Capital/Financing Update • Jun 19, 2025
Capital/Financing Update
Open in ViewerOpens in native device viewer
Kvika banki hf.: Útboð á skuldabréfum þann 25. júní
Kvika mun halda lokað útboð á nýjum flokki skuldabréfa, KVIKA 28 0703, miðvikudaginn 25. júní 2025. Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN útgáfuramma bankans og skráð í kauphöll Nasdaq Iceland. Skuldabréfin eru til þriggja ára með fljótandi vöxtum og einni höfuðstólsgreiðslu á gjalddaga þann 3. júlí 2028. Bréfin bera fljótandi REIBOR 3 mánaða vexti að viðbættu álagi sem greiddir eru ársfjórðungslega.
Útboðið verður með hollensku fyrirkomulagi, þ.e. öll skuldabréfin verða seld á hæsta álagi sem tekið verður ofan á 3 mánaða REIBOR vexti.
Áætlaður uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 3. júlí 2025.
Markaðsviðskipti Kviku hafa umsjón með útboðinu og er tekið á móti tilboðum á netfangið [email protected] til klukkan 16:00 miðvikudaginn 25. júní 2025.

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.