AI assistant
Marel — Capital/Financing Update 2015
Aug 4, 2015
2191_rns_2015-08-04_46bd5499-f885-4f52-9d1a-0603c379cf0f.html
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Marel hf. - Veiting kauprétta
Marel hf. - Veiting kauprétta
Stjórn Marel hf. ákvað þann 4. ágúst 2015 að veita framkvæmdastjórn félagsins,
að forstjóra undanskildum, kauprétti að allt að 2,2 milljónum hluta í félaginu.
Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins
til lengri tíma. Er þetta í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem
samþykkt var á síðasta aðalfundi Marel í mars 2015. Allir meðlimir
framkvæmdastjórnar Marel að forstjóra undanskildum fá sama magn kauprétta eða
200 þúsund hluti.
Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:
-- Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 1,346 á hlut
[1]
sem hækkar árlega um 3% (e. hurdle rate). Verðið skal leiðrétt fyrir
arðgreiðslum sem kunna að verða greiddar frá útgáfudegi kaupréttanna.
-- Kaupréttirnir verða virkir í þrennu lagi, fyrst verða 60% kaupréttanna virk
í október 2018, síðan 20% í október 2019 og loks 20% í október 2020.
Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október.
Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til ársins 2021,
þegar samningarnir renna út og falla þá virkir en ónýttir kaupréttir niður
á sama tíma.
-- Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir því sem næst nettó
hagnað (eftir skatta og kostnað) af innleystum kaupréttum og halda þeim
bréfum til starfsloka hjá Marel.
Heildarfjöldi hluta sem Marel hf. hefur nú veitt starfsmönnum sínum kauprétt að
eru 11,5 milljónir, sem nemur um 1,6% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin
þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju
samninganna á næstu fimm árum er áætlaður um 488 þúsund evra og er þá byggt á
reiknilíkani Black-Scholes.
Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:
Nafn: Staða: Nýr Fyrri og Eignarhluti í eigin
kaupré ónýttur nafni og eða tengdra
ttur kaupréttur aðila
Anton de Yfirmaður 200.000 540.000 0
Weerd kjúklingaiðnaðar
Árni Yfirmaður stefnumótunar 200.000 225.000 100.000
Sigurðss og þróunar
on
Davíð Yfirmaður mannauðsmála 200.000 285.000 50.000
Freyr
Oddsson
David Yfirmaður kjötiðnaðar 200.000 435.000 0
Wilson
Gerrit Yfirmaður frekari 200.000 435.000 0
den Bok vinnslu
Linda Fjármálastjóri 200.000 345.000 62.500
Jónsdótt
ir
Paul van Yfirmaður alþjóðlegrar 200.000 285.000 0
Warmerda framleiðslu- og
m aðfangastýringar
Pétur Yfirmaður alþjóðlegrar 200.000 540.000 219.430
Guðjónss sölu og þjónustu
on
Sigsteinn Aðstoðarforstjóri 200.000 675.000 25.997
Grétarss
on
Sigurður Yfirmaður fiskiðnaðar 200.000 225.000 0
Ólason
Viðar Yfirmaður alþjóðlegrar 200.000 345.000 0
Erlingss nýsköpunar og þróunar
on
[1] Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ
OMX Iceland hf. þann 4. ágúst 2015, þ.e. ISK 198,00 á hlut, umreiknað með
miðgengi Seðlabanka Íslands sama dag: EUR/ISK: 147,08.