AI assistant
Klappir Grænar Lausnir hf. — Annual Report 2017
Feb 27, 2018
8457_rns_2018-02-27_6896a4f7-11f1-4e01-9e77-4bfe54009ca2.pdf
Annual Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Klappir Grænar Lausnir hf.
Årsreikningur samstæðunnar 2017
Klappir Grænar Lausnir hf.
Austurstræti 17
101 Reykjavik
Kt. 630914-1080
Emisføring
Efnisfirlit
| Skyrsla og áritun stjórnar og framkvæmdastjóra | 3 |
|---|---|
| Áritun óháðs endurskoðanda | 5 |
| Lykiltölur | 7 |
| Rekstrarreikningur | 8 |
| Efnahagsreikningur | 9 |
| Sjóðstreymisfirlit | 10 |
| Skýringar | 11 |
Samstæðuésreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Skýrsla og áritun stjórnar og framkvæmdastjóra
Félagið var stofnað í september 2014 og er tilgangur félagsins kaup, sala og eignarhald verðbréfa, eign, leiga og rekstur fasteigna, lánastarfsemi, önnur fjármálastarfsemi og skyldur rekstur.
Ársreikningur Klappa Grænna Lausna hf. fyrir árið 2017 er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélags þess.
Rekstartekjur samstæðunnar samkvæmt rekstrarreikningi námú 210,5 millj. kr. Tap varð á rekstri samstæðunnar árið 2017 að fjárhæð 48,2 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Samkvæmt efnahagsreikningi námú eignir samstæðunnar 362,0 millj. kr. Eigið fé í lok tímabilsins nam 259,4 millj. kr. og er eigið fé sem hlutfall af heildareignum var 71,7%.
Í upphafi árs fjárfesti félagið í 43,8% eignarhlut í ARK Technology ehf. En fyrir átti félagið 66,2% eignarhlut, voru félögin sameinuð í kjólfarið og miðast samrunnin við 1. janúar 2017. Heildarkaupverð eignarhlutans nam 188,5 millj. kr.
Hlutafé félagsins í nam 116,5 millj. kr. í árslok 2017 en hlutafé félagsins var aukið um 16,0 millj. kr. að nafnverði á árinu og nam heildar innborgað nýtt hlutafé 133,1 millj. kr. Hlutafé félagsins skiptist í tvo flokka, A og B flokk, sjá nánar skýringu 17. Í lok ársins voru hluthafar félagsins 328 talsins og fjölgaði þeim um 294 frá ársbyrjun 2017. Ellefu stærstu hluthafarnir voru eftirfarandi í lok árs:
| A hlutir | B hlutir | Atkvæðaréttur | |
|---|---|---|---|
| Kvistar eignarhaldsfélag ehf. | 48.275.375 | 18.773.950 | 96,55% |
| E-ASK ehf. | 0 | 9.000.000 | 0,00% |
| GEVA ehf. | 0 | 9.000.000 | 0,00% |
| Tennin ehf. | 0 | 4.000.000 | 0,00% |
| Pund ehf. | 0 | 4.000.000 | 0,00% |
| Eyktarsalir ehf. | 200.000 | 2.845.350 | 0,40% |
| Sindrandi ehf. | 0 | 2.400.000 | 0,00% |
| Þorrasalir ehf. | 200.000 | 2.245.350 | 0,40% |
| GBV 17 ehf. | 0 | 2.005.000 | 0,00% |
| Kjalvegur ehf. | 0 | 2.000.000 | 0,00% |
| Stey ehf. | 0 | 2.000.000 | 0,00% |
Stjórnarhættir
Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum og að fylgja „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja“ sem Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtök atvinnulifsins. Stjórninn hefur sett sér starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint sem og verksvið gagnvart framkvæmdastjóra. Í reglunum má einnig finna reglur um fundarskóp, reglur um hæfi stjórnarmanna, reglur um þagnarskyldu, upplýsingagjóf framkvæmdastjóra gagnvart stjórn og fleira. Hlutfall kynja í stjórn félagsins er fjórir karlar (57%) og þrjár konur (43%)
Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Skýrsla og áritun stjórnar og framkvæmdastjóra, frh.:
Yfirlýsing stjórnar og framkvæmdarstjóra
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og framkvæmdastjóra er ársreikningur félagsins í samræmi við lög um ársreikninga og er það álit stjórnar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu 31. desember 2017 og rekstrarafkomu félagsins og breytingu á handbæru fé á árinu 2017.
