AI assistant
Klappir Grænar Lausnir hf. — Interim / Quarterly Report 2021
Aug 25, 2021
8457_rns_2021-08-25_5dcddb45-1c00-4b76-aa2e-e6a49bf912e0.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer

Klappir
The smart way to sustainability
Klappir Grænar Lausnir hf.
Árshlutareikningur samstæðu
2021
Klappir Grænar Lausnir hf.
Ármúla 4-6
108 Reykjavík
| STEFÁN EYJÓLFSSON | |
| 2021-09-23 16:48:58 GMT | |
| Ástæika: Undrnécift | JÓN BJÖRNSSON |
| 2021-08-25 16:50:22 GMT | |
| Ástæika: Undrnécift | |
| HILDUR JÓNSDÓTTIR | |
| 2021-09-25 15:50:26 GMT | |
| Ástæika: Undrnécift | FJÓGÍRÍN ANGAIS |
| 2021-08-25 16:00:30 GMT | |
| Ástæika: Undrnécift | |
| --- | |
| JÓN ÁGÚST PORSTEINSSON | |
| 2021-09-23 16:56:23 GMT | |
| Ástæika: Undrnécift | |
| --- | |
| BIRNA MARÍA SIGURDARDÓTTIR | |
| 2021-09-23 16:14:14 GMT | |
| Ástæika: Undrnécift |
Klappir Grænar Lausnir hf.
Árshlutareikningur samstæðu
2021
Efnisyfirlit
Könnunaráritun óháðs endurskoðanda 2
Skýrsla stjórnar 3-4
Lykiltölur 5
Rekstrarreikningur 6
Efnahagsreikningur 7
Yfirlit um sjóðstreymi 8
Skýringar 9-13
Skýrsla stjórnar og forstjóra
Árshlutareikningur Klappa Grænna Lausna hf. fyrir árið 2021 er gerður í samræmi við lög um ársreikninga.
Félagið var stofnað í september 2014 og er tilgangur félagsins kaup, sala og eignarhald verðbréfa, eign, leiga og rekstur fasteigna, lánastarfsemi, önnur fjármálastarfsemi og skyldur rekstur.
Starfsemin á árinu
Tekjur samkvæmt rekstrarreikningi... 177.393.738
Hagnaður félagsins á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi nam... 12.413.923
Eignir félagsins í lok tímabils samkvæmt efnahagsreikningi námu... 495.963.976
Bókfært eigið fé í árslok samkvæmt efnahagsreikningi nam... 427.184.702
Eiginfjárhlutfall félagsins í árslok samkvæmt efnahagsreikningi nam... 86,1%
Hluthafar
Hlutafé félagsins nam 140,2 m.kr í lok júní 2021. Hlutafé félagsins skiptist í tvo flokka, A og B flokk, sjá nánar í skýringu 9. Í lok júní voru hluthafar 302 talsins og fækkaði þeim um 3 frá ársbyrjun 2021. Tíu stærstu hluthafarnir voru eftirfarandi í lok júní:
| A hlutir | B hlutir | Samtals | Atkvæða-réttur | |
|---|---|---|---|---|
| Kvistar eignarhaldsfélag ehf. | 48.275.375 | 18.773.950 | 67.049.325 | 96,55% |
| Sindrandi ehf. | - | 32.545.834 | 32.545.834 | 0,00% |
| Pund ehf. | - | 5.000.000 | 5.000.000 | 0,00% |
| Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins. | - | 3.619.579 | 3.619.579 | 0,00% |
| Eyktarsalir ehf. | 200.000 | 2.845.350 | 3.045.350 | 0,40% |
| Stey ehf. | - | 3.000.000 | 3.000.000 | 0,00% |
| Kjalvegur ehf. | - | 3.000.000 | 3.000.000 | 0,00% |
| Dexter fjárfestingar ehf. | - | 2.600.000 | 2.600.000 | 0,00% |
| Þorrasalir ehf. | 200.000 | 1.145.350 | 1.345.350 | 0,40% |
| Startup Reykjavík Invest ehf. | 742.775 | - | 742.775 | 1,49% |
| Sýn hf. | 581.850 | - | 581.850 | 1,16% |
| Aðrir hluthafar | - | 17.623.637 | 17.623.637 | 0,00% |
| Samtals. | 50.000.000 | 90.153.700 | 140.153.700 | 100% |
Stjórn Klappa grænna lausna hf. leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum og að fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja gefnar út af Viðskiptaráði Íslands, NasdaqOMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulífsins. Stjórninn hefur sett sér starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint sem og verksvið gagnvart forstjóra. Í reglunum má einnig funna reglur um fundarskóp, reglur um hæfi stjórnarmanna, reglur um þagnarskyldu, upplýsingagjóf forstjóra gagnvart stjórn og fleira. Hlutfall kynja í stjórn félagsins eru tvær konur (40%) og þrír karlar (60%).
