Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Board/Management Information 2024

Jan 16, 2024

2191_rns_2024-01-16_ab5a2cdb-d2eb-40fb-b054-d5aec654c438.pdf

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning 16 January 2024 16:30:00 GMT

marel

Marel: Linda Jónsdóttir lætur af störfum sem framkvæmdastjóri rekstrar

Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar (e. Chief Operating Officer), hefur ákveðið að láta af störfum hjá Marel. Staðan verður í kjólfarið lögð niður og verkefni færast á aðra stjórnendur í fyrirtækinu. Linda mun vera stjórnendum innan handar til að tryggja örugga samfellu í yfirfærslu verkefna innan félagsins.

Linda hefur starfað hjá Marel frá árinu 2009, fyrst sem yfirmaður fjárstýringar og fjárfestatengsla þar til hún tók við starfi fjármálastjóra árið 2014 og hefur verið í núverandi starfi frá árinu 2022.

Árni Sigurðsson, forstjóri Marel:

„Ég vil þakka Lindu Jónsdóttur kærlega fyrir hennar mikilvæga framlag á fimmtán ára ferli sinum hjá Marel. Linda hefur verið lykilmanneskja í framkvæmdastjórn félagsins og átt mikilvægan þátt í vexti og framþróun félagsins undanfarin ár. Við hjá Marel óskum henni alls hins besta og farsældar í hennar framtíðarverkefnum.“

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í sima 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvisu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjóti og fiskí. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvikkað starfsemi sina. Með kaupunum á Wenger 2022 myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa um 8.000 manns í yfir 30 löndum. Tekjur Marel námu um 1,7 milljarði evra árið 2022 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagín hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvihlíða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.

Viðhengi

Marel: Linda Jónsdóttir lætur af störfum sem framkvæmdastjóri rekstrar

Marel

Austurhraun 9

IS-210 Gardabaer