Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. Proxy Solicitation & Information Statement 2022

Apr 5, 2022

8457_rns_2022-04-05_5a9bac6f-5a9e-4b44-a986-f644eee7a3af.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Klappir
The smart way to sustainability

Rafraenn aðalfundur Klappa Grænna Lausna hf. 2022

Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður með rafrænum hætti miðvikudaginn 27. apríl 2022. Fundurinn hefst kl. 16:00 en vakin er athygli á því að samkvæmt áður birtu fjárhagsdagatali átti fundurinn upphaflega að fara fram 5. apríl 2022.

Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
  2. Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur.
  3. Stjórn leggur fram til afgreiðslu endurskoðaðan ársreikning félagsins.
  4. Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig skuli fara með hagnað eða tap ársins 2021.
  5. Kosning stjórnar félagsins.
  6. Kosning endurskoðunarfélags.
  7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  8. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
  9. Tillaga stjórnar til aðalfundar um tillögu til breytinga á samþykktum félagsins.
  10. Önnur mál löglega fram borin.

Hluthafar eiga rétt á að fá mál tekin fyrir á fundinum ef gerð hefur verið skriflega eða rafræn krafa þar um. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá fundarins skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 þann 17. apríl 2022. Slíkri kröfu skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til stjórnar félagsins eigi síðar en viku fyrir fundinn eða fyrir kl. 16:00 þann 20. apríl 2022.

Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar 20. apríl 2022 til samræmis við samþykktir félagsins.


Klappir
The smart way to sustainability

Skráning hluthafa á fundinn fer fram á heimasíðu félagsins www.klappir.com og fá þeir þá sendan hlekk á fundinn. Fundurinn fer fram í gegnum fjarfundabúnað þar sem hluthafar geta fylgst með aðalfundarstörfum og tekið þátt í fundinum.

Hluthafar geta látíð umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn eru beðnir um að skrá sig á heimasíðu félagsins eigi síðar en kl. 16:00 þann 25. apríl 2022.

Hluthafar skulu greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Atkvæði skulu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 þann 22. apríl 2022.

Aðrar upplýsingar

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar. Framboðum skal skila á skrifstofu Klappa Grænna Lausna hf., Ármúla 4-6, 108 Reykjavík eða á netfangið [email protected] fram til 22. apríl 2022 kl. 16:00. Stjórn félagsins mun fara yfir framboðstilkynningar og kalla eftir viðbótargögnum og upplýsingum eftir því sem þurfa þykir.

Framboðseyðublað er að finna á vefsíðu félagsins www.klappir.com. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.

Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir aðalfund verður að finna á vefsíðu félagsins www.klappir.com. Í tillögum stjórnar má finna eina tillögu að breytingum á samþykktum félagsins en hún felur í stuttu mál í sér eftirfarandi:

Grein 2.01.5: Stjórn leggur til að gildandi heimild til útgáfu nýrra hluta verði framlengd til 18 mánaða frá aðalfundi félagsins 2022.

Reykjavík, 6. apríl 2022
Stjórn Klappa Grænna Lausna hf.