AI assistant
Marel — Earnings Release 2015
Oct 28, 2015
2191_rns_2015-10-28_25cb0446-cf67-4e8b-bd62-c7e50739a5c8.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
- október 2015
marel Innovation Through Partnership
Afkoma þriðja ársfjörðungs 2015
(Allar upphæðir eru í evrum)
Sterk pantanastaða og góð afkoma
- Tekjur á þriðja ársfjörðungi 2015 námu 189,1 milljónum evra [3F 2014: 187,9m].
- Leiðrétt EBITDA* á þriðja ársfjörðungi var 31,6 milljónir evra sem er 16,7% af tekjum [3F 2014: 25,9m]. EBITDA var 29,7 milljón evra sem er 15,7% af tekjum [3F 2014: 24,6m].
- Leiðréttur rekstrarhagnaður* (adj. EBIT) á þriðja ársfjörðungi 2015 var 24,2 milljónir evra, sem er 12,8% af tekjum [3F 2014: 17,4m]. EBIT var 22,2 milljónir evra sem er 11,7% af tekjum [3F 2014: 16,1m].
- Hagnaður þriðja ársfjörðungs 2015 nam 14,7 milljónum evra [3F 2014: 9,8m]. Hagnaður á hlut var 2,07 evru sent [3F 2014: 1,34 evru sent].
- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 29,7 milljónum evra á þriðja ársfjörðungi 2015 [3F 2014: 29,7m]. Nettó vaxtaberandi skuldir í lok fjörðungsins námu 150,3 milljónum evra [3F 2014: 191,3m].
- Pantanabókin stóð í 187,7 milljónum evra í lok þriðja ársfjörðungs 2015 samanborið við 165,9 milljónir evra í lok annars ársfjörðungs 2015 [3F 2014: 169,2m].
Mótteknar pantanir námu 211 milljónum evra í þriðja ársfjörðungi. Pantanir dreifast vel á heimsvísu og samanstanda af bæði meðalstórum og stórum uppbyggingarverkefnum. Pá er einnig góður vöxtur í endurnýjunar- og viðhaldsverkefnum.
Tekjur fyrstu níu mánuði ársins námu 617 milljónum evra og leiðréttur rekstrarhagnaður (e. adj. EBIT) 78 milljónum evra (12,6%) samanborið við 513 milljónir (tekjur) og 33 milljónir (adj. EBIT) (6,4%) fyrir sama tímabil fyrra árs. Árið 2014 inniheldur 30 milljónir evra af rekstrartekjum með lága framlegð, sem var seld eða aflögð í ársbyrjun 2015. Sjóðstrey mi og rekstrarafkoma var góð sem leiðir til sterkrar fjárhagsstöðu og skuldsetningarhlutfall félagsins er 1,1 við lok þriðja ársfjörðungs.
Markviss markaðssókn og fjölbreytt vöruframboð ásamt meðbyr á mörkuðum hefur leitt til góðs tekjuvaxtar Marel undanfarna fjörðunga. Til skemmri tíma litið má búast við því að markaðsastæður nái nú jafnvægi og nálgist meðalvöxt á nýjan leik eftir mikinn vöxt undanfarið. Sögulega hefur vöxtur á markaði Marel verið í kringum 4-6% og er búist við að framtiðarvöxtur verði á því bili. Með áframhaldandi fjárfestingu í nýsköpun og með því að nýta til fulls sterka markaðsstöðu er það markmið félagsins að halda áfram að vaxa hraðar en markaðurinn.
Árni Oddur Þörðarson, forstjóri:
"Þriðji ársfjörðungur var frábær fyrir Marel með sterku innstrey mi pantana og auknum hagnaði. Við höfum skerpt á vöruframboði okkar og straumlínulagað framleiðslukerfið. Á sama tíma og við höfum hagrætt og einfaldað reksturinn hefur sala aukist og þörfum viðskiptavina er enn betur mætt en áður. Ég vil þakka öllum starfsmönnum Marel fyrir þann árangur sem náðst hefur.
Með markvissri markaðssókn og sterku vöruframboði hefur Marel tekist að vaxa um að meðaltali 6% á ári frá því að Stork Food System var yfirtekíð árið 2008. Fyrir sama tímabil hefur hagnaður á hlut vaxið um 20% að meðaltali á ári. Á þessu tímabili voru miklar sveiflur í heimsbúskapnum sem sýnir afar vel styrk og framtiðar vaxtarmöguleika Marel.
