Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Capital/Financing Update 2017

Mar 5, 2017

2191_rns_2017-03-05_c4061f23-486f-49f2-9a6f-5bcbd6a8ab8b.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Marel hf. - Veiting kauprétta

Marel hf. - Veiting kauprétta

Stjórn Marel hf. ákvað þann 5. mars 2017 að veita framkvæmdastjórn félagsins
kauprétti að allt að 3,2 milljónum hluta í félaginu.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins
til lengri tíma. Meginefni nýja kaupréttarkerfisins var samþykkt á aðalfundi
Marel sem haldinn var 2. mars 2017, í samræmi við starfskjarastefnu félagsins
sem samþykkt var á sama fundi. Sex meðlimir framkvæmdastjórnar Marel fá sama
magn kauprétta eða 200 þúsund hluti, þá fá yfirmenn alifugla- og kjötiðnaða 300
þúsund hluti, fjármálastjóri og yfirmaður stefnumótunar og þróunar fá 400
þúsund hluti og forstjóri fær 600 þúsund hluti.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

-- Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 2,779 á hlut [1].
Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá
útgáfudegi kaupréttanna.
-- Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að
nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu
ársfjórðungsuppgjöra. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast þegar eftir
birtingu fyrsta ársfjórðungsuppgjörs ársins 2020. Kaupréttarhafar geta
frestað nýtingu á kaupréttum sínum til ársins 2021, þegar samningarnir
renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
-- Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir því sem nemur
fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum þegar skattar hafa verið dregnir
frá, og halda þeim bréfum til starfsloka hjá Marel.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum
sínum nemur nú alls 11,8 milljónum evra, sem nemur um 1,6% hlutafjár í
félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður
félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 1,7
milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:

Nafn Staða Nýr Áður Hlutafjár Hlutafjáreign
kaupré úthlutaður, eign fjárhagslega
ttur ónýttur innherja tengdra aðila
kaupréttur
Árni Forstjóri 600.000 360.000 64.634 67.235
Oddur
Þórðars
on

Linda Fjármálastjóri 400.000 725.000 62.500 0
Jónsdót
tir

Árni Yfirmaður 400.000 605.000 0 100.000
Sigurðs stefnumótunar og
son þróunar

Anton de Yfirmaður 300.000 731.000 0 0
Weerd alifuglaiðnaðar

David Yfirmaður 300.000 689.000 27.300 0
Wilson kjötiðnaðar

Sigurður Yfirmaður 200.000 605.000 0 0
Ólason fiskiðnaðar

Jesper Yfirmaður frekari 200.000 12.000 0 0
Hjortsh vinnslu
øj

Davíð Yfirmaður 200.000 665.000 75.000 0
Freyr mannauðsmála
Oddsson

Paul van Yfirmaður 200.000 665.000 0 0
Warmerd alþjóðlegrar
am framleiðslu- og
aðfangastýringar

Pétur Yfirmaður 200.000 920.000 219.430 0
Guðjóns viðskipta- og
son sölusviðs

Viðar Yfirmaður 200.000 725.000 0 0
Erlings alþjóðlegrar
son nýsköpunar og
þróunar

[1] Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á
NASDAQ OMX Iceland hf. þann 3. mars 2017, þ.e. ISK 314,00 á hlut, umreiknað með
miðgengi Seðlabanka Íslands sama dag: EUR/ISK: 113,00