AI assistant
Marel — Capital/Financing Update 2014
Dec 3, 2014
2191_rns_2014-12-03_88f21197-4ab0-4afe-bcc3-d16bee2f0cda.html
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Marel hf. – Veiting kauprétta
Marel hf. – Veiting kauprétta
Stjórn Marel hf. ákvað þann 2. desember 2014 að veita framkvæmdastjórn
félagsins kauprétti á allt að 2,5 milljónum hluta í félaginu.
Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins
til lengri tíma. Er þetta í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem
samþykkt var á síðasta aðalfundi Marel í mars 2014. Allir meðlimir
framkvæmdastjórnar Marel að forstjóra undanskildum fá sama magn kauprétta eða
225 þúsund.
Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:
-- Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 0,8613 á hlut [1]
sem hækkar árlega um 3% (e. hurdle rate). Verðið skal leiðrétt fyrir
arðgreiðslum sem kunna að verða greiddar frá útgáfudegi kaupréttanna.
-- Kaupréttirnir verða virkir í þrennu lagi, fyrst verða 60% kaupréttanna virk
í apríl 2018, síðan 20% í apríl 2019 og loks 20% í apríl 2020. Heimilt
verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október.
Starfsmenn geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til ársins 2021, þegar
samningarnir renna út og falla þá virkir en ónýttir kaupréttir niður á sama
tíma.
-- Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir nettó hagnað (eftir
skatta og kostnað) af innleystum kaupréttum og halda þeim bréfum til
starfsloka hjá Marel.
Heildarfjöldi hluta sem Marel hf. hefur nú veitt starfsmönnum sínum kauprétt að
eru 16,9 milljónir og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta.
Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu fimm árum er áætlaður
um 346 þúsund evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.
Árni Sigurðsson yfirmaður stefnumótunar og þróunar tekur nú sæti í
framkvæmdastjórn félagsins.
Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn.
Nafn: Staða: Nýr Fyrri og Eignarhluti í eigin
kaupré ónýttur nafni og eða
ttur kaupréttur tengdra aðila
Anton de Yfirmaður 225.000 665.000 0
Weerd Kjúklingaiðnaðar
Árni Yfirmaður stefnumótunar 225.000 0 0
Sigurdss og þróunar
on
Davíð Yfirmaður mannauðsmála 225.000 60.000 50.000
Freyr
Oddsson
David Yfirmaður Iðnaðarseturs 225.000 260.000 0
Wilson kjöts
Gerrit Yfirmaður Iðnaðarseturs 225.000 335.000 0
Den Bok frekari vinnslu
Linda Fjármálastjóri 225.000 182.500 0
Jónsdótt
ir
Paul van Yfirmaður alþjóðlegrar 225.000 60.000 0
Warmerda framleiðslu-og
m aðfangastýringar
Pétur Yfirmaður alþjóðlegrar 225.000 665.000 159.430
Guðjónss sölu og þjónustu
on
Sigsteinn Aðstoðarforstjóri 225.000 537.500 25.997
Grétarss
on
Viðar Yfirmaður alþjóðlegrar 225.000 132.500 0
Erlingss nýsköpunar og þróunar
on
[1] Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ
OMX Iceland hf. þann 2. Desember 2014, þ.e. ISK 132,50 á hlut, umreiknað með
miðgengi Seðlabanka Íslands fyrir EUR/ISK: 153,83.