AI assistant
Marel — Earnings Release 2014
Jul 23, 2014
2191_rns_2014-07-23_ea63bce2-349d-4ca6-ab75-fd85b2313be8.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
marel
FRÉTTATILKYNNING
- júli 2014
Afkoma annars ársfjórðungs 2014
(Allar upphæðir í Evrum)
Verkefnastaða batnar verulega – Hagræðing rekstrar samkvæmt áætlun
- Tekjur á öðrum ársfjórðungi 2014 námu 169,8 milljónum evra [Q2 2013: 178.4 milljónir evra].
- Leiðrétt EBITDA (leiðrétt fyrir kostnaði vegna hagræðingaraðgerða) var 18,0 milljónir evra sem er 10,6% af tekjum. EBITDA var 13,0 milljón evra sem er 7,7% af tekjum [Q2 2013: 19,0 milljónir evra].
- Leiðréttur rekstrarhagnaður (EBIT) var 10,7 milljónir evra, sem er 6,3% af tekjum. EBIT var 3.6 milljón evra sem er 2,1% af tekjum [Q2 2013: 12,3 milljónir evra].
- Hagnaður annars ársfjórðungs 2014 nam 0,8 milljónum evra [Q2 2013: 5,2 milljónir evra]. Hagnaður á hlut var 0,10 evru sent [Q2 2013: 0,71 evru sent á hlut].
- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 20,4 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi 2014 [Q2 2013: 25,3 milljónir evra]. Nettó vaxtaberandi skuldir í lok fjórðungsins námu 204,5 milljónum evra [Q2 2013: 228,8 milljónir evra].
- Pantanabók stóð í 156,4 milljónum evra í lok annars ársfjórðungs 2014 samanborið við 138,4 milljónir evra í lok fyrsta ársfjórðungs [Q2 2013: 131,8 milljón evra].
Markaðir Marel hafa þróast með jákvæðum hætti. Með markvissri markaðssókn hefur Marel tryggt gott jafnvægi á milli stærri pantana, pantana á stöðluðum vörum og varahlutum. Rekstrarhagnaður af starfsemi Marel í kjúklingaiðnaði hefur batnað og starfsemi í laxaiðnaði gengur vel.
Áætlun um skýrari rekstraráherslur (e. simpler, smarter and faster) gengur eins og gert var ráð fyrir. Markmiðið er að mæta þörfum viðskiptavina með skilvirkari hætti og draga úr árlegum kostnaði um 20-25 milljónir evra. Á fyrri helmingi ársins hefur tekist að minnka árlegan kostnað um 8 milljónir evra á meðan einskiptiskostnaður nemur 10,7 milljónum evra.
Í byrjun árs tilkynnti Marel að gert væri ráð fyrir 55 milljóná evra leiðréttum rekstrarhagnaði (e. adjusted EBIT) á árinu með innri tekjuvexti. Byggt á stöðu pantana og horfum á mörkuðum er innri vöxtur raunhæfur. Uppfært mat stjórnenda gerir ráð fyrir að leiðréttur rekstrarhagnaður verði 40-50 milljónir evra. Megináhersla er á aukna skilvirkni í markaðssókn og rekstri með það að markmiði að rekstrarhagnaður ársins 2017 verði yfir 100 milljónir evra.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:
„Við erum ánægð með þá áfanga sem náðust á öðrum ársfjórðungi. Rekstrarafkoma Marel batnaði, pantanastaðan er sterk og við höfum tekið markviss skref í hagræðingu rekstrar.
Mótteknar pantanir sem gefa góða vísbendingu um framtiðartekjur námu 188 milljónum evra í ársfjórðungnum. Gott jafnvægi er á milli pantana á stórum kerfum, stöðluðum vörum og varahlutum. Þá er landfræðileg dreifing pantana góð en þær komu m.a. frá Indlandi, Kína, Mið-Austurlöndum og Suður Ameriku til viðbótar við pantanir frá viðskiptavinum okkar í Bandaríkjunum og Evrópu.
1 / 3
Rekstrarniðurstaðan er enn ekki viðunandi. Við vinnum nú að því að gera félagið skilvirkara, skerpa á markaðssókn þess og hámarka nýtingu á framleiðslueiningum okkar. Markmiðið er skýrt - að auka langtímavirði fyrir viðskiptavini og hluthafa.
Hagræðing rekstrar samkvæmt áætlun
Áætlun um skýrari rekstraráherslur var hleypt af stokkunum í upphafi árs og gengur eins og gert var ráð fyrir. Markmiðið er að mæta þörfum viðskiptavina með skilvirkari hætti og draga úr árlegum kostnaði um 20-25 milljónir evra en það mun bæta afkomu félagsins til lengri tíma litið og styðja við vöxt þess og virðisaukningu.
