AI assistant
Klappir Grænar Lausnir hf. — Proxy Solicitation & Information Statement 2024
Apr 23, 2024
8457_rns_2024-04-23_4b1023b1-8357-49ab-8aea-62906d7d98cd.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Klappir
Aðalfundur Klappa Grænna Lausna hf.
Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður þriðjudaginn 14. maí 2024 á Café Atlanta, Hlíðasmára 3, 201 Kópavogi. Fundurinn hefst kl. 15:00.
Dagskrá fundarins:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
- Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur.
- Stjórn leggur fram til afgreiðslu endurskoðaðan ársreikning félagsins.
- Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig skuli fara með hagnað eða tap ársins 2023.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðenda félagsins.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Önnur mál löglega fram borin.
Hluthafar eiga rétt á að fá mál tekin fyrir á fundinum ef gerð hefur verið skriflega eða rafræn krafa þar um. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá fundarins skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins að Hlíðasmára 3, 201 Kópavogi, eða á netfangið [email protected] eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 15:00 þann 4. maí 2024.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar tveimur vikum fyrir aðalfund, þ.e. 1. maíl 2024, til samræmis við ákvæði laga um hlutafélög.
Skráning hluthafa á fundinn fer fram á heimasíðu félagsins www.klappir.com/investors. Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði bréflega eða að láta umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Atkvæði sem greidd eru bréflega skulu hafa borist á netfangið [email protected] eigi síðar en kl. 14:00 á fundardegi 14. maí 2024.
Klappir Green Solutions
Armuli 4-6, 108 Reykjavik
Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð. Umboð má leggja fram á fundinum eða senda netfangið [email protected] fyrir fundinn.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundinum
Aðrar upplýsingar
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar. Framboðum skal skila á skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] fyrir kl. 15:00 þann 9. maí 2024. Stjórn félagsins mun fara yfir framboðstilkynningar og kalla eftir viðbótargögnum og upplýsingum eftir því sem þurfa þykir.
Framboðseyðublað er að finna á vefsíðu félagsins www.klappir.com/investors. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir aðalfund verður að finna á vefsíðu félagsins www.klappir.com/investors.
Kópavogur, 18. april 2024
Stjórn Klappa Grænna Lausna hf.
Klappir Green Solutions
Armuli 4-6, 108 Reykjavik