Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. Proxy Solicitation & Information Statement 2025

Mar 19, 2025

8457_rns_2025-03-19_4c2847a0-be27-4c90-9ba4-17d78307ab09.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Klappir

Aðalfundur Klappa Grænna Lausna hf.

Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður miðvikudaginn 9. apríl 2025 kl. 15:00 með rafrænum hætti.

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
  2. Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur.
  3. Stjórn leggur fram til afgreiðslu endurskoðaðan ársreikning félagsins.
  4. Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig skuli fara með hagnað ársins 2024.
  5. Kosning stjórnar félagsins.
  6. Kosning endurskoðenda félagsins
  7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  8. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins
  9. Önnur mál löglega borin fram.

Hluthafar eiga rétt á að fá mál tekin fyrir á fundinum ef gerð hefur verið skriflega eða rafræn krafa þar um. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá fundarins skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins að Hlíðasmára 3, 201 Kópavogi, eða á netfangið [email protected] eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl 15:00 þann 30. mars 2025.

Endanlega dagskrá og tillögur verða birtar tveimur vikum fyrir aðalfund, þ.e. 26. mars 2025, til samræmis við ákvæði laga um hlutafélög.

Klappir Green Solutions
Hlidasmari 3, 201 Kopavogur


Klappir Green Solutions
klappir.com