Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. Proxy Solicitation & Information Statement 2021

Apr 6, 2021

8457_rns_2021-04-06_e9be5b23-b1be-4b2d-827a-e34b5b6fc979.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

KLAPPIR

Endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar Klappa Grænna Lausna hf. 2021

Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. hefur boðað til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður með rafrænum hætti, þriðjudaginn 13. apríl 2021. Fundurinn hefst kl. 16:00.

Drög að dagskrá frá stjórn eru svohljóðandi:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2020.
  2. Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur.
  3. Stjórn leggur fram til afgreiðslu endurskoðaðan ársreikning félagsins.
  4. Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig skuli fara með hagnað eða tap ársins 2020.
  5. Kosning stjórnar félagsins.
  6. Kosning endurskoðunarfélags.
  7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  8. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
  9. Tillaga stjórnar um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum.
  10. Tillaga stjórnar til aðalfundar um tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
  11. Önnur mál löglega fram borin

Hluthöfum gafst kostur á að fá mál tekin fyrir á aðalfundi með því að leggja fram skriflega eða rafræna kröfu fyrir kl. 16:00 þann 3. apríl sl. Engin slík krafa hefur borist félaginu og því stendur dagskrá sem fylgdi fundarboði þann 22. mars 2021 og sem síðar var uppfærð og auglýst þann 24. mars sl. óbreytt.

Upphaflega stóð til að halda fundinn á Hótel Hilton Reykjavík en í ljósi ákvörðunar heilbrigðisráðherra um hertar sóttvarnaraðgerðir, sem tóku gildi á miðnætti 24. mars sl. og eiga að gilda fram yfir aðalfundinn, verður fundurinn einungis haldinn með rafrænum hætti, sbr. áður birt auglýsing félagsins um breytta framkvæmd aðalfundar sem birt var þann 30. mars sl.


Hluthafar þurfa að skrá sig á aðalfundinn á heimasíðunni www.klappir.com og fá þeir þá sendan hlekk á fundinn.

Hluthöfum stendur til boða að kjósa á fundinum með sömu aðferð og á aðalfundi félagsins 2020 eða kjósa fyrirfram og skriflega um tillögur fundarins og veita fundarstjóra umboð til að kjósa á fundinum fyrir sína hönd.

Skrifleg fyrirfram kosning

Þeir hluthafar sem óska eftir því að kjósa fyrirfram og skriflega um tillögur fundarins og veita fundarstjóra umboð fyrir sína hönd, skulu senda slíka beiðni til félagsins á netfangið [email protected] fyrir kl. 12:00 þann 13. apríl 2021. Félagjóð mun þá senda viðkomandi hluthafa atkvæðaseðil til útfyllingar.

Vilji hluthafi sem nýtur atkvæðisréttar kjósa fyrirfram og skriflega um tillögur fundarins og veita fundarstjóra umboð til að kjósa á fundinum fyrir sína hönd skal skanna og senda til félagsins atkvæðaseðilinn á netfangið [email protected] eigi síðar en kl. 14:00 þann 13. apríl 2021. Atkvæðaseðlar skulu undirritaðir af hluthafa, dagsettir og undirritaðir af tveimur vindavottum.

Upplysingar um fundarboð, sem vísast til að öðru leyti en hér greinir, ályktunartillögur stjórnar og greinargerð með þeim og starfskjarastefnu má finna á vefsíðu félagsins www.klappir.com

Önnur gögn vegna aðalfundar verða aðgengileg á vefsíðu félagsins.

Reykjavík, 6. apríl 2021
Stjórn Klappa Grænna Lausna hf.