Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. Annual Report 2020

Mar 23, 2021

8457_rns_2021-03-23_904bac93-05fe-4b6f-936f-13a7ea72c1cf.pdf

Annual Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

img-0.jpeg

KLAPPIR

Klappir Grænar Lausnir hf.

Ársreikningur samstæðunnar 2020

Klappir Grænar Lausnir hf.

Ármúla 4-6

108 Reykjavík

Kt. 630914-1080


Emisylfirlit

Samstæðursreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020

Bls.
Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra ... 3
Áritun óháðs endurskoðanda ... 5
Lykiltölur ... 7
Rekstrarreikningur ... 8
Efnahagsreikningur ... 9
Sjóðstreymisyflrit ... 10
Skýringar ... 11


Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra

Félagið var stofnað í september 2014 og er tilgangur félagsins þróun og hónnun á hugbúnaði og stjórnbúnaði, þjónusta, ráðgjöf og nauðsynleg starfsemi þessu tengd. Ennfremur rekstur fasteigna, lánastarfsemi og annar skyldur rekstur.

Ársreikningur Klappa Grænna Lausna hf. fyrir árið 2020 er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess Datadrive ehf., Heilsumats ehf. en á árinu seldi samstæðan Klappir International ltd.

Rekstartekjur samstæðunnar samkvæmt rekstrarreikningi námu 321,8 millj. kr. Tap varð á rekstri samstæðunnar árið 2020 að fjárhæð 37,6 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 484,5 millj. kr. Eigið fé í árslok nam 414,8 millj. kr. og er eigið fé sem hlutfall af heildareignum 85,6%.

Covid-19 heimsfaraldurinn hafði talsverð áhrif á rekstur samstæðunnar á árinu 2020. Strax í upphafi faraldursins settu stjórn og stjórnendur af stað viðbragðsáætlun þar sem lögð var áhersla á bæði öryggi starfsmanna og rekstursins. Þannig var starfsmönnum samstæðunnar skipt í sóttvarnarhólf, þeim starfsmönnum gefinn kostur á fjärvinu sem höfðu tök á því ásamt ýmsum breytingum á daglegum rekstri. Samstæðan nýtti sér að litlu leyti úrræði stjórnvalda varðandi hlutabætur í upphafi faraldursins en það hefur överuleg áhrif á rekstur ársins. Þrátt fyrir samkomutakmarkanir gekk starfsemin vel fyrir sig og jukust tekjur litilega. Stjórnendur telja að Covid-19 faraldurinn muni ekki hafa veruleg áhrif á rekstur fyrirtækisins til framtíðar.

Hlutafé félagsins í nam 140,2 millj. kr. í árslok 2020. Hlutafé félagsins skiptist í tvo flokka, A og B flokk, sjá nánar skýringu 19. Í lok ársins 2020 voru hluthafar félagsins 305 talsins og fækkæði þeim um 3 frá ársbyrjun 2020. Tíu stærstu hluthafarnir voru eftirfarandi í lok árs:

A hlutir B hlutir Atkvæðaréttur
Kvistar eignarhaldsfélag ehf. 48.275.375 18.773.950 96,55%
VPS ehf. 0 18.005.000 0,00%
Sindrandi ehf. 0 14.540.384 0,00%
Pund ehf. 0 5.000.000 0,00%
Nýsköpunarsjóður atvinnulifsins 0 3.619.579 0,00%
Eyktarsalir ehf. 200.000 2.845.350 0,00%
Kjalvegur ehf. 0 3.000.000 0,00%
Stey ehf. 0 3.000.000 0,00%
Dexter Fjárfestingar ehf. 0 2.600.000 0,00%
Svana Helen Björnsdóttir 0 2.389.947 0,00%
Aðrir hluthafar (295) 1.524.625 16.379.040 3,45%
50.000.000 90.153.250 100,00%

Stjórnarhættir

Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum og að fylgja „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja“ gefnar út af Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulifsins. Stjórninn hefur sett sér starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint sem og verksvið gagnvart forstjóra. Í reglunum má einnig finna reglur um fundarsköp, reglur um hæfi stjórnarmanna, reglur um þagnarskyldu, upplýsingagjöf forstjóra gagnvart stjórn og fleira. Hlutfall kynja í stjórn félagsins eru þrjár konur (60%) og tveir karlar (40%).

