AI assistant
Marel — Capital/Financing Update 2016
May 3, 2016
2191_rns_2016-05-03_3b142373-f66a-4bee-b2eb-8ec91998b6ef.html
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Marel hf. - Veiting kauprétta
Marel hf. - Veiting kauprétta
Stjórn Marel hf. ákvað þann 3. maí 2016 að veita framkvæmdastjórn félagsins
kauprétti að allt að 2,2 milljónum hluta í félaginu.
Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins
til lengri tíma. Er þetta í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem
samþykkt var á síðasta aðalfundi Marel í mars 2016. Allir meðlimir
framkvæmdastjórnar Marel fá sama magn kauprétta eða 180 þúsund hluti að
forstjóra undanskildum en hann fær 360 þúsund hluti.
Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:
-- Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 1,795 á hlut [1] sem
hækkar árlega um 2% (e. hurdle rate). Verðið skal leiðrétt fyrir
arðgreiðslum sem kunna að verða greiddar frá útgáfudegi kaupréttanna.
-- Kaupréttirnir verða virkir í þrennu lagi, fyrst verða 60% kaupréttanna virk
í apríl 2019, síðan 20% í apríl 2020 og loks 20% í apríl 2021. Heimilt
verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir
birtingu ársfjórðungsuppgjöra. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á
kaupréttum sínum til ársins 2022, þegar samningarnir renna út og falla þá
ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
-- Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir u.þ.b. 45% af
hagnaði, fyrir skatta og kostnað, af innleystum kaupréttum og halda þeim
bréfum til starfsloka hjá Marel.
Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum
sínum nemur nú alls 11,5 milljónum, sem nemur um 1,6% hlutafjár í félaginu, og
er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna
nýju samninganna á næstu fimm árum er áætlaður um 660 þúsundir evra og er þá
byggt á reiknilíkani Black-Scholes.
Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:
Nafn Staða Nýr Fyrri og Hlutafjár Hlutafjáreign
kaupré ónýttur eign fjárhagslega
ttur kaupréttur innherja tengdra aðila
Árni Forstjóri 360.000 0 64.634 67.235
Oddur
Þórðars
on
Linda Fjármálastjóri 180.000 545.000 62.500 0
Jónsdót
tir
Anton de Yfirmaður 180.000 740.000 0 0
Weerd kjúklingaiðnaðar
Remko Yfirmaður 180.000 0 0 5.630.718
Rosman kjötiðnaðar
Sigurður Yfirmaður 180.000 425.000 0 0
Ólason fiskiðnaðar
David Yfirmaður frekari 180.000 635.000 0 0
Wilson vinnslu
Árni Yfirmaður 180.000 425.000 0 100.000
Sigurðs stefnumótunar og
son þróunar
Davíð Yfirmaður 180.000 485.000 75.000 0
Freyr mannauðsmála
Oddsson
Paul van Yfirmaður 180.000 485.000 0 0
Warmerd alþjóðlegrar
am framleiðslu- og
aðfangastýringar
Pétur Yfirmaður viðskipta- 180.000 740.000 219.430 0
Guðjóns og sölusviðs
son
Viðar Yfirmaður 180.000 545.000 0 0
Erlings alþjóðlegrar
son nýsköpunar og
þróunar
[1] Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á
NASDAQ OMX Iceland hf. þann 3. maí 2016, þ.e. ISK 251,50 á hlut, umreiknað með
miðgengi Seðlabanka Íslands sama dag: EUR/ISK: 140,12