AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Kvika banki

Capital/Financing Update Feb 28, 2025

2199_rns_2025-02-28_a6bb8f18-a950-44af-9a43-9f9484b41637.html

Capital/Financing Update

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Kvika banki hf.: Sala á TM frágengin

Kvika banki hf.: Sala á TM frágengin

Kvika banki og Landsbankinn gengu í dag frá kaupum Landsbankans á 100% hlutafjár TM trygginga hf. Afhending á tryggingafélaginu fór fram samhliða því og greiddi Landsbankinn Kviku banka umsamið kaupverð við afhendingu.

Eins og kom fram í tilkynningu Kviku banka um kaupin þann 30. maí 2024 verður endanlegt kaupverð aðlagað miðað við breytingar á efnislegu eigin fé TM frá upphafi árs 2024 til afhendingardags sem er í dag, 28. febrúar 2025.

Umsamið kaupverð er 28,6 ma.kr. en aðlagað kaupverð nemur um 32,3 ma.kr. með kaupverðsaðlögun ársins 2024 sem hefur nú verið greitt til Kviku banka. Kaupverðið mun taka frekari breytingum þar sem breyting á efnislegu eigin fé TM frá áramótum til afhendingardags mun bætast við eða dragast frá endanlegu kaupverði.

Stjórn Kviku banka mun leggja til á aðalfundi bankans þann 26. mars næstkomandi sérstaka arðgreiðslu til hluthafa bankans og verður sú tillaga birt samhliða öðrum tillögum stjórnar til aðalfundar eigi síðar en þann 5. mars næstkomandi.

Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku:

„Það er ánægjulegt að kaup Landsbankans á TM séu gengin í gegn en með sölunni erum við að stíga mikilvæg skref í þá átt að skerpa á kjarnastarfsemi okkar. Markmið okkar er að sækja fram á nýja markaði með framúrskarandi vörur og þjónustu fyrir viðskiptavini okkar og gerum við ráð fyrir að nýta hluta kaupverðsins í þá vegferð.

Ég vil þakka stjórnendum og starfsfólki TM kærlega fyrir ánægjulegt og gott samstarf og óska þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi.“

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.