Samfélagsleg ábyrgð

Stjórn vísar á frekari umfjöllun um Sjálfbærniskýrslu (e. Sustainability Report) og sjálfbærniuppgjör (e. Sustainability Statement) á heimasíðu félagsins www.klappir.is.

Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra, frh.:

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er ársreikningur félagsins í samræmi við lög um ársreikninga og er það álit stjórnar og forstjóra að ársreikningurinn gefi glógga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu 31. desember 2020 og rekstrarafkomu félagsins og breytingu á handbæru fé á árinu 2020.

Stjórn og forstjóri Klappa Grænna Lausna hf. hafa í dag rætt ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2020 og staðfest hann með undirritun sinni. Stjórn og forstjóri leggja til við aðalfund að samþykkja ársreikninginn.

Reykjavik, 23. mars 2021.

Í stjórn félagsins:

img-1.jpeg

Forstjóri:

img-2.jpeg

Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Áritun óháðs endurskoðanda

Stjórn og hluthafar Klappa Grænna Lausna hf.

Áritun um endurskoðun samstæðuársreikningsins

Álit

Við höfum endurskoðað samstæðuársreikning Klappa Grænna lausna hf. („samstæðan“) fyrir árið 2020. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning efnahagsreikning, sjóðstreymisyfirli, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu samstæðunnar 31. desember 2020 og afkomu samstæðunnar og breytingu á handbæru fé á árinu 2020, í samræmi við lög um ársreikninga.

Grundvöllur álits

Við endurskoðuðum í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er lýst frekar í kaflanum. Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins í árituninni. Við erum óháð samstæðunni í samræmi við gildandi síðareglur fyrir endurskoðendur. Við teljum að við höfum aflað nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna til að byggja álit okkar á.

Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuársreikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við lög um ársreikninga og fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram samstæðuársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Við gerð samstæðuársreikningsins ber stjórn og forstjóri að leggja mat á rekstrarhæfi samstæðunnar og upplýsa, eftir því sem við á, um þætti er varða rekstrarhæfi og miða grundvöll reikningsskilanna við áframhaldandi rekstrarhæfi, nema þau ætli annað hvort að leysa samstæðuna upp eða hætta starfsemi hennar, eða hafa engan annan raunhæfan kost en að gera það.

Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins

Markmið okkar eru að öðlast hæfilega vissu um hvort samstæðuársreikningurinn í heild sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, og að gefa út áritun endurskoðanda sem inniheldur álit okkar. Í hæfilegri vissu felst áreiðanleiki en ekki trygging fyrir því að endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni alltaf leiða í ljós verulega annmarka ef þeir eru fyrir hendi. Annmarkar geta komið fram vegna sviksemi eða mistaka og eru taldir verulegir ef þeir einir og sér eða samanlagt gætu haft áhrif á efnahagslegar ákvarðanir sem notendur samstæðuársreikningsins taka á grundvöll hans.

Við endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla beitum við ávallt faglegri dómgreind og viðhöfum faglega gagnrýni. Að auki:

  • Greinum við og metum hættu á verulegri skekkju í samstæðuársreikningnum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, skipuleggjum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, fölsun, að einhverju sé viljandi sleppt, villandi framsetningu eða að farið sé framhjá innra eftirliti.

  • Öflum við skilnings á innra eftirliti, sem varðar endurskoðunina, til að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits samstæðunnar.

  • Metum við hvort reikningsskilaaðferðir og reikningshaldslegt mat stjórnenda og tengdar skýringar séu viðeigandi.

Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Áritun óháðs endurskoðanda, frh.:

Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins, frh.:

  • Ályktum við um hvort notkun stjórnar og forstjóra á forsendu reikningsskilanna um rekstrarhaefi sé viðeigandi og metum, á grundvelli endurskoðunarinnar, hvort aðstæður séu til staðar sem valdið gætu verulegum vafa um rekstrarhaefi samstæðunnar. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhaefi ber okkur, í áritun okkar, að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum samstæðuársreikningsins eða, ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi, að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Samt sem áður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni gert samstæðuna órekstrarhaefa.

  • Metum við framsetningu, uppbyggingu og innihald samstæðuársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum, og hvort samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.

  • Öflum nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna varðandi fjárhagslegar upplýsingar eininga innan samstæðunnar til að geta gefið álit á samstæðuársreikningnum. Við erum ábyrg fyrir skipulagi, eftirliti og framkvæmd endurskoðunar samstæðunnar og berum óskipta ábyrgð á áritun okkar.

Við upplýsum stjórn meðal annars um áætlað umfang og tímasetningar endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.

Staðfesting vegna annarra ákvæða laga

Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir þessum samstæðuársreikningi eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.

Reykjavík, 23. mars 2021.

KPMG ehf.

img-3.jpeg

Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Sykiltölur

2020 2019
Rekstrarreikningur
Rekstartekjur 321.842.318 311.980.349
Hagnaður fyrir afskriftir, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (EBITDA) 25.177.429 (39.910.518)
Tap ársins (37.595.088) (149.663.374)
Tap í hlutfalli af rekstartekjum (11,7%) (48,0%)
Arðsemi eigin fjár (9,7%) (49,2%)
EBITDA - hlutfall 7,8% (12,8%)
Arðsemi heildareigna (7,7%) (35,9%)
31.12.2020 31.12.2019
Efnahagsreikningur
Heildareignir 484.535.474 490.576.373
Eigið fé hluthafa móðurfélags 414.779.373 357.498.979
Skuldir samtals 69.756.101 133.077.394
Eigið fé og skuldir samtals 484.535.474 490.576.373
Veltufjárhlutfall - veltufjármunir/skammelmaskuldir 6,4 2,8
Eiginfjárhlutafall - eigið fé / heildarfjármagn 85,6% 72,9%
Innra virði hlutafjár - eigið fé / hlutafé 3,0 2,7

Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Rekstrarreikningur ársins 2020

Skýr. 2020 2019
Rekstrartekjur
Sala 232.795.301 214.115.133
Aðrar tekjur 11 89.047.017 97.865.216
321.842.318 311.980.349
Rekstrargjöld
Laun og launatengd gjöld 12 204.350.889 211.870.441
Annar rekstarkostnaður 92.314.000 140.020.426
296.664.889 351.890.867
Hagnaður (tap) fyrir afskriftir, fjármunatekjur, fjármagnsgjöld og tekjuskatt (EBITDA) 25.177.429 ( 39.910.518)
Afskriftir og niðurfærsla 14, 15 ( 58.616.026) ( 76.449.205)
Rekstrartap ( 33.438.597) ( 116.359.723)
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)
Vaxtatekjur 245.643 1.322.449
Vaxtagjöld ( 3.893.914) ( 7.706.142)
Gengismunur ( 337.848) 103.160
( 3.986.119) ( 6.280.533)
Áhrif dötturfélaga 16 ( 170.372) ( 27.023.118)
Tap ársins 20 ( 37.595.088) ( 149.663.374)
Tap skiptist þannig:
Hluthafar móðurfélags ( 37.595.088) ( 149.663.374)
Minnihuti í dötturfélagi 0 0
Tap ársins 20 ( 37.595.088) ( 149.663.374)

Samstæðuárreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Efnahagsreikningur 31. desember 2020

