AI assistant
Marel — Delisting Announcement 2024
Dec 23, 2024
2191_rns_2024-12-23_7c5d31e8-eaef-42bb-a8d9-6e0d117e3f7b.pdf
Delisting Announcement
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
23 December 2024 13:55:00 GMT
marel
Marel: Stjórn óskar eftir afskráningu hlutabréfa hjá Nasdaq Iceland og á Euronext Amsterdam
Stjórn Marel hf. sambykkti á fundi sinum í dag að óska eftir afskráningu hlutabréfa félagsins hjá Nasdaq Iceland og á Euronext Amsterdam, eins fljótt og auðið er í samræmi við reglur sem um það gilda.
Ákvörðun stjórnar fylgir í kjólfar sambykkis hluthafa Marel hf. sem eiga um það bil 97,5% af útgefnum og útistandandi hlutum í félaginu á valkvæðu yfirtökutilboði JBT Corporation, sem tilkynnt var um fóstudaginn 20. desember 2024.
Hlutabréf sameinaðs félags, JBT Marel Corporation (JBTM), verða áfram skráð á New York Stock Exchange (NYSE) og tviskráð á Nasdaq Iceland, en sambykki Nasdaq Iceland á tviskráningu félagsins á markað liggur þegar fyrir. Gert er ráð fyrir að hlutabréf JBTM muni verða tekin til viðskipta á bæði NYSE og Nasdaq Iceland þann 3. janúar 2025.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í sima 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvisu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu. Marel var stofnað árið 1983 og hjá félaginu starfa um 7.100 starfsmenn í yfir 30 lóndum (þar af um 700 starfsmenn á Íslandi) og þjónusta viðskiptavini í yfir 140 lóndum. Lykilmarkaðir félagsins eru í vinnslu alifugla, kjóts, fisks, gæludýrafóðurs, plöntupróteina og fóðurs fyrir fiskeldi. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands og Euronext Amsterdam og skilaði 1,7 milljarði evra í tekjur árið 2023 (257 milljarðar króna), en 46% af heildartekjum koma frá þjónustu og varahlutum. Árlega fjárfestir Marel 5-6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun, eða um 15 milljörðum króna árið 2023, með áherslu á sjálfvirkni, róbóttækni og stafraenar lausnir sem tryggja örugg matvæli sem unnin eru á hagkvæman og sjálfbaran hátt. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.
Viðhengi
Marel: Stjórn óskar eftir afskráningu hlutabréfa hjá Nasdaq Iceland og á Euronext Amsterdam
Marel
Austurhraun 9
IS-210 Gardabaer