar kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.

Birtingardagar fyrir reikningsárið 2015

  • Aðalfundur 4. mars 2015
    1. ársfjörðungur 2015 29. apríl 2015
    1. ársfjörðungur 2015 29. júlí 2015
    1. ársfjörðungur 2015 28. október 2015
    1. ársfjörðungur 2015 3. febrúar 2016

Birting fjárhagsupplysinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.

Frekari upplýsingar veita:

Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta. Símar: 563-8626 og 853-8626

Um Marel

Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á hápýðum búnáði og kerfum til vinnslu á fisk, kjötí og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 lóndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:

Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á


Page 4 of 6


Page 5 of 6

Simpler, Smarter, Faster refocusing program

Marel's two year refocusing plan is on track and will continue throughout 2015, after which the focus will be shifted towards full potential with the aim of reaching 100 million EBIT in 2017.

The refocusing plan's objectives are to increase efficiency in order to serve customers better and reduce the recurring annual cost base by 25 million. Total estimated cash-out costs related to refocusing actions is 25 million, though the P/L effect cannot be fully estimated. Throughout the refocusing program, Marel has managed to be at the customer for the customer resulting in increased sales with strong cash flow and net debt/EBITDA at 2.08 at year-end compared to 3.25 at the beginning of 2014.

Recurring annual cost savings from actions taken in 2014 is estimated to be approximately 14 million compared to cash-out costs of approximately 14 million while the one-off costs through the P/L is 19.6 million. The one-off costs in Q4 amount to 7.6 million, thereof 6.5 million with cash-out effect. The full costs of the closure of freezing activities in Singapore is booked in Q4 as well as costs associated with general streamlining of operations including a special focus on lowering the recurring cost base in Further Processing.

Several actions were taken during 2014 that will lower Marel's cost base going forward and increase its competitiveness.

Refocusing actions taken during 2014:

  • The consolidation of several different business units in Marel's meat segment resulting in better utilization of resources and increased synergies in Marel's meat activities.
  • The transfer of salmon activities from Norresundby to a larger and modernized facility in Stovring, Denmark. The transfer was finalized in Q2 and as of Q3; Marel's salmon operation has been running with increased efficiency.
  • The transfer of Marel's operations from Oss to the multi-industry site in Boxmeer was completed before year-end and will return increased synergies in innovation and sales going forward.
  • The ceasing of manufacturing production in Singapore. The wind-down of manufacturing activities in Singapore will be finalized before mid-year 2015 and will increase operational profit during the second half of 2015 and onwards. Marel is entering into partnership to continue to provide freezing solutions for integrated solutions to its customers.
  • The streamlining of Marel's activities in Further Processing.

General employees with long term contracts are approximately 3,800 at year-end 2014 compared to approximately 4,000 at the beginning of the year. To manage fluctuations in demand, Marel uses temporary manufacturing resources, of which there are 250 resources at year-end compared with 130 at beginning of the year, reflecting the increased business activity and strong order book. The ceasing of freezing activities and the U.S. manufacturing consolidation will lead to further reductions of employees as previously announced.

Further refocusing actions will be taken in 2015 and in January, Marel announced the consolidation of its Des Moines, Iowa manufacturing operation to an existing facility in Gainesville, Georgia. The aim is to capture synergies and increase Marel's competitiveness by consolidating its manufacturing platform into few multi-industrial manufacturing sites. The transition process will begin in January 2015, with completion before year-end 2015.

Outlook

Based on the strong order book at the beginning of 2015 and tailwind in its main markets, Marel's management guidance for 2015 is organic revenue growth, with good improvement in operational profit and net results. Full focus remains on strengthening the market approach and operational improvement with the aim to reach EBIT of over 100 million in 2017.

In the mid- and long-term, the company believes its innovative products and global presence in all industries will secure good growth and increased profitability. The long-term outlook in the industry remains favorable and the


estimated market growth for providing advanced solutions and equipment for meat, poultry and fish processing is 4-6%. Marel's goal is to continue to grow faster than the market, based on its innovative customer solutions and extensive sales and service network.

Results may vary from quarter to quarter due to general economic developments, fluctuations in orders received, and deliveries of larger systems.

Presentation of results, February 5, 2015

Marel will present its results at an investor meeting on Thursday, February 5, at 8:30 am (GMT), at the Company's headquarters at Austurhraun 9, Gardabaer. The meeting will also be webcast at marel.com/webcast.

Publication days of Consolidated Financial Statements in 2015

  • Annual General Meeting March 4, 2015
  • 1st quarter 2015 April 29, 2015
  • 2nd quarter 2015 July 29, 2015
  • 3rd quarter 2015 October 28 2015
  • 4th quarter 2015 February 3, 2016

Release of financial statements will take place after market closing on the aforementioned dates.

For further information, contact:

Audbjorg Olafsdottir, Corporate Director of Investor Relations and Communications, tel: (+354) 563 8626 / mobile: (+354) 853 8626.

About Marel

Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. With offices and subsidiaries in more than 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance. Advance with Marel for all your processing needs.

Forward-looking statements

Statements in this press release that are not based on historical facts are forward-looking statements. Although such statements are based on management's current estimates and expectations, forward-looking statements are inherently uncertain. We, therefore, caution the reader that there are a variety of factors that could cause business conditions and results to differ materially from what is contained in our forward-looking statements, and that we do not undertake to update any forward-looking statements. All forward-looking statements are qualified in their entirety by this cautionary statement.

Page 6 of 6