Skýr. 31.12.2020 31.12.2019
Eignir
Óefnislegar eignir 14 236.614.079 274.083.421
Rekstarfjármunir 15 2.490.000 3.650.000
Skatteign 17 21.320.520 21.320.520
Fastafjármunir 260.424.599 299.053.941
Viðskiptakrófur 40.171.895 59.227.993
Aðrar skammtímakrófur 18 103.255.161 69.968.410
Handbært fé 80.683.819 62.326.029
Veltufjármunir 224.110.875 191.522.432
Eignir samtals 484.535.474 490.576.373
Eigið fé
Hlutafé 19 140.153.700 134.026.661
Yfirverðsreikningur hlutafjár 494.199.198 405.450.755
Bundið eigið fé 77.144.267 101.921.114
Ójafnað eigið fé 20 ( 296.717.792) ( 283.899.551)
Eigið fé samtals 414.779.373 357.498.979
Skuldir
Langtímalán við tengda aðila 21 35.000.000 65.000.000
Langtímaskuldir 35.000.000 65.000.000
Viðskiptaskuldir 5.183.370 27.517.701
Skuldir við tengda aðila 21 0 1.859.661
Aðrar skammtímaskuldir 29.572.731 38.700.032
Skammtímaskuldir 34.756.101 68.077.394
Skuldir samtals 69.756.101 133.077.394
Eigið fé og skuldir samtals 484.535.474 490.576.373

Samstæðuárreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Sjóðstreymisyfirlit ársins 2020

Skýr. 2020 2019
Rekstrarhreyfingar
Tap ársins 20 ( 37.595.088) ( 149.663.374)
Rekstrarlíðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 14,15 58.616.026 76.449.205
Áhrif dótturfélaga 170.372 27.023.118
Veltufé frá (til) rekstrar 21.191.310 ( 46.191.051)
Breytingar rekstrartengdra eigna og skulda:
Skammtímakrófur, hækkun ( 14.458.305) ( 9.200.524)
Skammtímaskuldir, (lækkun) hækkun ( 31.416.347) 20.668.012
Breytingar rekstrart. eigna og skulda ( 45.874.652) 11.467.488
Handbært fé til rekstrar ( 24.683.342) ( 34.723.563)
Fjárfestingarhreýfingar
Fjárfestingar í óefnislegum eignum 14 ( 19.986.684) ( 20.631.493)
Fjárfestingar í rekstrarfjármunum 15 0 ( 1.800.000)
Fjárfest í eignarhlutum í dótturfélögum 14 0 ( 967.994)
Sóluverð að frádregnu handbæru fé ( 645.444) 0
Fjárfestingarhreýfingar ( 20.632.128) ( 23.399.487)
Fjármögnunarhreýfingar
Innborgað hlutafé 20 64.875.482 137.773.917
Áfborgun langtímáláns ( 15.000.000)
Tengdir aðilar breyting ( 1.202.222) ( 6.700.087)
Fjármögnunarhreýfingar 63.673.260 116.073.830
Hækkun á handbæru fé á árinu 18.357.790 57.950.780
Handbært fé í ársbyrjun 62.326.029 4.375.249
Handbært fé í árslok 80.683.819 62.326.029

Samstæðuárseikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Skýringar

Reikningsskilaaðferðir

1. Grundvöllur reikningsskila

Ársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélags þess, Datadrive ehf. Heilsumats ehf. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga. Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum og byggir á kostnaðarverðsreikningsskilum. Ársreikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður.

Mat og ákvarðanir

Við gerð ársreiknings þurfa stjórnendur, í samræmi við lög um ársreikninga, að taka ákvarðanir, meta og draga ályktanir sem hafa áhrif á eignir og skuldir á reikningsskiladegi, svo og upplýsingar í skýringum. Við mat og ályktanir er byggt á reynslu og ýmsum öðrum þáttum sem taldir eru viðeigandi og myndu grundvöll þeirra ákvarðana sem teknar eru um bókfært verð eigna og skulda sem ekki liggur fyrir með öðrum hætti.

