AI assistant
Klappir Grænar Lausnir hf. — Share Issue/Capital Change 2020
Jul 27, 2020
8457_rns_2020-07-27_80294727-5a9d-4412-aebd-b869cb5855f4.html
Share Issue/Capital Change
Open in viewerOpens in your device viewer
Klappir grænar lausnir hf.: Hækkun hlutafjár
Klappir grænar lausnir hf.: Hækkun hlutafjár
Hlutafjárútboði Klappa er lokið og skrifuðu áskrifendur sig fyrir 4.085.484 hluta í B-flokki og er söluandvirðið þeirra 63.325.002 kr. Gengi bréfanna var 15,50. Hlutirnir skulu gefnir út rafrænt og skráðir hjá Verðbréfaskráningu Íslands í kjölfar skráningar hjá Fyrirtækjaskrá. Eftir aukningu verður heildarhlutafé 138.112.145, þar af 50.000.000 hluta í A-flokki og 88.112.145 hluta í B-flokki. Um lokað hlutafjárútboð var að ræða í umsjón Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka.
Á aðalfundi félagsins þann 2. apríl 2020 var samþykkt heimild til stjórnar félagsins til að ákveða hækkun á hlutafé félagsins í B-flokki hlutabréfa um allt að kr. 50.000.000 að nafnvirði og gildir sú heimild í 18 mánuði frá samþykkt hluthafafundar.
**Nánari upplýsingar veita Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa s. 6649200
**og Rafn Árnason, Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, s. 8444974.