Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kvika banki M&A Activity 2017

Jun 30, 2017

2199_rns_2017-06-30_ca7e960f-a82c-4bc4-a77a-411168714a15.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kvika banki hf.: Kvika banki hf. kaupir allt hlutafé í Virðingu hf.

Kvika banki hf.: Kvika banki hf. kaupir allt hlutafé í Virðingu hf.

                                                    Reykjavík, 30. júní 2017

           Kvika banki hf. kaupir allt hlutafé í Virðingu hf.

Eigendur 96,69% hlutafjár í Virðingu hafa samþykkt tilboð stjórnar Kviku í
hlutafé fyrirtækisins, en skilyrði var að tilboðið yrði samþykkt af eigendum
meira en 90% hlutafjár. Kaupverð nemur 2.560 milljónum króna og verður greitt
með reiðufé. Kaupin eru áfram háð samþykki á hluthafafundi Kviku og samþykkis
eftirlitsstofnana.

Stefnt er að því að sameina félögin undir nafni Kviku. Með sameiningu Kviku og
Virðingar verður til öflugt fjármálafyrirtæki sem er leiðandi á
fjárfestingabankamarkaði. Sameinað félag verður eitt það umsvifamesta í
eignastýringu á Íslandi með um 235 milljarða króna í stýringu og fjölda sjóða í
rekstri.

Nánari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður Kviku banka hf. í síma 540 3200.

Um Kviku banka hf.
Kvika er eini sjálfstæði og sérhæfði fjárfestingabanki landsins. Bankinn sinnir
þörfum viðskiptavina á afmörkuðum syllum með fagþekkingu og sérhæfðu
vöruframboði. Burðarás Kviku er öflug eignastýring og veitir bankinn sparifjár-
og innlánseigendum alhliða fjármálaþjónustu.

Hjá Kviku starfar samhentur hópur 86 sérfræðinga sem nær árangri í krafti
menntunar, markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu. Eignarhald Kviku er gagnsætt
og er hann eini bankinn sem er að fullu í eigu einkaaðila s.s. lífeyrissjóða,
fyrirtækja og einstaklinga. Forstjóri bankans er Ármann Þorvaldsson og formaður
stjórnar Þorsteinn Pálsson. Nánar á: www.kvika.is.

[]