Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. Proxy Solicitation & Information Statement 2025

Apr 7, 2025

8457_rns_2025-04-07_727db03d-5395-4e2e-bf5e-dd54e5a535b1.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Klappir

Framboð til stjórnarsetu

Aðalfundur Klappa Grænna Lausna hf. 9. apríl 2025

Í framboði til stjórnar Klappa Grænna Lausna hf. (hér eftir „Klappir“) á aðalfundi félagsins 9. apríl 2025 eru eftirfarandi einstaklingar.

Ágúst Einarsson

Ágúst hefur setið í stjórn Klappa frá árinu 2021.

Fæðingarár: 1962

Menntun: M.Sc. í Industrial and Business Engineering og B.Sc. í Mechanical Engineering frá Aalborg University.

Aðalstarf: Sjálfstætt starfandi ráðgjafi

Starfsreynsla: Framkvæmdastjóri Tempo og dótturfélaga (2015-2019), framkvæmdastjóri TM Software og stjórnarformaður dótturfélaga (2006-2015), framkvæmdastjóri Skyggnis (2003-2006), framkvæmdastjóri TrackWell (1999-2003), Area Manager hjá Navision Software, Europe (1994-1999).

Önnur stjórnarseta: Varist ehf.

Hlutafjáreign í Klöppum og hagsmunatengsl: Ágúst á engan hlut í Klöppum en starfar m.a. fyrir félagið sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptamenn og samkeppnisaðila félagsins.

Hildur Jónsdóttir

Hildur hefur setið í stjórn Klappa frá árinu 2014.

Fæðingarár: 1958

Menntun: Diplómanám í mannaðsstjórnun frá Háskóla Íslands, tveggja ára sérnám í hugrænni atferlismeðferð við Háskóla Íslands, Cand.Pysk (MS) frá Psykologisk Institut Aarhus Universitet.

Aðalstarf: Fjárfestir

Starfsreynsla: Framkvæmdastjóri Kvista eignarhaldsfélags (2013-), starfsmannastjóri Klappa (2017-2021), starfsmannastjóri Ark Technology ehf. (2014-2017), sjálfstætt starfandi sálfræðingur (2010-2015), stofurekstur eigin sálfræðistofu (2003-2010), sálfræðingur við Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða (2005-2011),

Klappir Green Solutions

Hildasmari 3, 201 Kopavogur


sálfræðingur við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur (1997-2005), forstöðumaður Dalhúss hjá Félagsmálastofnun Kópavogs, fjölskyldudeild (1993-1995), meðferðarfulltrúi í unglingaathvarfíð F.R. Keilufelli hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur (1991-1993).

Önnur stjórnarseta: Engin

Hlutafjáreign í Klöppum og hagsmunatengsl: Hildur er einn af eigendum Kvista eignarhaldsfélags ehf. sem á 66.306.550 hluti í félaginu. Hildur er jafnframt maki daglegs stjórnanda félagsins.

Sigrún Hildur Jónsdóttir

Sigrún hefur setið í stjórn Klappa frá árinu 2024.

Fæðingarár: 1984

Menntun: MBA frá Háskóla Íslands, M.Sc. í Comparative Politics frá The London School of Economics og BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Aðalstarf: Framkvæmdastjóri vöruþróunar og meðstofnandi hjá Klöppum.

Starfsreynsla: Stofnandi og starfandi hjá Klöppum frá 2014.

Önnur stjórnarseta: Salt Lane og Æquitus.

Hlutafjáreign í Klöppum og hagsmunatengsl: Sigrún er einn af eigendum Kvista eignarhaldsfélags ehf. sem á 66.306.550 hluti í félaginu. Sigrún er jafnframt dóttir dagslegs stjórnanda félagsins.

Sigurður Þórarinsson

Sigurður hefur setið í stjórn Klappa frá árinu 2023.

Fæðingarár: 1963

Menntun: M.Sc. í Industrial Engineering frá University of Washington og B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Aðalstarf: Tækni- og nýsköpunarstjóri Landspítalans.

Starfsreynsla: Sjálfstætt starfandi ráðgjafi (2020-), tæknistjóri (CTO) hjá Tempo Software (2017-2021), Director of Development and Operations hjá Sabre Airline Solutions (2011-2017), tæknistjóri (CTO) hjá Nyherja (2010-2011), Director of Managed Services hjá Skyggni/Nýherja (2008-2010), Managing Director (2006-2008) og Manager of Operations hjá Skyggni (2004-2006), meðstofnandi og stjórnarformaður hjá TrackWell Software (1996-2004), Software Engineer and System Administrator hjá Háskóla Íslands (1991-1994).

Önnur stjórnarseta: Defend Iceland (stjórnarformaður), TrackWell (varamaður)

Klappir Green Solutions
klappir.com


Hlutafjäreign í Klöppum og hagsmunatengsl: Sigurður á engan hlut í Klöppum en starfar m.a. fyrir félagjó sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptamenn og samkeppnisaðila félagsins.

Vilborg Einarsdóttir

Vilborg hefur setið í stjórn Klappa frá árinu 2022.

Fæðingarár: 1967

Menntun: M.Sc. í viðskiptafræði á sviði stjórnunar og stefnumótunar, B.Ed. í kennslufræðum frá Kennaraháskóla Íslands.

Aðalstarf: Stofnandi og framkvæmdastjóri Bravo Earth hf.

Starfsreynsla: Fyrirlesari og stundakennari í ýmsum námskeiðum Háskóla Íslands, meðstofnandi og forstjóri Mentor ehf. (2000-2019), kennari við Háskóla Íslands (2003-2005), skólastjóri og stofnandi MFA-skólans (1990-1997).

Önnur stjórnarseta: Engin

Hlutafjäreign í Klöppum og hagsmunatengsl: Vilborg á 17.105 hluti í Klöppum í gegnum Vilma ehf. Jafnframt á Bravo Earth ehf. Í viðskiptum við nokkra af viðskiptamönnum félagsins. Fram skal einnig koma að Bravo Earth hf. selur hugbúnað til að halda utan um og koma sjálfbærni stefnu í framkvæmd. Félagjó er ekki í samkeppni við Klappir en selur til sama markhóps.

Klappir Green Solutions

klappir.com


Klappir Green Solutions
klappir.com