AI assistant
Marel — Earnings Release 2015
Apr 29, 2015
2191_rns_2015-04-29_a101187f-d797-4a7f-a41f-92da7f35eba7.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
- april 2015
marel Innovation Through Partnership
Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2015
(Allar upphæðir eru í evrum)
Aukning í tekjum og bætt rekstrarniðurstaða
- Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2015 námu 209,3 milljónum evra [1F 2014: 154,8m].
- Leiðrétt EBITDA* á fyrsta ársfjórðungi var 36,9 milljónir evra sem er 17,6% af tekjum. [1F 2014: 11,6m]. EBITDA var 29,4 milljónir evra sem er 14% af tekjum [1F 2014: 8,1m].
- Leiðréttur rekstrarhagnaður* (adj. EBIT) á fyrsta ársfjórðungi 2015 var 23,8 milljónir evra, sem er 11,4% af tekjum. [1F 2014: 4,6m]. EBIT var 16,2 milljónir evra sem er 7,8% af tekjum [1F 2014: 1,0m].
- Hagnaður fyrsta ársfjórðungs 2015 nam 12,6 milljónum evra [1F 2014: 1,9m tap]. Hagnaður á hlut var 1,73 evru sent [1F 2014: tap á hlut 0,25 evru sent].
- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 39,5 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2015 [1F 2014: 19,4 milljónir evra]. Nettó vaxtaberandi skuldir í lok fjórðungsins námu 161,7 milljónum evra [1F 2014: 208,4 milljónir evra].
- Pantanabókin stóð í 178 milljónum evra í lok fyrsta ársfjórðungs samanborið við 174,9 milljónir evra í lok árs 2014.
Árið 2015 byrjar vel fyrir Marel. Félagið hefur náð góðri aukningu í rekstrarhagnaði og afkomu eftir skatt samanborið við fyrri fjórðunga og á sú niðurstaða rætur sínar að rekja til góðrar sölu og pantanastöðu til viðbótar við bætta rekstrarafkomu í kjölfar hagræðingaraðgerða. Fjárhagsstaðan er sterk sem hefur skilað sér í að skuldsetningarhlutfall félagsins er 1,48 sem gerir félaginu kleift að stýðja enn frekar við vöxt og samkeppnishæfni til framtíðar. Góður meðbyr er á helstu mörkuðum Marel og skilyrði á fjármálamörkuðum eru hagstæð.
Tveir mikilsverðir atburðir áttu sér stað eftir uppgjörsdag fyrsta ársfjórðungs 2015 og fram að birtingu uppgjörs:
- Samið var um sölu á starfsemi Marel á háhraða skurðartækni (High Speed Slicing) sem staðsett er í Norwich, Bretlandi í febrúar. Formleg eigendaskipti áttu sér stað í apríl. Salan mun hafa væg jákvæð áhrif á rekstrarreikning annars ársfjórðungs og skila jákvæðu sjöðstremi sem nemur 9,5 milljónum evra.
- Fasteign félagsins í Oss í Hollandi var seld í apríl á 2,4 milljónir evra. Starfsemin í Oss var á síðasta ári flutt í fjölliðnaðarsetur Marel í Boxmeer til að auka skilvirkni og bæta nýtingu. Aðgerðin gerir félagið að auki betur í stakk búið til að takast á við sveiflur í rekstrinum og í eftirspurn eftir mismunandi vörum í mismunandi iðnuðum.
Frá því að áætluninni um einfalda og skilvirkara Marel var hleypt af stokkunum og til loka fyrsta ársfjórðungs 2015 og að teknu tilliti til þeirra atburða sem eru nefndir hér að ofan er heildarkostnaður til greiðslu vegna hagræðingaraðgerða 12 milljónir evra en kostnaður í rekstrarreikningi fyrir sama tímabil er 27 milljónir evra.