Á fyrri helmingi ársins hefur nú þegar tekist að draga úr árlegum kostnaði sem nemur í kringum 8 milljónir evra samanborið við einskiptiskostnað sem nemur 10,7 milljónum evra fyrir sama tímabil. Á fyrsta ársfjórðungi tókst að draga úr árlegum kostnaði sem nemur 3,6 milljónum evra, sem var sama upphæð og einskiptiskostnaður á tímabilinu. Á öðrum ársfjórðungi tókst að draga úr árlegum kostnaði á bilinu 4-5 milljónir evra á meðan einskiptiskostnaður nam í kringum 7,2 milljónir evra.
Aðgerðir á öðrum ársfjórðungi:
- Endurskipulagning á starfsemi Marel í Hollandi og flutningur á starfsemi frá Oss til Boxmeer. Flutningurinn mun auka skilvirkni og tryggja samþættingu í rekstri, m.a. í framleiðslu og nýsköpun. Stefnt er að því að ljúka flutningnum fyrir lok þessa árs.
- Marel hefur nú lokið við flutning á starfsemi í laxaiðnaði frá Norresundsby til Stovring í Danmörku. Með flutningum næst það markmið að flytja starfsemina í stærra og nýrra húsnæði til þess að vera betur í stakk búin til að mæta framtíðarvexti í iðnaðinum.
- Marel hefur nú keypt þjónustu og varahlutastarfsemi í Danmörku og Svíþjóð af umboðsaðila félagsins. Marel býður nú viðskipavinum sínum á Norðurlöndum heildarframboð á stærri kerfum, stöðluðum vörum og þjónustu sem mun þjóna viðskiptavinum betur og styrkja tekjugrunn félagsins.
Marel mun halda áfram að auka skilvirkni og draga úr kostnaði með því að samþætta einingar sem þjóna sömu þörfum viðskiptavina og byggja á samskonar grunntækni. Framundan er hámörkun á framleiðslueiningunum sem felur í sér aukna áherslu á stærri einingar þar sem mismunandi iðnaðir koma saman undir einu þaki. Þetta mun gera félaginu kleift að auka nýtingu og mæta sveiflum í rekstri með aukinni hagræðingu. Vöruframboð verður einnig endurskoðað og skilvirkni aukin á öllum sviðum til að tryggja að reksturinn endurspegli getu og samkeppnisstöðu félagsins.
Góð verkefnastaða á öðrum ársfjórðungi
Jákvæð þróun hefur orðið á mörkuðum og með markvissri markaðssókn hefur Marel tryggt gott innflæði pantana á öðrum ársfjórðungi. Jafnvægi er á milli stærri pantana og pantana á stöðluðum vörum og varahlutum.
Pantanabókin stendur í 156,4 milljónum evra sem er hækkun um 18 milljónir frá fyrri ársfjórðungi. Nýjar pantanir námu 187,8 milljónum evra samanborið við 160,8 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi og 159,1 milljón evra í sama ársfjórðungi fyrir ári síðan. Á öðrum ársfjórðungi tókst að tryggja pantanir frá öllum heimshornum sem staðfestir að staða Marel er sterk og vöruframboð gott.
Horfur
Í byrjun árs tilkynnti Marel að gert væri ráð fyrir 55 milljóna evra leiðréttum rekstrarhagnaði (e. adjusted EBIT) á árinu með innri tekjuvexti. Byggt á stöðu pantana og útlti á mörkuðum er innri vöxtur raunhæfur. Uppfært mat stjórnenda gerir ráð fyrir að leiðréttur rekstrarhagnaður verði 40-50 milljónir evra. Megináhersla er á aukna skilvirkni í markaðssókn og rekstri með það að markmiði að rekstrarhagnaður ársins 2017 verði yfir 100 milljónir evra.
Til meðal og lengri tíma litið, telur Marel að nýsköpun og sterk markaðsstaða um allan heim í öllum iðnuðum félagsins muni skila góðum vexti og aukinni arðsemi. Framtíðarhorfur eru góðar og gert er ráð fyrir því að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum. Markmið Marel er að halda áfram að vaxa hraðar en markaðurinn.
2 / 3
Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og tímasetningar stærri verkefna.
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasíðu. Marel: www.marel.com/2014Q2. Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins.
Kynningarfundur 24. Júlí 2014
Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 24. júlí kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.
Birtingardagar fyrir reikningsárið 2014
-
- ársfjórðungur 2014 — 22. október 2014
-
- ársfjórðungur 2014 — 4. febrúar 2015
- Aðalfundur 2014 — 4. Mars 2015
Birting fjárhagsupplysinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.
Frekari upplýsingar veita:
Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjárstyringar og fjárfestatengsla. Símar: 563-8464 og 825-8464
Auðbjörg Ólafsdóttir, sérfræðingur í fjárfestatengslum. Símar: 563-8626 og 853-8626
Um Marel
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á hápýðum búnáði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 lóndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.
Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:
Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.
Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.
3 / 3