2. Innlausn tekna

Tekjur af sölu á vörum eru færðar í rekstrarreikning þegar eignarhald flyst til kaupanda. Leigutekjur af fastafjármunum eru færðar línulega í rekstrarreikning á leigutímanum. Afslættir sem eru veittir eru færðir með sama hætti. Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning á því tímabili sem þjónustan er veitt. Tekjur eru ekki færðar ef veruleg óvissa er um innheimtu þeirra. Tekjur af verkum í vinnslu eru færðar miðað við verkstöðu þeirra í árslok. Tekjur eru ekki færðar ef veruleg óvissa er um innheimtu þeirra, tengdan kostnað eða að vörunni verði mögulega skilað.

3. Erlendir gjaldmiðlar

Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi í lok reikningsárs. Gengismunur sem myndast er færður í rekstrarreikning.

4. Óefnislegar eignir

Óefnislegar eignir eru færðar til eignar á kostnaðarverði að frádreginni niðurfærslu. Viðskiptavild sem myndast annars vegar við kaup á eignarhlutum í dóttur- og hlutdeildarfélögum svarar til mismunar á upphaflægu kaupverði eignarhlutans og hlutdeild í hreinni eign félags á kaupdegi hins vegar og með kaupum á rekstri. Hrein eign innifelur bókfært eigið fé félags, ef við á endurmat bókfærðra eigna og skulda og virði eigna og skulda sem ekki eru bókfærðar í reikningsskilum félagsins. Viðskiptavild er færð á kostnaðarverði að frádreginni niðurfærslu. Viðskiptavild er færð niður á 10 árum. Aðrar óefnislegar eignir félagsins eru hugbúnaður sem er færður niður á 5 árum.

5. Rekstrarfjármunir

Rekstrarfjármunir eru færðir til eignar á kostnaðarverði að frádregnum afskriftum og virðisrýrnun. Afskriftir eru reiknaðar sem fastur hundraðshluti miðað við áætlaðan nýtingartíma rekstrarfjármuna. Rekstarfjármunir eru færðir niður á 5 árum.

6. Eignarhlutir í öðrum félögum

Fárfestingar samstæðunnar í hlutabréfum eru bókfærðar á markaðsverði þar sem það liggur fyrir annars kostnaðarverði eða endurmetnu kostnaðarverði.

7. Birgðir

Birgðir samstæðunnar samanstanda af vörum til endursölu. Birgðir eru metnar á kostnaðarverði að teknu tilliti til gallaðra og úreltra vara.

8. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur

Viðskiptakröfur og aðrar kröfur eru færðar niður um til að mæta almennri áhættu sem fylgir kröfueign félagsins, en hér er ekki um endanlega afskrift að ræða. Annars vegar er um að ræða niðurfærslu vegna krafna sem sérstaklega hafa verið metnar í tapshættu og hins vegar niðurfærslu til að mæta almennri áhættu. Niðurfærslan er dregin frá viðskiptakröfum í efnahagsreikningi.

Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Skýringar, frh.:

9. Handbært fé

Sjöður og bankainnstæður teljast til handbærs fjár.

10. Skatteign

Skatteign er reiknuð og færð í ársreikninginn. Útreikningur hennar byggist á mismun efnahagsliða samkvæmt skattuppgjöri annars vegar og ársreikningi félagsins hins vegar. Mismunur sem þannig kemur fram stafar af því að álagning tekjuskatts er miðuð við aðrar forsendur en reikningsskil félagsins og er þar í meginatriðum um að ræða tímamismun vegna þess að gjöld, einkum afskriftir eru að jafnaði færð fyrr í skattuppgjöri en reikningsskilunum.

