Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. Earnings Release 2018

Oct 23, 2018

8457_rns_2018-10-23_ce2c6f2c-78cf-4a6d-8181-3d48b9689588.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Klappir Grænar Lausnir hf.: Rekstur þriðja ársfjórðungs og erlend starfsemi

Klappir Grænar Lausnir hf.: Rekstur þriðja ársfjórðungs og erlend starfsemi

Klappir Grænar Lausnir hf.  –  Rekstur og erlend starfsemi.

Rekstur þriðja ársfjórðungs 2018

Rekstrartekjur samkvæmt óendurskoðu uppgjöri Klappa Grænna Lausna voru 61,4 m.kr. á þriðja ársfjórðungi ársins 2018, samanborið við 50,4 m.kr. árið áður. Vöxtur rekstrartekna milli ára er 21,8%.  Rekstrartekjur á fyrstu 9 mánuðum ársins 2018 voru 185,8 m.kr. samanborið við 148,7 m.kr. árið áður.  EBITDA á þriðja ársfjórðungi, var jákvæð um 7,0 m.kr. og á fyrstu 9 mánuðum ársins var hún jákvæð um 16,6 m.kr.

Erlend starfsemi

Klappir Grænar Lausnir hafa gert hluthafasamkomulag við Eignarhaldsfélagið Hof ehf. um rekstur á sameiginlegu félagi í Litháen, undir nafninu Klappir Lithuania UAB.  Félagið verður að 51% hluta í eigu Klappa og 49% í eigu Hofs.  Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að aðilar komi sameiginlega og í jöfnum hlutföllum, með allt að 10m.kr. í formi hlutafjár eða með víkjandi láni.  Félaginu er ætlað að annast sölu á hugbúnarlausnum Klappa í Litháen og eftir atvikum í baltnesku löndunum.  Í hluthafasamkomulaginu er ákvæði þess efnis að Hof geti að fimm árum liðnum óskað eftir því að fá framlagða fjármuni að viðbættum 8% ársvöxtum, endurgreidda.  Klappir getur þá hvort heldur sem er greitt þá fjárhæð með peningagreiðslu eða með B-hlutabréfum í Klöppum Grænum Lausnum hf. miðað við gengi bréfanna hinn 1. janúar 2023. 

Markmið Klappa með samkomulaginu er annars vegar að nýta fjármuni félagsins, sem best í útrás félagsins og hins vegar að ná til samstarfs aðila með viðskiptatengsl í baltnesku löndunum, en Hof er eigandi að IKEA verslunum í Litháen og Lettlandi.

*Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri*

“Rekstur Klappa er samkvæmt áætlun og íslenskum notendum á hugbúnaði Klappa fjölgar jafnt og þétt.  Fjórðungurinn hefur markast af því að mikil áhersla hefur verið lögð á að byggja upp erlenda starfsemi félagsins.  Byrjað er að kynna hugbúnaðarlausnir Klappa á sviði siglinga gagnvart skipafélögum og höfnum erlendis, og hafa lausnirnar fengið góðar viðtökur.  Þá er stofnun dótturfélags í Litháen fyrsta skrefið í dreifingu hugbúnaðarlausna félagsins erlendis í gegnum svæðisbundnar skrifstofur.” 

Frekari upplýsingar veitir:

Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa Grænna Lausna, sími: 664-9200.