Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Board/Management Information 2023

Nov 7, 2023

2191_rns_2023-11-07_22af4d3d-68c6-4a25-acf5-abed9531f2c0.pdf

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Fréttatilkynning

07 November 2023 18:29:00 GMT

Marel

Marel: Árni Sigurðsson nýr forstjóri Marel

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, hefur óskað eftir því að láta af störfum frá og með deginum í dag vegna persónulegra ástæðna. Stjórn félagins hefur fallist á starfslókin og tekur Árni Sigurðsson, sem gegnt hefur starfi aðstoðarforstjóra Marel, við starfi forstjóra timabundið á meðan stjórn mun finna félaginu forstjóra til framtíðar.

Árni Sigurðsson hefur starfað hjá Marel frá árinu 2014, fyrst sem yfirmaður stefnumótunar og þróunar, síðar framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga, og hefur síðastliðið ár gegnt stöðu aðstoðarforstjóra félagsins og leitt tekjusvið þess. Áður en hann gekk til liðs við Marel starfaði Árni hjá AGC Partners og Landsbankanum. Árni er með MBA gráðu frá Harvard Business School og BSc gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Arnar Þór MÁSSON, STJÓRNAFformaður Marel:

„Stjórn Marel vill þakka Árna Oddi Þórðarsyni innilega fyrir hans mikilvæga framlag til vaxtar og velgengni Marel síðustu 10 ár sem forstjóri og þar áður sem stjórnarformaður í 8 ár. Skýr framtíðarsýn hans og metnaður fyrir því að umbreyta matvælaiðnaði á heimsvisu hefur verið leiðarljós í stefnu Marel. Stjórnir er ánægð að geta leitað til Árna Sigurðssonar til að taka timabundið við hlutverki forstjóra og tryggja þannig samfellu í rekstri gagnvart viðskiptavinum og áframhaldandi sókn í samræmi við vaxtarstefnu félagsins. Hann hefur fullt traust stjórnar til að leiða Marel áfram á þeirri braut sem mórkuð hefur verið til frekari virðisaukningar.“

Árni Sigurðsson, forstjóri Marel:

„Það er mér heiður að fá að leiða ókkar frábæra teymi í Marel til áframhaldandi samstarfs við viðskiptavini ókkar á heimsvisu. Í störfum minum fyrir Marel hef ég unnið þvert á tekjusvið og rekstrareiningar félagsins í hartnær áratug og hef mikla trú á þeim tækifærum, tækni og mannauði sem Marel býr að til að umbreyta matvælaiðnaði á heimsvisu. Við höfum tekið mikilvæg skref í átt að betri árangri og við erum á réttri leið. Ég hlakka mikíð til að starfa nánar með ókkar frábæra starfsfólki, viðskiptavinum og öðrum hagaðilum á komandi víkum og varða veginn til áframhaldandi vaxtar.“

Árni Oddur Þórðarson, fráfarandi forstjóri Marel:

„Mér er efst í huga þakklaeti til allra þeirra metnaðarfullu starfsmanna, framsýnu viðskiptavina og fjölmórgu hluthafa sem ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að starfa með, fyrst sem stjórnarformaður og nú síðustu 10 ár sem forstjóri félagsins. Saman höfum við tekist á við áskoranir, gripið tækifæri og styrkt samkeppnisstöðu Marel, skref fyrir skref. Mikilvægast er að félagið er vel í stakk búið til frekari sóknar.“

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í sima 563 8001.

Marel

Austurhraun 9

IS-210 Gardabaer


Fréttatilkynning

07 November 2023 18:29:00 GMT

marel

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er i fararbroddi á heimsvisu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjóti og fiskí. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvikkað starfsemi sina. Með kaupunum á Wenger 2022 myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa um 8.000 manns í yfir 30 löndum. Tekjur Marel námu um 1,7 milljarði evra árið 2022 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvihlíða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.

Viðhengi

Marel: Árni Sigurðsson nýr forstjóri Marel

Marel

Austurhraun 9

IS-210 Gardabaer