AI assistant
Klappir Grænar Lausnir hf. — Proxy Solicitation & Information Statement 2022
Oct 24, 2022
8457_rns_2022-10-24_9a854bc3-4960-4480-af17-da622257a99f.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
6
Klappir
The smart way to sustainability
Ályktunartillögur stjórnar Klappa Grænna Lausna hf.
fyrir hluthafafund félagsins þann 18. nóvember 2022
Dagskrárliður 2
Tillaga um útgáfu áskriftarréttinda, heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar og kaupa á eigin bréfum
Stjórn leggur til við hluthafafund félagsins að stjórn verði heimilt á ákveða útgáfu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár og að félaginu verði heimilt að kaupa eigin bréf, til samræmis við skuldbindingar sínar skv. lánasamningi félagsins við NEFCO.
Stjórn leggur til við hluthafafund félagsins að stjórn verði heimilt að ákveða útgáfu framseljanlegra áskriftarréttinda til NEFCO. Þá verður stjórn félagsins heimilt til 1. nóvember 2027 að hækka hlutafé félagsins til útgáfu hlutabréfa í tengslum við veitingu áskriftarréttindanna, allt að kr. 21.000.000 að nafnvirði. Verði hlutirnir gefnir út, skulu allt að 35% þeirra tilheyra nýjum C flokki hlutabréfa og ekki minna en 65% þeirra tilheyra B flokki hlutabréfa. Greiða má fyrir hina nýju hluti með skuldajófnuði. Hluthafar falla frá forgangsrétti sínum til nýrra hluta.
Enn fremur að samþykkt verði heimild stjórnar til að ákveða hækkun á hlutafé félagsins í B flokki hlutabréfa um allt að kr. 7.350.000 og að sú heimild gildi í 5 ár frá samþykkt hluthafafundarins. Heimildina má nýta í eitt skipti eða fleiri. Heimildinni er ætlað að gera stjórn félagsins kleift að mæta skuldbindingum félagsins er varða rétt hluthafa til þess að umbreyta hlutum í C flokki, skv. útgáfu áskriftarréttinda, yfir í hluti í B flokki. Einungis má greiða fyrir hlutina með hlutum í C flokki, er samsvara nafnvirði þeirra hluta í B flokki (króna fyrir krónu) sem gefnir eru út á grundvelli hækkunarheimildarinnar. Hluthafar falla frá forgangsrétti sínum til nýrra hluta.
Þar til viðbótar að samþykkt verði heimild til stjórnar félagsins til að kaupa eigin hluti af hlutafé félagsins í B eða C flokki hlutabréfa sem nemur allt að 10% heildarhlutafjár félagsins eða að hámarki 14.015.370 hluti.
Dagskrárliður 3
Tillaga um nýjar samþykktir félagsins
Stjórn leggur til við hluthafafund að samþykktar verði nýjar samþykktir félagsins.