Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Capital/Financing Update 2023

Jul 17, 2023

2191_rns_2023-07-17_42ed0b70-aca1-4c41-9d92-40d199001840.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Marel: 700 milljón evra lánalína framlengd og nýtt 150 milljón evra sambankalán undirritað

Marel: 700 milljón evra lánalína framlengd og nýtt 150 milljón evra sambankalán undirritað

  • Gengið hefur verið frá framlengingu á 700 milljón evra sjálfbærnitengdri lánalínu til tveggja ára, nú með lokagjalddaga í febrúar 2027
  • Nýtt 150 milljón evra sambankalán með lokagjalddaga í nóvember 2025, með möguleika á allt að tveggja ára framlengingu, háð samþykki lánveitenda

Marel hefur gengið frá samningi um framlengingu á 700 milljón evra lánalínu til tveggja ára, sem tengd er sjálfbærnimarkmiðum félagsins. Lánasamningurinn var upphaflega til fimm ára með lokagjalddaga 2025, með möguleika á allt að tveggja ára framlengingu. Þessi heimild hefur nú verið nýtt og lánalínan framlengd til tveggja ára, með lokagjalddaga í febrúar 2027.

Til viðbótar hefur Marel undirritað samning um nýtt 150 milljón evra sambankalán sem ber sömu vaxtakjör og gjalddaga og 300 milljón dollara lán sem tilkynnt var um í nóvember 2022. Lánið er á gjalddaga í nóvember 2025 með vilyrði um allt að tveggja ára framlengingu, háðu samþykki lánveitenda.

Hið nýja lán er sambankalán veitt af leiðandi alþjóðlegum bönkum sem hafa fylgt okkur um langt skeið, þ.e. ABN AMRO, BNP Paribas, Danske Bank, HSBC, ING, og Rabobank. Þessi breiði hópur fjármálastofnana fellur vel að alþjóðlegri starfsemi Marel og lánveiting þeirra nú undirstrikar áframhaldandi vilja þeirra og stuðning við starfsemi félagsins til lengri tíma litið.

Stacey Katz, fjármálastjóri Marel:

“Við erum afar þakklát fyrir það traust sem viðskiptabankar félagsins sýna Marel og okkar metnaðarfullu vaxtarmarkmiðum. Nýtt lán, samhliða framlengingu á eldra láni, veitir félaginu aukinn rekstrarlegan sveigjanleika og styður við langtímamarkmið félagsins í núverandi markaðsumhverfi.”

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger 2022 myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa um 8.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 800 á Íslandi. Tekjur Marel námu um 1,7 milljarði evra árið 2022 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.

Viðhengi: