AI assistant
Marel — Capital/Financing Update 2014
Dec 30, 2014
2191_rns_2014-12-30_0f19a359-6d7d-4e9f-b644-3f931a58c350.html
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Marel framlengir fjármögnun og eykur svigrúm í lánalínum
Marel framlengir fjármögnun og eykur svigrúm í lánalínum
Marel hefur samið um framlengingu og breytingu á langtímafjármögnun félagsins
sem felur í sér aukið svigrúm í lánalínum með nýju greiðsluvíkjandi (e. junior)
láni að upphæð 50 milljónir evra. Þessar breytingar auka sveigjanleika í
rekstri og styðja við langtímastefnu félagsins.
Alþjóðlegu bankarnir ABN AMRO, ING Bank, Landsbankinn, Bayern LB og Rabobank
standa saman að fjármögnuninni og gengið verður frá skjalagerð á næstu vikum.
• Lánið að fjárhæð 350 milljónir evra var upphaflega tekið í nóvember 2010 og
eftirstöðvar lánsins í byrjun árs 2015 eru 300 milljónir evra.
• Nýr lokagjalddagi á hefðbundnu (e. senior) láni og ádráttarláni (e. revolver)
verður í nóvember 2018.
• Nýtt greiðsluvíkjandi (e. junior) sambankalán er tekið að upphæð 50 milljónir
evra með lokagjalddaga í febrúar 2019.
• Núverandi vaxtaálag á hefðbundnu (e. senior) sambankaláni er EURIBOR/LIBOR +
250 bps og á greiðsluvíkjandi (e. junior) sambankaláni er EURIBOR/LIBOR + 500
bps, sem breytist með skuldsetningarhlutfalli félagsins.
Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri Marel:
„Við erum þakklát fyrir það traust sem viðskiptabankar félagsins sýna okkur.
Framlenging og viðbótar fjármögnun eykur sveigjanleika í rekstri félagsins,
styður við áframhaldandi vöxt og virðisaukningu.“