Sjálfbærni
Stjórn vísar á frekari umfjöllun um Sjálfbærniskýrslu (e. Sustainability report) á heimasíðu félagsins.
Árshlutareikningur Klappa Grænna Lausna 2020
Skýrsla stjórnar og forstjóra
Yfirlýsing stjórnar og framkvæmdastjóra
Að áliti stjórnar og framkvæmdastjóra koma fram í árshlutareikningi þessum allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að glöggva sig á stöðu félagsins 30.06.2021, rekstrarárangri og fjárhagslegri þróun á tímabilinu 1.1.-30.06.2021.
Stjórn og forstjóri Klappa grænna lausna hf. staðfesta hér með árshlutareikning félagsins með undirritun sinni.
Reykjavík, 25.ágúst 2021
Í stjórn
Forstjóri
Árshlutareikningur Klappa Grænna Lausna 2020
Lykiltölur
| 30.6.2021 | 30.6.2020 | |
|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 177.393.738 | 169.496.353 |
| Hagnaður fyrir afskriftir, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (EBITDA) | 45.995.850 | 17.341.865 |
| Hagnaður (-tap) tímabilsins | 12.413.923 | (18.107.862) |
| Arðsemi eigin fjár | 2,9% | -5,2% |
| Arðsemi heildareigna | 2,7% | -3,9% |
| 30.6.2021 | 31.12.2020 | |
| Heildareignir | 495.963.976 | 484.535.474 |
| Skuldir samtals | 68.779.274 | 69.756.101 |
| Eigið fé og skuldir samtals | 495.963.976 | 484.535.474 |
| Veltufjárhlutfall - veltufjármunir/skammtímaskuldir | 7,5 | 6,4 |
| Eiginfjárhlutfall - eigið fé/heildarfjármagn | 86,1% | 85,6% |
| Innra virði hlutafjár - eigið fé/hlutafé | 3,0 | 3,0 |
| Ýmsar stærðir sem hlutfall af tekjum | ||
| Annar rekstrarkostnaður | 23,0% | 24,7% |
| Hagnaður fyrir afskriftir, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (EBITDA) | 25,9% | 10,2% |
| Hagnaður (-tap) tímabilsins | 7,0% | -10,7% |
Klappir grænar lausnir hf. - árshlutareikningur samstæðu 30.6.2021
Rekstrarreikningur tímabilsins 1. janúar til 30. júní 2021
| | Skýr. | 2021
1.1-30.06 | 2020
1.1.-30.6 |
| --- | --- | --- | --- |
| Rekstrartekjur | | 131.953.612 | 130.882.315 |
| Aðrar tekjur | | 45.440.126 | 38.614.038 |
| | | 177.393.738 | 169.496.353 |
| Laun og annar starfsmannakostnaður | 4 | (90.519.143) | (110.319.499) |
| Annar rekstrarkostnaður | | (40.878.745) | (41.834.989) |
| Hagnaður fyrir afskriftir, fjármunatekjur,
fjármagnsgjöld og tekjuskatt (EBITDA) | | 45.995.850 | 17.341.865 |
| Afskriftir og niðurfærsla | | (32.606.369) | (35.531.500) |
| Rekstrarhagnaður (tap) | | 13.389.481 | (18.189.635) |
| Fjármunatekjur | | 282.978 | 101.518 |
| Fjármagnsgjöld | | (1.143.444) | (908.148) |
| Gengismunur | | (115.092) | 888.403 |
| | 5 | (975.558) | 81.773 |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | | 12.413.923 | (18.107.862) |
Klappir grænar lausnir hf. - árshlutareikningur samstæðu 30.6.2021
Efnahagsreikningur 30. júní 2021