Reiknuð skatteign er einungis færð að því marki sem líklegt er talið að skattskyldur hagnaður verði til ráðstöfunar í framtíðinni, sem unnt verður að nýta eignina á móti. Skatteign er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er að hún korni ekki til með að nýtast.

11. Aðrar tekjur

Aðrar tekjur greinast þannig 2020 2019
Skattaivilnun Rannís 89.047.017 82.283.659
Mótteknir styrkir 0 15.581.557
89.047.017 97.865.216

12. Laun og launatengd gjöld

Laun og launatengd gjöld greinast þannig:

Laun 188.910.645 193.572.824
Áfallið orlof breyting 1.965.883 ( 2.373.239)
Launatengd gjöld og annar starfsmannakostnaður 44.223.106 46.460.221
Samtals 235.099.634 237.659.806
Eignfærð laun ( 30.748.745) ( 25.789.365)
Laun og launatengd gjöld samtals 204.350.889 211.870.441
Meðalfjöldi ársverka 20 22

Laun til forstjóra námu 8,4 millj. kr. (2019: 9,3 millj. kr.). Laun stjórnar námu 2,2 millj. kr.

13. Tekjuskattur

Tekjuskattur í rekstrarreikningi greinist þannig:

Virkt skatthlutfall 2020 2019
Tap fyrir tekjuskatt ( 37.595.088) ( 149.663.374)
Tekjuskattur miðað við gildandi skatthlutfall ( 20,0% ) 7.519.018 ( 20,0% ) 29.932.675
Óskattskyldar tekjur ( 53,0% ) 19.934.263 ( 11,7% ) 17.488.306
Öfrádráttarbær kostnaður 16,2% ( 6.082.779) 11,9% ( 17.751.669)
Niðurfærsla skatteignar 56,8% ( 21.370.502) 19,8% ( 29.669.312)
Virkur tekjuskattur 0,0% 0 0,0% ( 0)

Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Skýringar, frh.:

  1. Óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir greinast þannig: Viðskiptavild Hugbúnaður Samtals
Heildarverð 1.1.2020 181.154.753 226.671.568 407.826.321
Eignfært á árinu 0 19.986.684 19.986.684
Heildarverð 31.12.2020 181.154.753 246.658.252 427.813.005
Niðurfært 1.1.2020 55.842.126 77.900.774 133.742.900
Niðurfært á árinu 17.920.881 39.535.145 57.456.026
Niðurfært 31.12.2020 73.763.007 117.435.919 191.198.926
Bókfært verð 1.1.2020 125.312.627 148.770.794 274.083.421
Bókfært verð 31.12.2020 107.391.746 129.222.333 236.614.079
Niðurfærsluhlutfall 10,0% 20,0%

Siðustu árin hefur samstæðan unnið að þróun á hugbúnaðar og hefur stærsti hluti kostnaður vegna þróunarinnar, sem samanstendur af launakostnaði og öðrum rekstarkostnaði, verið gjaldfærður í rekstarreikningi. Til samræmis hafa styrkir verið tekjufærðir á meðal annarra tekna í rekstrarreikning. Á árinu nemur eignfærður þróunarkostnaður hugbúnaðar að frádregnum hlutdeild í áætlaðri endurgreiðslu vegna skattaivilnunar Rannís 20,0 millj. kr.

  1. Rekstrarfjármunir
Rekstrarfjármunir greinast þannig: Tólvubúnaður
Heildarverð 1.1.2020 5.146.859
Viðbót á árinu 0
Heildarverð 31.12.2020 5.146.859
Afskrifað samtals 1.1.2020 1.496.859
Afskrifað á árinu 1.160.000
Afskrifað samtals 31.12.2020 2.656.859
Bókfært verð 31.12.2020 2.490.000
Afskriftarhlutfall 20,0%
2020 2019
Afskriftir greinast þannig:
Niðurfærsla óefnislegra eigna sbr. skýringu 14 57.456.026 75.956.404
Afskriftir rekstrarfjármuna sbr. skýringu 15 1.160.000 492.801
Afskriftir í rekstarreikningi 58.616.026 76.449.205
  1. Eignarhlutur í öðrum félögum

Á árinu seldi félagið eignarhlut sinn í Klappir International ltd. í Bretland.

Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Skýringar, frh.:

17. Skatteign

Skatteign félagsins samkvæmt efnahagsreikningi greinist pannig:

31.12.2020 31.12.2019
Skatteign 1.1. 21.320.520 0
Fært inn með sumruna 0 21.320.520
Tekjuskattur í rekstrarreikningi 0 0
Skatteign 31.12 21.320.520 21.320.520

Skatteign skiptist pannig:

Óefnislegar eignir 7.956.897 5.128.289
Aðrir liðir 2.008.157 945.232
Yfirfæranlegt skattalegt tap 138.782.290 119.626.812
Skatteign samtals 148.747.344 125.700.333
Niðurfærsla vegna óvissu um nýtingu á yfirfæranlegu tapi ( 127.426.824) ( 104.379.813)
Skatteign samtals skv. efnahagsreikningi 21.320.520 21.320.520

Í lok árs 2020 nam yfirfæranlegt tap samstæðunnar 694,7 millj.kr. Yfirfæranlegt skattalegt tap er nýtanlegt á móti skattskyldum tekjum í tiu ár frá því að það fellur til. Skattalegt tap félagsins greinst pannig í árslok 2020:

Samstæða

Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2011, nýtanlegt til ársins 2021 10.830.034
Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2012, nýtanlegt til ársins 2022 10.488.983
Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2013, nýtanlegt til ársins 2023 12.735.553
Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2014, nýtanlegt til ársins 2024 55.108.662
Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2015, nýtanlegt til ársins 2025 80.817.277
Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2016, nýtanlegt til ársins 2026 83.025.148
Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2017, nýtanlegt til ársins 2027 103.486.501
Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2018, nýtanlegt til ársins 2028 41.992.271
Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2019, nýtanlegt til ársins 2029 176.513.437
Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2020, nýtanlegt til ársins 2030 119.663.585
Samtals 694.661.451

18. Aðrar skammtímakrófur

Aðrar skammtímakrófur greinast pannig:

31.12.2020 31.12.2019
Skattívilnun Rannís 99.608.994 66.340.216
Aðrar skammtímakrófur 3.646.167 3.628.194
Aðrar skammtímakrófur samtals 103.255.161 69.968.410

Áætluð endurgreiðsla að fjárhæð 99,6 millj. kr. vegna skattívilnunar Rannís sem tilheyrir árinu 2020 verður greidd við álagningu opinbera gjalda í oktober 2021.

19. Eigið fé

Hlutafé félagsins í árslok er 134,0 millj. kr. að nafnverði.

Hlutir félagsins skiptast í A og B hluti. Í A hlutaflokki eru útgefnir 50,0 millj. hlutir, hver hlutur í A flokki er að fjárhæð ein króna að nafnverði og eitt atkvæði fylgir hverri krónu í hlutafjár. Í B hlutaflokki eru útgefnir 84,0 millj. hlutir, hlutir í B flokki hafa ekki atkvæðisrétt en að öðru leyti eru hafa flokkarnir sömu réttindi.

Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Skýringar, frh.:

20. Yfirlit um eiginfjárreikninga:
Hlutafé Yfirverðs-reikningur Bundið eigið fé Ójafnað eigið fé Samtals
Eigið fé 1.1.2020 ... 134.026.661 405.450.755 101.921.114 ( 283.899.551) 357.498.979
Innborgað hlutafé ... 6.127.039 88.748.443 94.875.482
Þróunarkostnaður ... ( 24.776.847) 24.776.847 0
Tap ársins ... ( 37.595.088) ( 37.595.088)
Eigið fé 31.12.2020 ... 140.153.700 494.199.198 77.144.267 ( 296.717.792) 414.779.373

