AI assistant
Marel — Earnings Release 2014
Oct 22, 2014
2191_rns_2014-10-22_304dbea4-ab58-49f9-ab11-f22adda014d3.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
marel
FRÉTTATILKYNNING
- október 2014
Afkoma þriðja ársfjórðungs 2014
(Allar upphæðir í Evrum)
Söluhæsti fjórðungur frá upphafi - Bætt rekstrarniðurstaða
- Tekjur á þriðja ársfjórðungi 2014 námú 187,9 milljónum evra [Q3 2013: 156,9 milljónir evra].
- Leiðrétt EBITDA* á þriðja ársfjórðungi var 25,9 milljónir evra sem er 13,8% af tekjum. EBITDA var 24,6 milljónir evra sem er 13,1% af tekjum [Q3 2013: 19,5 milljónir evra].
- Leiðréttur rekstrarhagnaður* (adj. EBIT) á þriðja ársfjórðungi var 17,4 milljónir evra, sem er 9,3% af tekjum. EBIT var 16,1 milljón evra sem er 8,6% af tekjum [Q3 2013: 12,9 milljónir evra].
- Hagnaður þriðja ársfjórðungs 2014 nám 9,8 milljónum evra [Q3 2013: 6,0 milljónir evra]. Hagnaður á hlut var 1,34 evru sent [Q3 2013: 0,81 evru sent á hlut].
- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nám 29,7 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi 2014 [Q3 2013: 3,0 milljónir evra]. Nettó vaxtaberandi skuldir í lok fjórðungsins námú 191,3 milljónum evra [Q3 2013: 239,0 milljónir evra].
- Pantanabók stóð í 169,2 milljónum evra í lok þriðja ársfjórðungs 2014 samanborið við 156,4 milljónir evra í lok annars ársfjórðungs [Q3 2013: 138,3 milljónir evra].
Mótteknar pantanir á þriðja ársfjórðungi námú 201 milljónum evra. Marel seldi mörg verkefni í tengslum við stækkun og endurnýjun á verksmiðjum viðskiptavina í Evrópu og Bandaríkjunum. Á vaxandi nýmörkuðum á borð við Afríku, Asíu og Suður-Ameríku hefur Marel unnið að uppsetningu fjöldamargra minni og meðalstórra uppbyggingarverkefna (e. Greenfield).
Fyrstu níu mánuði ársins hafa tekjur aukist um 4% frá fyrra ári samhliða því sem rekstrarhagnaður hefur aukist yfir árið. Það sem af er ári nemur leiðréttur rekstrarhagnaður 32,7 milljónum evra. Marel staðfestir áður útgefið mat um að innri tekjuvöxtur náist á árinu með leiðréttum rekstrarhagnaði á bilinu 40-50 milljónir evra. Megináhersla er á aukna skilvirkni í markaðssókn og rekstri með það að markmiði að rekstrarhagnaður ársins 2017 verði yfir 100 milljónir evra.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:
„Þriðji ársfjórðungur var góður fyrir Marel. Við höfum skerpt á markaðssókn samhliða því að taka mikilvæg skref til að auka skilvirkni í rekstri. Sala og tekjur jukust um 20% á milli ára og rekstrarhagnaður hefur farið vaxandi.
Við höfum unnið að endurnýjun og stækkunum á verksmiðjum viðskiptavina okkar í Bandaríkjunum og Evrópu. Við höfum einnig aflað okkur nýrra viðskiptavina á vaxandi nýmörkuðum þar sem við höfum unnið að fjöldamörgum minni og meðalstórum uppbyggingarverkefnum í Afríku, Asíu og Suður-Ameríku.
Það er meðbyr á mörkuðum Marel. Með markvissri markaðssókn og hagræðingaraðgerðum erum við í góðri stöðu til að skapa verðmæti til framtíðar.
*Leiðrétt fyrir einskiptiskostnaði í tengslum við hagræðingaraðgerðir
1 / 3
2 / 3
Hagræðing rekstrar
Áætlun um skýrari rekstraráherslur (e. Simpler, Smarter and Faster Marel) gengur eins og gert var ráð fyrir. Markmiðið er að mæta þörfum viðskiptavina með skilvirkari hætti og draga úr árlegum kostnaði um 20-25 milljónir á tímabilinu 2014-2015.
Flutningur á kjøtiðnaðarstarfsemi Marel frá Oss til Boxmeer í Hollandi gengur samkvæmt áætlun. Boxmeer sinnir nú viðskiptavinum félagsins í kjøti, kjúklingi og frekari vinnslu matvæla. Flutningi á laxaiðnaði Marel til Stovring í Danmörku er nú lokið og frá og með þriðja ársfjörðungi gengur starfsemin þar á auknum afköstum og skilvirkni.
Á fyrstu níu mánuðum ársins var ráðist í aðgerðir sem áætlað er að munu lækka árlegan rekstrarkostnað um 8 milljónir evra. Einskiptiskostnaður tengdur hagræðingaraðgerðum nemur um 12 milljónir evra. Á þriðja ársfjörðungi nemur einskiptiskostnaður 1,3 milljónum evra vegna undirbúnings til að auka enn frekar skilvirkni í framleiðslu félagsins á komandi ársfjörðungum.
Söluhæsti fjórðungur frá upphafi
Nýjar pantanir námu 201 milljónum evra á þriðja ársfjörðungi samanborið við 188 milljónir evra á öðrum ársfjörðungi 2014 og 163,3 milljónir evra í sama ársfjörðungi fyrir ári síðan. Pantanabókin stendur í 169,2 milljónum evra sem er hækkun um 12,8 milljónir frá fyrri ársfjörðungi.
Horfur
Fyrstu níu mánuði ársins hafa tekjur aukist um 4% frá fyrra ári samhliða því sem rekstrarhagnaður hefur aukist á árinu. Það sem af er ári nemur leiðréttur rekstrarhagnaður 32,7 milljónum evra. Marel staðfestir áður útgefið mat um að innri tekjuvöxtur náist á árinu með leiðréttum rekstrarhagnaði á bilinu 40-50 milljónir evra. Megináhersla er á aukna skilvirkni í markaðssókn og rekstri með það að markmiði að rekstrarhagnaður ársins 2017 verði yfir 100 milljónir evra.
Til meðal og lengri tíma litið, telur Marel að nýsköpun og sterk markaðsstaða um allan heim í öllum iðnuðum félagsins muni skila góðum vexti og aukinni arðsemi. Framtiðarhorfur eru góðar og gert er ráð fyrir því að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum. Markmið Marel er að halda áfram að vaxa hraðar en markaðurinn.
Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjörðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í þöntunum og tímasetingar stærri verkefna.
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasiðu Marel: www.marel.com/2014Q3 Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins.
Kynningarfundur 23. október 2014
Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 23. október kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.
Birtingardagar fyrir reikningsárið 2015
-
- ársfjörðungur 2014
- febrúar 2015
- Aðalfundur 2014
- mars 2015
-
- ársfjörðungur 2015
- apríl 2015
-
- ársfjörðungur 2015
- júlí 2015
-
- ársfjörðungur 2015
- október 2015
-
- ársfjörðungur 2015
- febrúar 2016
Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.
Frekari upplýsingar veita:
Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjárstyringar og fjárfestatengsla. Símar: 563-8464 og 825-8464
Auðbjörg Ólafsdóttir, sérfræðingur í fjárfestatengslum. Símar: 563-8626 og 853-8626
Um Marel
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvisu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiskl, kjötí og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.
Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:
Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.
Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.
3 / 3