Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kvika banki M&A Activity 2017

Sep 29, 2017

2199_rns_2017-09-29_a86ac0b7-f8a9-4876-88d4-e91bca529997.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kvika banki hf.: Stjórnir Kviku banka hf. og Virðingar hf. samþykkja samruna og stefnt er að skráningu á Nasdaq First North

Kvika banki hf.: Stjórnir Kviku banka hf. og Virðingar hf. samþykkja samruna og stefnt er að skráningu á Nasdaq First North

Stjórnir Kviku banka hf. og Virðingar hf. hafa samþykkt áætlun um samruna
félaganna undir nafni Kviku og miðast samruninn við 30. júní 2017.  Kaup Kviku á
öllu hlutafé Virðingar voru samþykkt af Fjármálaeftirlitinu þann 6. september
2017 og hefur allt hlutafé Virðingar hf. verið afhent.

Samruni félaganna er háður samþykki Fjármálaeftirlitsins en vonir standa til
þess að samruninn gangi í gegn fyrir áramót.

Þá hefur stjórn Kviku samþykkt að stefnt skuli að skráningu hlutabréfa bankans á
Nasdaq First North. Unnið verður að skráningu á næstu vikum og er áætlað að
henni ljúki fyrir árslok.

Með sameiningu Kviku og Virðingar verður til öflugt fjármálafyrirtæki sem er
leiðandi á fjárfestingabankamarkaði. Sameinað félag verður eitt það umsvifamesta
í eignastýringu á Íslandi með um 235 milljarða króna af eignum í stýringu og
fjölda sjóða í rekstri.

Nánari upplýsingar veitir:

Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður Kviku banka hf. í síma 540 3200.

[]