Á hluthafafundi félagins þann 22. nóvember 2016, var samþykkt heimild til stjórnar um að hækka hlutafé félagsins vegna útgáfu kaupréttta til starfsmanna félagsins. Samkvæmt samþyktinni var hækkunin að fjárhæð allt að 240.000 kr. og í B-flokki hlutabréfa. Með útgáfu jöfnunarhlutabréfa hækkaði þessi heimild í 6.000.000 kr. Á stjórnarfundi þann 23. nóvember 2016, var kaupréttaráætlun fyrir félagið samþykkt af stjórn félagsins.

Þann 2. desember 2016 var ríkisskattstjóra sent erindi með beiðni um staðfestingu á kaupréttaráætlun félagsins, í samræmi við 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Með bréfi ríkisskattstjóra, dags. 7. apríl 2017 var kaupréttaráætlun félagsins staðfest.

Félagið hefur í lok ársins gefið út kaupréttarsamninga til starfmanna að nafnverði 1.564.616 kr. Samkvæmt samningum þá ávinnst kauprétturinn í jöfnum hlutföllum á 4 árum. Samningur fellur úr gildi átta árum frá útgáfudegi. Um kaupréttaráætlun og kaupréttarsamninga félagsins gilda almennar reglur um slíka samninga sem fást viðurkenndir af Ríkisskattstjóra, meðal annars að samningar bjóðast öllum starfsmönnum og hámark innlausnar er 600.000 kr. á ári.

Samkvæmt lögum nr. 73/2016 um ársreikninga ber félögum að færa þá fjárhæð sem nemur eignfærðum þróunarkostnaði á bundinn reikning á meðal eigin fjár.

21. Tengdir aðilar

Stjórnarmenn, hluthafar, dótturfélög, félög í meirihlutaeigu hluthafa og stjórnendur teljast vera tengdir aðilar félagsins. Langtímaskuldir og skammtímakrófur móðurfélagins við tengda aðila sundurliðast þannig í lok ársins:

Krófur Skuldir
Klappir ehf. (tengdur aðili eins hluthafa) 0 35.000.000

Langtímalán félagins við tengdan aðila mun allt koma til greiðslu með einni afborgun á árinu 2022.

Á meðal vaxtagjalda eru gjaldfærðar 3,8 millj. kr. á árinu 2020 (2019: 5,6 millj. kr.) til tengdra aðila sömuleiðis nam gjaldfærð þjónusta til tengdra aðila á árinu 2020 aðila 4,7 millj. kr. (2019: 5,4 millj. kr.).

22. Önnur mál

Á árunum 2017-2020 vann samstæðan að þróun á hugbúnaði. Stærsti hluti verkefnisins, sem samanstendur að mestu leyti af launakostnaði, hefur verið gjaldfærður í rekstrareikningi. Samstæðan fékk á árinu 2020 staðfestingu frá Rannís þess efnis að þróunarverkefnið hafi verið samþykkt á grundvelli laga nr. 152/2009. Með staðfestingunni öðlaðist félagið rétt á sérstakri endurgreiðslu byggt á beinum kostnaði við verkefnið. Samstæðan mun sækja um endurgreiðsluna í tengslum við skattskil félagins vegna ársins 2020. Áætlúð endurgreiðsla kostnaðar vegna verkefnanna á árinu 2020 nemur 99,7 millj. kr. og hefur 89,0 millj. kr. verið tekjufærð meðal annarra tekna í rekstarreikning, 10,7 millj. kr. verið færðar til lækkunar á eignfærðumhugbúnaði.

Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020


Skýringar, frh.:

  1. Dótturfélög
Eignarhluti Afkoma timabilsins Eigið fé
Datadrive ehf., Reykjavík 100,0% 5.959.287 7.030.598
Heilsumat ehf., Reykjavík 100,0% 656.690 ( 6.970.385)

Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2020