| Eignir | Skýr. | 30.06.2021 | 31.12.2020 |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Óefnislegar eignir | 6 | 220.496.180 | 236.614.079 |
| Varanlegir rekstrarfjármunir | 7 | 3.502.066 | 2.490.000 |
| Tekjuskattseign | 10 | 21.320.520 | 21.320.520 |
| 245.318.766 | 260.424.599 | ||
| Veltufjármunir | |||
| Viðskiptakrófur | 35.256.501 | 40.171.895 | |
| Aðrar skammtímakrófur | 167.231.905 | 103.255.161 | |
| Handbært fé | 48.156.804 | 80.683.819 | |
| 250.645.210 | 224.110.875 | ||
| Eignir | 495.963.976 | 484.535.474 | |
| Eigið fé og skuldir | |||
| Eigið fé | 9 | ||
| Hlutafé | 140.153.700 | 140.153.700 | |
| Yfirverðsreikningur hlutafjár | 494.199.200 | 494.199.198 | |
| Annað bundið eigið fé | 75.671.662 | 77.144.267 | |
| Óráðstafað eigið fé | (282.839.860) | (296.717.792) | |
| Eigið fé | 427.184.702 | 414.779.373 | |
| Langtímaskuldir og skuldbindingar | |||
| Skuldir við tengd félög | 12 | 35.344.694 | 35.000.000 |
| 35.344.694 | 35.000.000 | ||
| Skammtímaskuldir | |||
| Viðskiptaskuldir | 5.667.813 | 5.183.370 | |
| Aðrar skammtímaskuldir | 27.766.767 | 29.572.731 | |
| 33.434.580 | 34.756.101 | ||
| Skuldir | 68.779.274 | 69.756.101 | |
| Eigið fé og skuldir | 495.963.976 | 484.535.474 |
Klappir grænar lausnir hf. - árshlutareikningur samstæðu 30.6.2021
Yfirlit um sjóðstreymi tímabilsins 1.janúar til 30.júní 2021
| Skýr. | 2021 | 2020 | |
|---|---|---|---|
| 1.1-30.6 | 1.1.-30.6 | ||
| Rekstrarhreyfingar | |||
| Tap tímabilsins | 13.389.481 | (18.107.862) | |
| Afskriftir | 32.606.369 | 35.464.010 | |
| Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta | 45.995.850 | 17.356.148 | |
| Aðrar rekstrartengdar eignir, (hækkun) | (59.875.554) | (20.323.394) | |
| Rekstrartengdar skuldir, (lækkun) | (2.855.587) | (23.452.362) | |
| Handbært fé til rekstrar án vaxta og skatta | (15.201.225) | (26.419.608) | |
| Greiddir vextir | (1.143.444) | (908.148) | |
| (Greiddur) innborgáður gengismunur | 167.886 | 989.921 | |
| Handbært fé til rekstrar | (16.176.783) | (26.337.835) | |
| Fjárfestingahreyfingar | |||
| Fjárfestingar í óefnislegum eignum | 6 | (16.694.926) | (10.001.956) |
| (16.694.926) | (10.001.956) | ||
| Fjármögnunarhreyfingar | |||
| Hækkun/(lækkun) á skuldum við tengd félög | 344.694 | (1.895.662) | |
| 344.694 | (1.895.662) | ||
| Lækkun handbærs fjár | (32.527.015) | (38.235.453) | |
| Handbært fé í upphafi árs | 80.683.819 | 62.326.029 | |
| Handbært fé í lok árs | 48.156.804 | 24.090.576 |
Klappir grænar lausnir hf. - árshlutareikningur samstæðu 30.6.2021
Skýringar
1. Almennar upplýsingar
Klappir Grænar Lausnir hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
Klappir Grænar Lausnir hf. er með heimilisfesti á Íslandi og er lögheimili félagsins að Ármúla 4-6, 108 Reykjavík.
