Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kvika banki M&A Activity 2017

Mar 28, 2017

2199_rns_2017-03-28_c193c7b4-e4dc-438a-97fc-3731470b4058.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kvika banki hf.: Hætt við sameiningu Virðingar og Kviku

Kvika banki hf.: Hætt við sameiningu Virðingar og Kviku

Tilkynning

                                                    Reykjavík, 28. mars 2017



                 Hætt við sameiningu Virðingar og Kviku

Stjórnir Virðingar hf. og Kviku banka hf. hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að
slíta viðræðum um sameiningu félaganna. Ákvörðun um að enda samrunaferlið, sem
hófst formlega 28. nóvember síðastliðinn, er tekin að vel ígrunduðu máli og er
það sameiginlegt álit stjórna beggja félaganna að fullreynt sé. Starfsfólk
Virðingar og Kviku hefur lagt hart að sér við undirbúning samrunans og hefur sú
vinna gengið afar vel þrátt fyrir þessa niðurstöðu.

Nánari upplýsingar veita:
Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður Kviku banka hf. í síma 540 3200.
Kristín Pétursdóttir, stjórnarformaður Virðingar hf. í síma 565 8500.

Um Kviku

Kvika er sérhæfður fjárfestingabanki sem sinnir þörfum viðskiptavina á
afmörkuðum syllum með fagþekkingu og sérhæfðu vöruframboði. Burðarás Kviku er
öflug eignastýring og bankinn veitir sparifjár- og innlánseigendum alhliða
þjónustu. Hjá samstæðu Kviku starfar samhentur hópur 86 sérfræðinga sem nær
árangri í krafti menntunar, markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu. Forstjóri er
Sigurður Atli Jónsson og formaður stjórnar er Þorsteinn Pálsson. Eignarhald
Kviku er gagnsætt og er hann eini bankinn sem er að nær fullu í eigu einkaaðila
s.s. lífeyrissjóða, fyrirtækja og einstaklinga. Nánar á: www.kvika.is.

Um Virðingu

Virðing er alhliða verðbréfafyrirtæki sem veitir fjárfestingatengda þjónustu á
sviði eignastýringar, markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar og reksturs
framtakssjóða. Hjá Virðingu starfa 34 sérfræðingar og hefur félagið starfsleyfi
sem verðbréfafyrirtæki og starfar undir eftirliti FME. Virðing er með ríflega
100 milljarða króna í eignastýringu og starfsemi í Borgartúni 29 í Reykjavík.
Forstjóri félagsins er Hannes Frímann Hrólfsson og formaður stjórnar er Kristín
Pétursdóttir. Nánar á www.virding.is

[]