AI assistant
Klappir Grænar Lausnir hf. — Proxy Solicitation & Information Statement 2023
Mar 30, 2023
8457_rns_2023-03-30_2354b2c5-1331-417c-87e1-64d90757e0b8.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Klappir
The smart way to sustainability
Aðalfundur Klappa Grænna Lausna hf. 2023
Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður fimmtudaginn 27. apríl 2023 á Café Atlanta, Hlíðasmára 3, 201 Kópavogi. Fundurinn hefst kl. 15:00.
Dagskrá fundarins:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
- Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur.
- Stjórn leggur fram til afgreiðslu endurskoðaðan ársreikning félagsins.
- Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig skuli fara með hagnað eða tap ársins 2022.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðenda félagsins.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga stjórnar til aðalfundar um breytingu á gr. 5.2 samþykkta félagsins.
- Tillaga stjórnar til aðalfundar um breytingu á gr. 7.9. samþykkta félagsins.
- Önnur mál löglega fram borin.
Hluthafar eiga rétt á að fá mál tekin fyrir á fundinum ef gerð hefur verið skriflega eða rafræn krafa þar um. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá fundarins skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins að Hlíðasmára 3, 201 Kópavogi, eða á netfangið [email protected] eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 15:00 þann 17. apríl 2023.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar tveimur vikum fyrir aðalfund, þ.e. 13. apríl 2023, til samræmis við ákvæði laga um hlutafélög.
Skráning hluthafa á fundinn fer fram á heimasíðu félagsins www.klappir.com/investors. Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði bréflega eða að láta umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Atkvæði sem greidd eru bréflega skulu hafa borist á netfangið [email protected] eigi síðar en kl. 14:00 á fundardegi 27. apríl 2023.
Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð. Umboð má leggja fram á fundinum eða senda netfangið [email protected] fyrir fundinn.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundinum.
Aðrar upplýsingar
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar. Framboðum skal skila á skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] fyrir kl. 15:00 þann 22. apríl 2023. Stjórn félagsins mun fara yfir framboðstilkynningar og kalla eftir viðbótargögnum og upplýsingum eftir því sem þurfa þykir.
Framboðseyðublað er að finna á vefsíðu félagsins www.klappir.com/investors. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir aðalfund verður að finna á vefsíðu félagsins www.klappir.com/investors. Í tillögum stjórnar má finna tvær tillögur að breytingum á samþykktum félagsins en þær fela í stuttu máli í sér eftirfarandi:
Grein 5.2: Stjórn leggur til að gildandi heimild til að ákveða hækkun á hlutafé félagsins í B-flokki hlutabréfa verði framlengd til fimm ára frá aðalfundi félagsins 2023.
Grein 7.9: Stjórn leggur til að birta skuli endanlega dagskrá og tillögur fyrir aðalfund tveimur víkum fyrir fundinn. Ákvæðið verði eftirleiðis svohljóðandi:
„Hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin fyrir á hluthafafundi, ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til stjórnar með það miklum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins að gættum ákvæðum laga um hlutafélög. Slíkri kröfu skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til stjórnar félagsins eigi síðar en víku fyrir boðun aðalfundar. Kröfu má gera síðar en þó í síðasta lagi tíu dögum fyrir aðalfundinn. Birta skal ályktunartillögur hluthafa á vef félagsins eins fljótt og auðið er eftir móttöku þeirra. Víku fyrir hluthafafund (tveimur víkum fyrir aðalfund) skal senda út endanlega dagskrá og tillögur.“
Kópavogur, 30. mars 2023
Stjórn Klappa Grænna Lausna hf.