2. Grundvöllur reikningsskilanna
Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur. Árshlutareikningurinn byggir á kostnaðarverðsreikningsskilum og er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður. Árshlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins.
3. Mat og ákvarðanir
Við gerð árshlutareiknings þurfa stjórnendur, í samræmi við lög um ársreikninga, að taka ákvarðanir, meta og draga ályktanir sem hafa áhrif á eignir og skuldir á reikningsskiladegi, upplýsingar í skýringum og tekjur og gjöld. Við mat og ályktanir er byggt á reynslu og ýmsum öðrum þáttum sem taldir eru viðeigandi og myndu grundvöll þeirra ákvarðana sem teknar eru um bókfært verð eigna og skulda sem ekki liggur fyrir með öðrum hætti.
Breýtingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem þær eiga sér stað.
4. Laun og annar starfsmannakostnaður
| 2021 | 2020 | |
|---|---|---|
| Laun | 86.320.366 | 105.190.938 |
| Launatengd gjöld og annar starfsmannakostnaður | 20.165.247 | 20.516.186 |
| Eignfærð laun | (15.966.470) | (15.387.625) |
| 90.519.143 | 110.319.499 | |
| Meðalfjöldi stöðugilda | 19 | 18 |
5. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
| Fjármunatekjur greinast þannig: | 2021 | 2020 |
|---|---|---|
| Vaxtatekjur af bankainnstæðum | 28 | 81.272 |
| Vaxtatekjur af viðskiptakröfum | 282.950 | 20.246 |
| 282.978 | 101.518 | |
| Fjármagnsgjöld greinast þannig: | ||
| Vaxtagjöld til tengdra félaga | (1.102.188) | (872.083) |
| Önnur vaxtagjöld | (41.256) | (36.065) |
| (1.143.444) | (908.148) | |
| Gengismunur og framvirkir samningar greinast þannig: | ||
| Gengismunur | (115.092) | 888.403 |
| (115.092) | 888.403 | |
| (975.558) | 81.773 |
Klappir grænar lausnir hf. - árshlutareikningur samstæðu 30.6.2021
Skýringar
6. Óefnislegar eignir
| Viðskiptavild | Hugbúnaður | Samtals | |
|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | |||
| Staða 1.1.2021 | 181.154.753 | 246.658.252 | 427.813.005 |
| Eignfært á tímabilinu | 15.966.470 | 15.966.470 | |
| Staða 30.06.2021 | 181.154.753 | 262.624.722 | 443.779.475 |
| Afskriftir | |||
| Staða 1.1.2021 | 73.763.007 | 117.435.919 | 191.198.926 |
| Afskrift tímabilsins | 8.960.441 | 23.123.928 | 32.084.369 |
| Staða 30.06.2021 | 82.723.448 | 140.559.847 | 223.283.295 |
| Bókfært verð | |||
| Staða 1.1.2021 | 107.391.746 | 129.222.333 | 236.614.079 |
| Staða 30.06.2021 | 98.431.305 | 122.064.875 | 220.496.180 |
| Afskriftarhlutföll | 10% | 20% |
7. Varanlegir rekstrarfjármunir og afskriftir
| Áhöld og tæki | Samtals | |
