Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Board/Management Information 2014

Oct 27, 2014

2191_rns_2014-10-27_6f9cf1ad-3727-47fd-91fa-79d9d13d7993.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

Linda Jónsdóttir er nýr fjármálastjóri Marel

Linda Jónsdóttir er nýr fjármálastjóri Marel

Linda Jónsdóttur hefur verið ráðinn sem nýr fjármálastjóri Marel og mun hún
taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Linda hefur verið yfirmaður
fjárstýringar og fjárfestatengsla frá árinu 2009.

Erik Kaman sem hefur verið fjármálastjóri Marel síðan 2008 verður félaginu til
ráðgjafar til 1. mars 2015.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel:
„Ég vil þakka Erik Kaman fyrir framlag hans til félagsins á undanförnum árum og
jafnframt bjóða Lindu velkomna sem nýjan fjármálastjóra. Linda hefur sýnt mikla
leiðtogahæfileika í fyrri forystustörfum sínum fyrir Marel. Ég er fullviss um
að hún muni styrkja framkvæmdastjórnina. Verkefnið framundan er að aðlaga
rekstur að settum markmiðum“.

Linda Jónsdóttir er 36 ára gömul og er viðskiptafræðingur (Cand. Oecon) frá
Háskóla Íslands með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í
Reykjavík. Áður starfaði hún við fjárstýringu og fjármögnun hjá Eimskip,
Burðarási og Straumi fjárfestingabanka. Linda hefur setið í stjórn
Framtakssjóðs Íslands frá árinu 2010.

Í kjölfar þessara breytinga verður Auðbjörg Ólafsdóttir yfirmaður
fjárfestatengsla og samskipta hjá Marel og Bjarki Björnson verður yfirmaður
fjárstýringar og fjármögnunar.

Auðbjörg Ólafsdóttir hóf störf sem sérfræðingur í fjárfestatengslum hjá Marel
á síðasta ári. Hún er hagfræðingur og stjórnmálafræðingur að mennt. Áður
starfaði Auðbjörg hjá Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, Greiningu
Íslandsbanka og sem blaðamaður hjá Reuters og Viðskiptablaðinu.

Bjarki Björnsson hóf störf sem sérfræðingur í fjárstýringu hjá Marel árið
2011. Hann er með meistaragráðu í fjárfestingastjórnun frá Háskólanum í
Reykjavík og B.Sc. gráðu í Viðskiptafræði frá sama skóla. Áður starfaði Bjarki
hjá SP-Fjármögnun í fjárstýringu.