AI assistant
Marel — Board/Management Information 2023
Dec 11, 2023
2191_rns_2023-12-11_c553a53a-9873-40b8-8c3a-3f0413556a59.pdf
Board/Management Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
11 December 2023 16:55:00 GMT
marel
Marel: Árni Sigurðsson ráðinn forstjóri Marel
Marel tilkynir um ráðningu Árna Sigurðssonar sem forstjóra félagsins og tekur hann við störfum þegar í stað.
Árni Sigurðsson tók við starfi aðstoðarforstjóra og yfirmanns tekjusviða í nóvember 2022, og þann 7. nóvember á þessu ári tók Árni timabundið við sem forstjóri félagsins. Árni hefur starfað hjá Marel frá árinu 2014, fyrst sem yfirmaður stefnumótunar og þróunar, og síðar framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga. Áður starfaði Árni fyrir AGC Partners í London og hjá fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans. Árni er með MBA gráðu frá Harvard Business School og BSc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
Arnar Þór Måsson, stjórnarformaður Marel:
„Það er stjórn Marel ánægjuefni að tilkynna um ráðningu Árna Sigurðssonar sem forstjóra Marel, að undangengnu ráðningarferli sem staðið hefur yfir undanfarnar víkur. Ég hef starfað náið með Árna síðustu ár og fylgst með honum vaxa sem stjórnanda og leiðtoga innan samstæðu Marel, nú síðast í starfi timabundins forstjóra sem hann hefur leyst farsællega. Við í stjórn Marel erum sammála um að yfirgripsmikil þekking Árna á starfsemi félagsins og alþjóðleg reynsla séu lykilþættir í hæfni hans og sýn til að leiða félagir í gegnum núverandi áskoranir og til frekari sóknar, og ná fram þeirri verðmætaskópum sem í félaginu býr til hagsbóta fyrir hluthafa félagsins og aðra hagaðila.“
Árni Sigurðsson, forstjóri Marel:
„Þegar ég hóf störf hjá Marel árið 2014 urðu mér ljós þau stóru tækifæri sem fólust í viðskiptamódeli félagsins og ekki síður þau gríðarlega jákvæðu áhrif sem við getum haft á virðiskeðju matvæla í heiminum. Ég er virkilega stoltur af þeim árangri sem við höfum náð síðasta áratug. Tækifærin framundan eru ekki síður spennandi, og ég mun nota tímann vel næstu mánuði til að meta næstu skref í þeim sóknarfærum. Ég tek stoltur við forstjórakeflinu og hlakka til að starfa náið með samstarfsfólki minu, viðskiptavinum og óðrum hagaðilum til að tryggja áframhaldandi framþróun og verðmætaskópum Marel, sem umbyltir matvælavinnslu í heiminum.“
Sé misræmi milli íslenskrar og enskrar útgáfu tilkynningarinnar gildir sú enska.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í sima 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvisu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiskí. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvikkað starfsemi sina. Með kaupunum á Wenger 2022 myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa um 8.000 manns í yfir 30 löndum. Tekjur Marel námu um 1,7 milljarði evra árið 2022 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýskópum og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfðæmi í matvælavinnslu. Félagín hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvihlíða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.
Marel
Austurhraun 9
IS-210 Gardabaer
Fréttatilkynning
11 December 2023 16:55:00 GMT
marel
Viðhengi
Marel: Árni Sigurðsson ráðinn forstjóri Marel
Marel | Austurhraun 9 | IS-210 Gardabaer