|---|---|---|
| Kostnaðarverð | ||
| Staða 1.1.2021 | 5.800.000 | 5.800.000 |
| Staða 30.06.2021 | 5.800.000 | 5.800.000 |
| Afskriftir | ||
| Staða 1.1.2021 | 3.310.000 | 3.310.000 |
| Endurflokkun rekstrarfjármuna | (1.534.066) | (1.534.066) |
| Afskrift ársins | 522.000 | 522.000 |
| Staða 30.06.2021 | 2.297.934 | 2.297.934 |
| Bókfært verð | ||
| Staða 1.1.2021 | 2.490.000 | 2.490.000 |
| Staða 30.06.2021 | 3.502.066 | 3.502.066 |
| Afskriftarhlutföll | 20% |
8. Eignarhlutar í dóttur- og hlutdeildarfélögum
| Eignarhlutar | Afkoma tímabils | Eigið fé | |
|---|---|---|---|
| Eignarhlutar í dótturfélögum: | |||
| DataDrive ehf., Reykjavík | 100,00% | (8) | 7.030.598 |
| Heilsumat ehf., Reykjavík | 100,00% | 0 | (6.970.385) |
Klappir grænar lausnir hf. - árshlutareikningur samstæðu 30.6.2021
Skýringar
9. Eigið fé
Hlutafé félagsins í lok júní 2021 er 134,0 m.kr. að nafnverði.
Hlutir félagsins skiptast í A og B hluti. Í A hluthafaflokki eru útgefnir 50,0 milljón hlutir, hver hlutur í A flokki er að fjárhæð ein króna og eitt atkvæði fylgir hverri krónu flutafjár. Í B hlutaflokki eru útgefnir 90,1 milljón hlutir, hlutir í B flokki hafa ekki atkvæðisrétt en að öðru leyti hafa flokkarnir sömu réttindi.
| Yfirlit um eiginfjárreikninga: | Hlutafé | Yfirverðs-reikningur | Bundið eigið fé | Óráðstafað eigið fé | Samtals eigið fé |
|---|---|---|---|---|---|
| Eigið fé 1.1.2020 | 134.026.661 | 405.450.755 | 101.921.114 | (283.899.551) | 357.498.979 |
| Nýtt hlutafé | 6.127.039 | 88.748.443 | 94.875.482 | ||
| Afskr. af þróunarkostn. | (24.776.847) | 24.776.847 | 0 | ||
| Tap tímabilsins | (37.595.088) | (37.595.088) | |||
| Eigið fé 1.1.2021 | 140.153.700 | 494.199.198 | 77.144.267 | (296.717.792) | 414.779.373 |
| Leiðrétt frá fyrra tímabili | (8.594) | (8.594) | |||
| Eignf. þróunarkostn. | 12.128.688 | (12.128.688) | 0 | ||
| Afskr. af þróunarkostn. | (13.601.293) | 13.601.293 | 0 | ||
| Hagnaður tímabilsins | 12.413.923 | 12.413.923 | |||
| Eigið fé 30.06.2021 | 140.153.700 | 494.199.198 | 75.671.662 | (282.839.858) | 427.184.702 |
Félagð hefur gefið út kaupréttarsamninga til starfsmanna að nafnverði 2.104.616 kr. Samkvæmt samningum þá ávinnst kauprétturinn í jöfnum hlutföllum á 4 árum. Samningur fellur úr gildi átta árum frá útgáfudegi. Um kaupréttaráætlun og kaupréttarsamninga félagsins gilda almennar reglur um slíka samninga sem fást viðurkenndir af Ríkisskattstjóra, meðal annars að samningar bjóðast öllum starfsmönnum og hámark innlausnar er 600.000 kr. á ári.
