AI assistant
Marel — Capital/Financing Update 2023
Jul 17, 2023
2191_rns_2023-07-17_6c07600f-0072-47fb-83fc-a0b58ba16be9.pdf
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning 17 July 2023 20:45:00 GMT
marel
Marel: 700 milljón evra lánalína framlengd og nýtt 150 milljón evra sambankalán undirritað
- Gengið hefur verið frá framlengingu á 700 milljón evra sjálfbærnítengdri lánalínu til tveggja ára, nú með lokagjalddaga í febrúar 2027
- Nýtt 150 milljón evra sambankalán með lokagjalddaga í nóvember 2025, með möguleika á allt að tveggja ára framlengingu, háð sambykki lánveitenda
Marel hefur gengið frá samningi um framlengingu á 700 milljón evra lánalínu til tveggja ára, sem tengd er sjálfbærnimarkmiðum félagsins. Lánasamningurinn var upphaflega til fimm ára með lokagjalddaga 2025, með möguleika á allt að tveggja ára framlengingu. Þessi heimild hefur nú verið nýtt og lánalínan framlengd til tveggja ára, með lokagjalddaga í febrúar 2027.
Til viðbótar hefur Marel undirritað samning um nýtt 150 milljón evra sambankalán sem ber sömu vaxtakjör og gjaldaga og 300 milljón dollara lán sem tilkynnt var um í nóvember 2022. Lánið er á gjaldaga í nóvember 2025 með vilyrði um allt að tveggja ára framlengingu, háðu sambykki lánveitenda.
Hið nýja lán er sambankalán veitt af leiðandi alþjóðlegum bönkum sem hafa fylgt okkur um langt skeið, þ.e. ABN AMRO, BNP Paribas, Danske Bank, HSBC, ING, og Rabobank. Þessi breiði hópur fjármálastofnana fellur vel að alþjóðlegri starfsemi Marel og lánveiting þeirra nú undirstrikar áframhaldandi vilja þeirra og stuðning við starfsemi félagsins til lengri tíma litið.
Stacey Katz, fjármálastjóri Marel:
"Við erum afar þahklát fyrir það traust sem viðskiptabankar félagsins sýna Marel og okkar metnaðarfullu vaxtarmarkmiðum. Nýtt lán, samhliða framlengingu á eldra láni, veitir félaginu aukinn rekstrarlegan sveigjanleika og styður við langtímamarkmið félagsins í núverandi markaðsumhverfi."
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í sima 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvisu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiskí. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvikkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger 2022 myndast fjörða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa um 8.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 800 á Íslandi. Tekjur Marel námu um 1,7 milljarði evra árið 2022 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagín hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvihliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.
Marel
Austurhraun 9
IS-210 Gardabaer
Fréttatilkynning
17 July 2023 20:45:00 GMT
marel
Viðhengi
Marel: 700 milljón evra lánalina framlengd og nýtt 150 milljón evra sambankalán undirritað
Marel | Austurhraun 9 | IS-210 Gardabaer