Stjórn og framkvæmdastjóri Klappa Grænna Lausna hf. hafa í dag rætt ársreikning félagsins fyrir árið 2017 og staðfest hann með undirritun sinni. Stjórn og framkvæmdastjóri leggja til við aðalfund að samþykkja ársreikninginn.
Reykjavik, 27. febrúar 2018.


Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Áritun óháðs endurskoðanda
Stjórn og hluthafar Klappa Grænna Lausna hf.
Áritun um endurskoðun samstæðuársreikningsins
Álit
Við höfum endurskoðað samstæðuársreikning Klappa Grænna Lausna hf. („samstæðan“) fyrir árið 2017. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning efnahagsreikning, sjóðstreymisyfirli, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu samstæðunnar 31. desember 2017 og afkomu samstæðunnar og breytingu á handbæru fé á árinu 2017, í samræmi við lög um ársreikninga.
Grundvöllur álits
Við endurskoðuðum í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er lýst frekar í kaflanum. Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins í árituninni. Við erum óháð samstæðunni í samræmi við síðareglur fyrir endurskoðendur á Íslandi og höfum uppfyllt aðrar síðferðisskyldur okkar í samræmi við þær reglur. Við teljum að við höfum aflað nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna til að byggja álit okkar á.
Aðrar upplýsingar í ársskýrslu
Stjórn og framkvæmdastjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru ársskýrsla að undanskildum samstæðuársreikningi og áritun okkar á hann. Álit okkar á samstæðuársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.
Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningnum ber okkur að lesa aðrar upplýsingar í ársskýrslu þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær séu í verulegu ósamræmi við samstæðuársreikninginn eða aðra þekkingu sem við höfum aflað okkur við endurskoðunina eða virðast verulega rangar. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Við höfum ekkert að upplýsa hvað þetta varðar.
Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á samstæðuársreikningnum
Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við lög um ársreikninga og fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram samstæðuársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð samstæðuársreikningsins ber stjórn og framkvæmdastjóra að leggja mat á rekstrarhæfi samstæðunnar og upplýsa, eftir því sem við á, um þætti er varða rekstrarhæfi og miða grundvöll reikningsskilanna við áframhaldandi rekstrarhæfi, nema þau ætli annað hvort að leysa samstæðuna upp eða hætta starfsemi hennar, eða hafa engan annan raunhæfan kost en að gera það.
Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins
Markmið okkar eru að öðlast hæfilega vissu um hvort samstæðuársreikningurinn í heild sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, og að gefa út áritun endurskoðanda sem inniheldur álit okkar. Í hæfilegri vissu felst áreiðanleiki en ekki trygging fyrir því að endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni alltaf leiða í ljós verulega annmarka ef þeir eru fyrir hendi. Annmarkar geta komið fram vegna sviksemi eða mistaka og eru taldir verulegir ef þeir einir og sér eða samanlagt gætu haft áhrif á efnahagslegar ákvarðanir sem notendur samstæðuársreikningsins taka á grundvelli hans.
Við endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla beitum við ávallt faglegri dörngreind og viðhöfum faglega gagnrýni. Að auki:
- Greinum við og metum hættu á verulegri skekkju í samstæðuársreikningnum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, skipuleggjum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, fölsun, að einhverju sé viljandi sleppt, villandi framsetningu eða að farið sé framhjá innra eftirliti.
Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Áritun óháðs endurskoðanda, frh.:
-
Öflum við skilnings á innra eftirliti, sem varðar endurskoðunina, til að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits samstæðunnar.