Bundið eigið fé samanstendur af eignfærðum þróunarkostnaði í samræmi við 5. mgr. 41. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga.
10. Tekjuskattseign
| Tekjuskattsinneign | ||
|---|---|---|
| 2021 | 2020 | |
| Staða í ársbyrjun | 21.320.520 | 21.320.520 |
| Staða í árslok | 21.320.520 | 21.320.520 |
Tekjuskattseign greinast þannig á einstaka liði efnahagsreikningsins:
| 30.06.2021 | 30.06.2020 | |
|---|---|---|
| Varanlegir rekstrarfjármunir | 7.956.897 | 7.956.897 |
| Öefnislegar eignir | 2.008.157 | 2.008.157 |
| Áhrif af yfirfæranlegu skattalegu tapi | 136.766.283 | 138.782.290 |
| Niðurfærsla vegna óvissu um nýtingu á yfirfæranlegu tapi | (125.410.817) | (127.426.824) |
| 21.320.520 | 21.320.520 |
Yfirfæranlegt skattalegt tap nýtist til frádráttar skattalegum hagnaði í síðasta lagi sem hér segir:
| 30.6.2021 | |
|---|---|
| Frá hagnaði ársins 2022 | 10.488.983 |
| Frá hagnaði ársins 2023 | 12.735.553 |
| Frá hagnaði ársins 2024 | 55.108.662 |
| Frá hagnaði ársins 2025 | 80.817.277 |
| Frá hagnaði ársins 2026 | 83.025.148 |
| Frá hagnaði ársins 2027 | 103.486.501 |
| Frá hagnaði ársins 2028 | 41.992.271 |
| Frá hagnaði ársins 2029 | 176.513.437 |
| Frá hagnaði ársins 2030 | 119.663.585 |
| 683.831.417 |
Klappir grænar lausnir hf. - árslutareikningur samstæðu 30.6.2021
Skýringar
12. Tengdir aðilar
Tengdir aðilar eru þeir aðilar sem hafa umtalsverð áhrif á félagið, beint eða óbeint, þ.m.t. móðurfélag, eigendur og fjölskyldur þeirra, stórir fjárfestar, lykilstarfsmenn og fjölskyldur sem og aðilar sem er stjórnað af eða eru verulega háðir félaginu, s.s. hlutdeildarfélög og samrekstrarfélög.
Félagið hefur gert kaupréttarsamninga við starfsmenn, sjá nánar í skýringu 9.
Upplýsingar varðandi tengda aðila eru eftirfarandi:
Engin veruleg viðskipti voru við tengda aðila árin 2021 og 2020.
| Stöður við tengd félög árið 2021: | Kröfur | Skuldir |
|---|---|---|
| Klappir ehf. (tengdur aðili eins hluthafa) | 35.344.694 | |
| 0 | 35.344.694 | |
| Stöður við tengd félög árið 2020: | Kröfur | Skuldir |
| Klappir ehf. (tengdur aðili eins hluthafa) | 35.000.000 | |
| 0 | 35.000.000 |
Viðskipti við tengda aðila eru á sömu kjörum og efum ótengda aðila væri að ræða.
15. Önnur mál
Á árunum 2017-2021 hefur samstæðan unnið að þróun á hugbúnaði. Stærsti hluti verkefnisins, sem samanstendur að mestu leyti af launakostnaði, hefur verið gjaldfærður í rekstrarreikningi. Samstæðan fékk á árinu 2021 staðfestingu frá Rannís þess efnis að þróunarverkefnið hafi verið samþykkt á grundvelli laga nr. 152/2009. Með staðfestingunni öðlaðist félagið rétt á sérstakri endurgreiðslu byggt á beinum kostnaði við verkefnið. Samstæðan mun sækja um endurgreiðsluna í tengslum við skattskil félagsins vegna ársins 2021. Áætluð endurgreiðsla kostnaðar vegna verkefnanna á tímabilinu 1.1.-30.06 á árinu 2021 nemur 45,4 m.kr.