Marel gerir ráð fyrir áframhaldandi innri vexti 2015 og góðri aukningu í rekstrarhagnaði og afkomu eftir skatt. Megináherslan er sem fyrr, á aukna skilvirkni í markaðssókn og rekstri með það að markmiði að rekstrarhagnaður ársins 2017 verði yfir 100 milljónum evra.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:
"Við erum ánægð með niðurstöðu fyrsta ársfjórðungs 2015. Með markvissri markaðssókn og sterku vöruframboði höfum við náð að nýta okkur þann meðbyr sem nú ríkir á mörkuðum Marel. Í kjölfarið sjáum við áframhaldandi aukningu í sölu með góðum afkomubata.
*Leiðrétt fyrir einskiptiskostnaði í tengslum við hagræðingaraðgerðir
Marel hf • Austurhraun 9 • IS-210 Gardabaer • Iceland
[email protected] • marel.com • Tel. +354-563-8000 • Fax +354-563-8001
Fréttatilkynning
- april 2015
marel Innovation Through Partnership
Gott jafnvægi er å milli uppyggningarverkefna fyrir viðskiptavini (e. Greenfield) og endurnýjunarverkefna og vöxtur er í þjónustutekjum. Við höfum fjárfest vel í nýskópun og við kynnum stöðugt til sögunnar nýjar og spennandi lausnir sem gera kjúklinga-, kjót- og fiskframleiðendum kleift að draga úr sóun og minnka notkun á vatni og rafmagni sem gerir framleiðslu matvæla sjálfbærari til framtíðar.
Öll iðnaðarsetur okkar, kjót, fiskur, kjúklingur og áframvinnsla, skila nú betri rekstrarniðurstöðu. Ég vil þakka öllum starfsmönnun Marel fyrir þeirra framlag. Á sama tíma og við erum að hagræða og einfalda reksturinn hefur okkur tekist að styrkja samstarf við viðskiptavini okkar og afla nýrra viðskiptavina. Markmið okkar er alltaf það sama, að auka virði viðskiptavina og hluthafa.
Heimild til kaupa á eigin hlutabréfum
Stjórn Marel hefur veitt stjórnendum félagsins heimild til að kaupa allt að 25 milljónir hluta í Marel fyrir hönd félagsins. Viðskiptin geta átt sér stað í einu eða fleiri skrefum og gildir heimildin út árið 2015. Hlutirnir eru ætlaðir sem endurgjald í mögulegum fyrirtækjakaupum. Fyrirtækjakaup eru eftir sem áður háð samþykki stjórnar Marel.
Einfaldara og skilvirkara Marel
Tveggja ára áætlun um einfaldara og skilvirkara Marel (e. Simpler, Smarter, Faster) gengur eins og ráðgert var. Markmiðið er að gera markaðssökken skilvirkari, mæta þörfum viðskiptavina með skilvirkari hætti og lækka kostnaðargrunn félagsins. Sérstök áhersla er lögð á hámörkun í framleiðslukerfinu og aukna skilvirkni í nýskópun og vöruþróun.
Hámörkun framleiðslukerfisins gengur samkvæmt áætlun. Á fyrsta ársfjörðungi 2015 var tilkynnt um hagræðingaraðgerðir í Singapur, Danmörku, Bandaríkjunum og Bretlandi auk þess sem tilkynnt var um sölu á einingu sem stendur utan kjarnastarfsemi á Spáni. Marel gekk frá samkomulagi um sölu á starfsemi sinni í háhraða skurðartækni í febrúar en gengið var frá sölunni í apríl.
Frá því að áætlunin um einfaldara og skilvirkara Marel var hleypt af stokkunum og til loka fyrsta ársfjörðungs 2015 að teknu tilliti til þeirra atburða sem hafa átt sér stað í apríl 2015 er heildarkostnaður til greiðslu vegna hagræðingaraðgerða 12 milljónir evra en kostnaður í rekstrarreikningi er fyrir sama tímabil 27 milljónir evra. Áætlaður heildarkostnaður til greiðslu vegna hagræðingaraðgerða er 25 milljónir evra á tímabilinu 2014-2015 en kostnaður í rekstrarreikningi er ekki að fullu ljós á þessum tímapunkti.