-
Metum við hvort reikningsskilaarðerðir og reikningshaldslegt mat stjórnenda og tengdar skýringar séu viðeigandi.
-
Ályktum við um hvort notkun stjórnar og framkvæmdastjóra á forsendu reikningsskilanna um rekstrarhæfi sé viðeigandi og metum, á grundvelli endurskoðunarinnar, hvort aðstæður séu til staðar sem valdið gætu verulegum vafa um rekstrarhæfi samstæðunnar. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur, í áritun okkar, að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum samstæðuársreikningsins eða, ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi, að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Samt sem áður geta atburðir eða aðstæður í framtlðinni gert samstæðuna órekstrarhæfa.
-
Metum við framsetningu, uppbyggingu og innihald samstæðuársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum, og hvort samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.
-
Öflum nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna varðandi fjárhagslegar upplýsingar eininga innan samstæðunnar til að geta gefið álit á samstæðuársreikningnum. Við erum ábyrg fyrir skipulagi, eftirliti og framkvæmd endurskoðunar samstæðunnar og berum óskipta ábyrgð á áritun okkar.
Við upplýsum stjórn meðal annars um áætlað umfang og tímasetningar endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.
Staðfesting vegna annarra ákvæða laga
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir þessum samstæðuársreikningi eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
Reykjavík, 27. febrúar 2018.
KPMG ehf.

Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Sykildýr
Lykiltölur
| 2017 | 2016 | |
|---|---|---|
| Rekstrarreikningur | ||
| Rekstartekjur | 210.495.528 | 123.285.867 |
| Hagnaður (tap) fyrir afskriftir, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (EBITDA) | ( 12.528.182) | ( 72.795.949) |
| Tap ársins | ( 48.177.523) | ( 63.472.915) |
| Tap í hlutfalli af rekstartekjum | ( 22,9% ) | ( 51,9% ) |
| Arðsemi eigin fjár | ( 22,0% ) | ( 72,6% ) |
| EBITDA - hlutfall | ( 6,0% ) | ( 59,0% ) |
| Arðsemi heildareigna | ( 15,3% ) | ( 44,7% ) |
| 31.12.2017 | 31.12.2016 | |
| Efnahagsreikningur | ||
| Heildareignir | 362.041.038 | 268.717.202 |
| Eigið fé hlutahafa móðurfélags | 259.444.036 | 174.541.559 |
| Skuldir samtals | 102.597.002 | 86.202.556 |
| Eigið fé og skuldir samtals | 362.041.038 | 260.744.115 |
| Veltufjárhlutfall - veltufjármunir/skammtímaskuldir | 3,9 | 11,4 |
| Eiginfjárhlutafall - eigið fé / heildarfjármagn | 71,7% | 65,0% |
| Innra virði hlutafjár - eigið fé / hlutafé | 2,2 | 1,7 |
Samstæðuárssreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Rekstrarreikningur ársins 2017
| Skýr. | 2017 | 2016 | |
|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | |||
| Sala | 155.708.553 | 70.119.814 | |
| Aðrar tekjur | 11 | 54.786.975 | 53.166.053 |
| 210.495.528 | 123.285.867 | ||
| Rekstrargjöld | |||
| Laun og launatengd gjöld | 12 | 109.636.978 | 127.645.438 |
| Annar rekstarkostnaður | 113.386.732 | 68.436.378 | |
| 223.023.710 | 196.081.816 | ||
| Hagnaður (tap) fyrir afskriftir, fjármunatekjur og | |||
| fjármagnsgjöld (EBITDA) | ( 12.528.182) | ( 72.795.949) | |
| Afskriftir | 14, 15 | ( 22.743.928) | ( 3.776.216) |
