Earnings Release • May 7, 2025
Earnings Release
Open in ViewerOpens in native device viewer

Á stjórnarfundi þann 7. maí 2025 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. ("Kvika") fyrir fyrsta ársfjórðung 2025.
• Afkoma eigna haldið til sölu eftir skatta samanstendur af hagnaði af sölu TM trygginga hf. auk tengdra tekna og kostnaðar.

hluthafafundar fyrir sérstakri arðgreiðslu sem ekki hafði verið greidd út. Arðgreiðslan er færð sem ógreidd arðgreiðsla meðal annarra skulda.
"Rekstur bankans gekk vel á fyrsta ársfjórðungi, að teknu tilliti til einskiptisliða. Hreinar vaxtatekjur jukust um fjórðung en kostnaður jókst minna og má þar nefna að launakostnaður jókst um tæp 5%. Annar kostnaður jókst hins vegar á milli ára og litaðist meðal annars af kostnaði sem féll til við sölu á TM.
Gengið var endanlega frá sölu á tryggingafélaginu TM til Landsbankans. Stór hluti söluandvirðis TM, sem nam rúmlega 32 milljörðum króna, var greiddur út til hluthafa með arðgreiðslu og kaupum á eigin hlutabréfum. Verulegur hlutur situr hins vegar eftir sem eigið fé í bankanum og mun leggja grunninn að vexti bankans á næstu árum.
Þá var lokið endanlega við kaup á hlut stjórnenda í Ortus Secured Finance og á bankinn nú allt hlutafé í félaginu. Þessi kaup gera okkur kleift að samþætta bresku starfsemina okkar, lækka kostnað, endurfjármagna óhagkvæmari erlendar skuldir og leggja grunninn að frekari vexti í Bretlandi.
Einskiptisliðir vegna þessara viðskipta höfðu umtalsverð áhrif á rekstrartölur bankans á ársfjórðungnum, en ef horft er framhjá þeim liðum, var afkoma af reglubundinni starfsemi fyrir skatta prýðileg.
Mikil aukning var á hreinum vaxtatekjum á milli ára, eða sem nemur rúmlega 25%. Aukninguna má rekja til stækkunar lánabókar, lækkunar fjármagnskostnaðar og tímabundið hárrar lausafjárstöðu í kjölfar sölu á TM, sem lækkaði aftur í kjölfar arðgreiðslu í apríl. Sá hluti söluverðsins, sem eftir situr í bankanum, mun hins vegar skila áfram ávöxtun og því má ætla að vaxtatekjur verði áfram sterkar.
Þóknanatekjur og fjárfestingatekjur báru merki erfiðrar tíðar á verðbréfamörkuðum og þar varð lítillegur samdráttur á milli ára. Þá hefur gengið ágætlega að halda aftur af kostnaðaraukningu, ef horft er fram hjá einskiptisliðum, og fjöldi starfsfólks er óbreyttur frá síðasta ársfjórðungi.
Kvika er nú í öfundsverðri stöðu til að sækja fram og vaxa, líkt og áætlanir bankans gera ráð fyrir. Bankinn er með afar sterka eiginfjár- og lausafjárstöðu eftir söluna á TM og stöðugar vaxtatekjur hafa komið í stað sveiflukenndari tekna af tryggingastarfsemi. Innviðir bankans, sem hafa verið aðlagaðir að brottför TM úr samstæðunni, eru öflugir og skalanlegir, sem leggur góðan grunn að framsókn okkar á Íslandi og í Bretlandi. "

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 8. maí kl. 08:30 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á íslensku á eftirfarandi vefslóð:
https://kvika.is/kynning-a-uppgjori-3m-2025/
Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á [email protected] eða í gegnum Slido appið hér
Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.