17. Reikningsskilaaðferðir
Erlendir gjaldmiðlar
Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð á gildandi gengi þess dags sem viðskiptin fara fram. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi í lok reikningsskiladags. Gengismunur sem myndast er færður í rekstrarreikning.
Skráning tekna
Tekjur af vörusölu [og þjónustu] eru færðar þegar til þeirra hefur verið unnið. Vörusala er skráð þegar yfirráð yfir seldri vöru flytjast yfir til kaupanda, sem er almennt við afhendingu vöru. Þjónustutekjur eru eftir atvikum færðar á þeim tímapunkti þegar þjónustan hefur verið innt af hendi, eða samhliða því sem þjónustan er veitt. Sala er sýnd í rekstrarreikningi að teknu tilliti til afslátta. Tekjur, sem innheimtar hafa verið á reikningsárinu en varða síðari reikningsár, eru færðar til skuldar í efnahagsreikningi sem fyrirframinnheimtar tekjur. Tekjur, sem varða reikningsárið en innheimtast eftir lok þess, eru færðar til eignar í efnahagsreikningi. Tekjur af verkum í vinnslu eru færðar miðað við verkstöðu þeirra í lok tímabils.
Skráning gjalda
Gjöld sem stofnað er til við öflun tekna á tímabilinu eru færð sem rekstrarkostnaður. Gjöld sem stofnað er til á reikningsárinu en varða síðari reikningsár eru færð til eignar í efnahagsreikningi sem fyrirframgreiddur kostnaður. Gjöld sem varða reikningsárið en koma til greiðslu síðar, eru færð til skuldar sem áfallinn kostnaður í efnahagsreikningi.
Klappir grænar lausnir hf. - árshlutareikningur samstæðu 30.6.2021
Skýringar
17. Reikningsskilaaðferðir, frh.
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Vaxtatekjur eru færðar fyrir viðkomandi tímabil í samræmi við viðeigandi höfuðstól og vaxtaprósentu.
Fjármagnsgjöld eru færð í rekstrarreikning á því tímabili sem þau falla til. Lántökukostnaður er eignfærður og afskrifáður línulega yfir líftíma lánsins.
Viðskipti í öðrum myntum en íslenskum krónum eru umreiknuð yfir í krónur á gengi viðskiptadags. Gengismunur sem myndast við greiðslu skulda og innheimtu krafna er færður í rekstrarreikning. Peningalegar eignir og skuldir í erlendri mynt eru umreiknaðar miðað við gengi myntar árslok og er áfallinn gengismunur færður í rekstrarreikning á meðal fjármagnsliða.
Skattamál
Tekjuskattur er reiknaður og færður í ársreikninginn. Útreikningur hans byggir á afkomu fyrir skatta að teknu tilliti til varanlegra mismuna á skattalegri afkomu og afkomu samkvæmt ársreikningi. Tekjuskattshlutfall er 20%.
Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára.
Frestaður skattur stafar af mismun efnahagsliða í skattuppgjóri annars vegar og ársreikningi hins vegar. Mismunurinn stafar af því að tekjuskattsstofn félagsins er miðaður við aðrar forsendur en reikningsskil þess.
Tekjuskattseign er metin á reikningskiladegi og er einungis færð að því marki sem líklegt er að hún nýtist á móti skattskyldum hagnaði í framtíðinni.
Varanlegir rekstrarfjármunir
Eignir eru skráðar meðal varanlegra rekstrarfjármuna þegar líklegt er að hagrænn ávinningur tengdur eigninni muni nýtast félaginu og hægt er að meta kostnað vegna eignarinnar með áreiðanlegum hætti. Varanlegir rekstrarfjármunir eru upphafllega skráðir á kostnaðarverði. Kostnaðarverð varanlegra rekstrarfjármuna samanstendur af kaupverði og öllum beinum kostnaði við að koma eigninni í tekju hæft ástand.