Aðgerðir til hagræðingar í rekstri á fyrsta ársfjörðungi 2015
- Marel hættir eigin framleiðslu á frystum í Singapur. Marel mun í samstarfi við Heinen og VDL sem eru leiðandi framleiðendur á frystum áfram bjóða frysta í vörulínum sínum sem styðja við heildarlausnir Marel fyrir fisk-, kjót- og kjúklingaframleiðendur.
- Endurskipulagning á starfsemi í Bandaríkjunum. Framleiðslustarfsemi Marel í Des Moines, Iowa verður sameinuð starfseiningu félagsins í Gainesville, Georgíu. Á sama tíma verður fjárfest í nýrri nýskópunarmiðstöð í Des Moines. Aðgerðinni verður að fullu lokið fyrir árslok 2015.
- Endurskipulagning á starfsemi í Danmörku. Starfsemi Marel í Borgundarholmi verður flutt til Árósa. Aðgerðinni verður að fullu lokið fyrir árslok 2015.
- Sala á einingu utan kjarnastarfsemi á Spáni. Félagið Stork Inter Iberica var selt til Fjárfestingasjóðs.
- Endurskipulagning á starfsemi í Bretlandi. Starfsemi Marel í háhraða skurðartækni var seld til Middleby Corporation. Aðrir vöruflokkar sem heyra undir starfsemi félagsins í Norwich, þ.e.
Marel hf • Austurhraun 9 • IS-210 Gardabaer • Iceland
[email protected] • marel.com • Tel. +354-563-8000 • Fax +354-563-8001
Fréttatilkynning
- april 2015
marel Innovation Through Partnership
mótunarvélar og þjarkar voru ekki hluti af sölunni þar sem þeir falla undir kjarnastarfsemi Marel og stýðja við vóruframboð og stefnu félagsins.
Starfsemi eininga í Singapúr, Spáni og Bretlandi sem nú hefur verið hætt skilaði tekjum í kringum 30 milljónum evra árið 2014. Starfsemin skilaði litilli framlegð og neikvæðri rekstrarafkomu. Tekjur þeirrar starfsemi sem nú hefur verið hætt skilaði 6 milljónum evra í tekjur á fyrsta ársfjörðungi 2015 og var staða pantana hjá þessari starfsemi 4 milljónir evra í lok fyrsta ársfjörðungs 2015.
Horfur
Marel gerir ráð fyrir áframhaldandi innri vexti 2015 og góðri aukningu í rekstrarhagnaði og afkomu eftir skatt. Megináherslan er sem fyrr, á aukna skilvirkni í markaðssókn og rekstri með það að markmiði að rekstrarhagnaður ársins 2017 verði yfir 100 milljónum evra.
Til meðal og lengri tíma litið, telur Marel að nýsköpun og sterk markaðsstaða um allan heim í öllum iðnuðum félagsins muni skila góðum vexti og aukinni arðsemi. Framtiðarhorfur eru góðar og gert er ráð fyrir því að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum. Markmið Marel er að halda áfram að vaxa hraðar en markaðurinn.
Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjörðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í þöntunum og tímasetningar stærri verkefna.
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasiðu Marel: www.marel.com/2015Q1
Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins.
Kynningarfundur 30. april 2015
Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 30. apríl kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.
Birtingardagar fyrir reikningsárið 2015
-
- ársfjörðungur 2015
- júlí 2015
-
- ársfjörðungur 2015
- október 2015
-
- ársfjörðungur 2015
- febrúar 2016
Birting fjárhagsupplysinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.
Frekari upplýsingar veita:
Auðbjörð Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta. Símar: 563-8626 og 853-8626
Um Marel
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnáði og kerfum til vinnslu á fisk, kjöti og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 lóndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.
Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:
Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.
Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.
Marel hf • Austurhraun 9 • IS-210 Gardabaer • Iceland
[email protected] • marel.com • Tel. +354-563-8000 • Fax +354-563-8001