Marel mun halda áfram að leggja sitt af mörkum við að gera matvælaíramleiðslu á heimsvísu sjálfbærari og skilvirkari. Markmiðið er að auka langtímavirði fyrir viðskiptavini og hluthafa Marel".
*Leiðrétt fyrir einskiptiskostnaði í tengslum við hagræðingaraðgerðir
Marel hf • Austurhraun 9 • IS-210 Gardabaer • Iceland
[email protected] • marel.com • Tel. +354-563-8000 • Fax +354-563-8001
Fréttatilkynning
- október 2015
marel Innovation Through Partnership
Einfaldara og skilvirkara Marel
Tveggja ára áætlun um einfaldara og skilvirkara Marel (e. Simpler, Smarter, Faster) gengur samkvæmt áætlun og mun renna sitt skeið í lok þessa árs. Markmið áætlunarinnar er að gera markaðssókn skilvirkari, að mæta þörfum viðskiptavina með skilvirkari hætti og lækka kostnaðargrunn félagsins. Marel hefur aukið skilvirkni og endurskoðað vöruframboð sitt sem hefur leitt til þess að starfsemi eininga sem skilaði litilli framlegð og neikvæðri rekstrarafkomu hefur verið hætt. Tekjur þeirra starfsemi sem nú hefur verið hætt nam um 30 milljónum evra á ársgrundvelli en frá öðrum ársfjörðungi 2015 eru þær ekki taldar með í reikningum félagsins.
Frá því að áætlunin um einfaldara og skilvirkara Marel var hleypt af stokkunum að teknu tilliti til sölu rekstrareininga, er heildarkostnaður til greiðslu vegna hagræðingaraðgerða áætlaður 14 milljónir evra en kostnaður í rekstrarreikningi fyrir sama tímabil er 30 milljónir evra þar af eru 2 milljónir evra í þriðja ársfjörðungi. Kostnaðurinn í þriðja ársfjörðungi er tilkomin vegna flutninga á framleiðslustarfsemi frá Des Moines til Gainsville í Bandaríkjunum og frá Borgundarhólmi til Árósa í Danmörku en þessum aðgerðum mun ljúka fyrir árslok.
Áætlaður heildarkostnaður til greiðslu vegna hagræðingaraðgerða mun ekki fara yfir 25 milljónir evra á tímabilinu 2014-2015.
Horfur
Markviss markaðssókn og fjölbreytt vöruframboð ásamt meðbyr á mörkuðum hefur leitt til góðs tekjuvaxtar Marel undanfarna fjörðunga. Til skemmri tíma litið má búast við því að markaðsaðstæður nái nú jafnvægi og nálgist meðalvöxt á nýjan leik eftir mikinn vöxt undanfarið. Sögulega hefur vöxtur á markaði Marel verið í kringum 4-6% og er búist við að framtiðarvöxtur verði á því bili. Með áframhaldandi fjárfestingu í nýsköpun og með því að nýta til fulls sterka markaðsstöðu er það markmið félagsins að halda áfram að vaxa hraðar en markaðurinn.
Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjörðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í þöntunum og tímasetningar stærri verkefna.
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasiðu Marel: www.marel.com/2015Q3
Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins.
Kynningarfundur 29. október 2015
Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 29. október kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.
Birtingardagar fyrir reikningsárið 2015 og 2016
-
- ársfjörðungur 2015 3. febrúar 2016
-
- ársfjörðungur 2016 25. apríl 2016
-
- ársfjörðungur 2016 27. júlí 2016
-
- ársfjörðungur 2016 26. október 2016
-
- ársfjörðungur 2016 1. febrúar 2017
Birting fjárhagsupplysinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.
Frekari upplýsingar veita:
Auðbjörð Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta. Símar: 563-8626 og 853-8626
Marel hf • Austurhraun 9 • IS-210 Gardabær • Iceland
[email protected] • marel.com • Tel. +354-563-8000 • Fax +354-563-8001
Fréttatilkynning
- október 2015
marel Innovation Through Partnership
Um Marel
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnáði og kerfum til vinnslu á fisk, kjöti og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.
Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:
Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.
Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.
Marel hf • Austurhraun 9 • IS-210 Gardabaer • Iceland
[email protected] • marel.com • Tel. +354-563-8000 • Fax +354-563-8001