Varanlegir rekstrarfjármunir eru afskrifáðir línulega á áætluðum nýtingartíma þeirra, að teknu tilliti til vænts hrakvirðis.
Hagnaður eða tap vegna sölu eigna er mismunur söluverðs og bókfærðs verðs eigna á söludegi, og er færður við rekstrarreikning við sölu.
Viðskiptavild
Viðskiptavild myndast við sameiningar félaga eða kaup á rekstri er mismunur á kaupverði og gangvirði hreinna eigna. Viðskiptavild er afskrifuð línulega á 10 árum.
Óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir eru einungis eignfærðar þegar líklegt er að hagrænn ávinningur tengdur eigninni muni nýtast félaginu og hægt er að meta kostnaðarverð eignarinnar með áreiðanlegum hætti. Meðal óefnislegar eigna eru eignir vegna hugbúnaðar og þróunarkostnaðar. Eignir þessar eru afskrifáður með kerfisbundnum hætti á áætluðum nýtingartíma viðkomandi eigna og eru reiknaðar afskriftir hvers tímabils færðar í rekstrarreikning. Val á afskriftaráferð skal miðast við notkun á viðkomandi eign á nýtingartíma hennar. Þróunarkostnaður er afskrifáður á 5 árum.
Eignarhlutar í dótturfélögum
Dótturfélög eru félög þar sem móðurfélagið fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir; hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttöku í fjárfestingunni, og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni. Eignarhlutar í dótturfélögum eru færðir samkvæmt hlutdeildaráferð og því færðir á kostnaðarverði að teknu tilliti til hlutdeildar í rekstri og annarra breytinga á eignir fé, og virðisrýrnunar einstakra fjárfestinga. Tap dótturfélaga umfram hlutdeild er aðeins gjaldfært hafi félagið gengist í ábyrgð eða stofnað til skuldbindinga fyrir þeirra hönd.
Klappir grænar lausnir hf. - árshlutareikningur samstæðu 30.6.2021
Skýringar
17. Reikningsskilaaðferðir, frh.
Eignarhlutar í hlutdeildarfélögum
Til hlutdeildarfélaga teljast félög þar sem fjárfestir hefur veruleg áhrif á rekstrar- og fjármálastefnu. Félag er álitið hafa veruleg áhrif í öðru félagi ef það á 20% eða meira af atkvæðisrétti félagsaðila í því fyrirtæki, án þess að teljast hafa yfirráð. Samkvæmt hlutdeildaraðferð eru eignarhlutar í hlutdeildarfélögum færðir á kostnaðarverði að teknu tilliti til hlutdeildar í rekstri og annarra breytinga á eigin fé, og virðisrýrnunar einstakra fjárfestinga. Tap hlutdeildarfélaga umfram hlutdeild er aðeins gjaldfært hafi félagið gengist í ábyrgð eða stofnað til skuldbindinga fyrir þeirra hönd.
Viðskiptakröfur
Viðskiptakröfur eru færðar á nafnverði að teknu tilliti til niðurfærslu. Niðurfærslan er ekki endanleg afskrift heldur er myndæður mótreikningur til að mæta hugsanlegu tapi sem kann að myndast í framtíðinni.
Handbært fé
Handbært fé félagsins samanstendur af sjóði og óbundnum bankainnstæðum.
Skuldbindingar
Skuldbindingar eru færðar upp í efnahagsreikningi ef líklegt þykir að félagið verði fyrir fjárhagslegum útgjøldum í framtíðinni vegna tiltekins atburðar eða viðskipta og hægt er að meta fjárhæð hennar með áreiðanlegum hætti.
Viðskiptaskuldir
Viðskiptaskuldir eru færðar á nafnverði að teknu tilliti til áfallins kostnaðar.
Klappir grænar lausnir hf. - árshlutareikningur samstæðu 30.6.2021