| Rekstrartap | ( 35.272.110) | ( 76.572.165) | |
| Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | |||
| Vaxtatekjur | 166.261 | 361.790 | |
| Vaxtagjöld | ( 12.663.428) | ( 6.624.679) | |
| Gengismunur | 94.975 | 0 | |
| ( 12.402.192) | ( 6.262.889) | ||
| Hlutdeild í afkomu dótturfélaga | 0 | 18.858.918 | |
| Tap fyrir tekjuskatt | ( 47.674.302) | ( 63.976.136) | |
| Tekjuskattur | 13 | ( 503.221) | 503.221 |
| Tap ársins | ( 48.177.523) | ( 63.472.915) | |
| Tap skiptist þannig: | |||
| Hluthafar móðurfélags | ( 48.177.523) | ( 37.297.618) | |
| Minnihuti í dótturfélagi | 0 | ( 26.175.297) | |
| Tap ársins | 20 | ( 48.177.523) | ( 63.472.915) |
Samstæðuárseikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Efnahagsreikningur 31. desember 2017
| Skýr. | 31.12.2017 | 31.12.2016 | |
|---|---|---|---|
| Eignir | |||
| Óefnislegar eignir | 14 | 208.764.720 | 21.006.112 |
| Rekstarfjármunir | 15 | 3.012.173 | 0 |
| Eignarhlutur í öðrum félögum | 16 | 5.070.237 | 5.070.237 |
| Skatteign | 17 | 0 | 503.221 |
| Fastafjármunir | 216.847.130 | 26.579.570 | |
| Vörubirgðir | 0 | 1.334.778 | |
| Viðskiptakröfur | 31.885.234 | 14.967.827 | |
| Krafa á tengda aðila | 22 | 0 | 606.652 |
| Aðrar skammtímakröfur | 18 | 43.209.922 | 145.131.431 |
| Handbært fé | 70.098.752 | 80.096.944 | |
| Veltufjármunir | 145.193.908 | 242.137.632 | |
| Eignir samtals | 362.041.038 | 268.717.202 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 19 | 116.500.000 | 100.500.000 |
| Yfirverðsreikningur hlutafjár | 228.567.473 | 111.487.473 | |
| Bundið eigið fé | 29.624.266 | 0 | |
| Ójafnað eigið fé | 20 | (115.247.703) | (37.445.914) |
| Eigið fé hluthafa móðurfélagsins | 259.444.036 | 174.541.559 | |
| Hlutdeild minnihluta | 16 | 0 | 7.973.087 |
| Eigið fé samtals | 259.444.036 | 182.514.646 | |
| Langtimaskuldir | |||
| Langtimalán | 21 | 15.000.000 | 15.000.000 |
| Langtimalán við tengda aðila | 22 | 50.000.000 | 50.000.000 |
| Langtimaskuldir | 65.000.000 | 65.000.000 | |
| Skammtímaskuldir | |||
| Viðskiptaskuldir | 9.422.443 | 6.104.045 | |
| Skuldir við tengda aðila | 22 | 1.373.116 | 299.341 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 26.801.443 | 14.799.170 | |
| Skammtímaskuldir | 37.597.002 | 21.202.556 | |
| Skuldir samtals | 102.597.002 | 86.202.556 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 362.041.038 | 268.717.202 |
Samstæðuárreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Sjóðstreymisyfirlit ársins 2017
| Skýr. | 2017 | 2016 | |
|---|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | |||
| Tap ársins | 20 | ( 48.177.523) | ( 63.472.915) |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||
| Afskriftir | 14,15 | 22.743.928 | 3.776.216 |
| Hiutdeild í rekstri dötturfélaga | 0 | ( 18.858.918) | |
| Tekjuskattur | 13 | 503.221 | ( 503.221) |
| Veltufé til rekstrar | ( 24.930.374) | ( 79.058.838) | |
| Breytingar rekstrartengdra eigna og skulda: | |||
| Vörubirgðir, læk kun (hæk kun) | 1.334.778 | ( 160.357) | |
| Skammtímakröfur, hæk kun, (læk kun) | 85.004.102 | ( 23.759.225) | |
| Skammtímaskuldir, hæk kun | 15.320.671 | 15.855.053 | |
| Breytingar rekstrart. eigna og skulda | 101.659.551 | ( 8.064.529) | |
| Handbært fé frá (til) rekstrar | 76.729.177 | ( 87.123.367) | |
| Fjárfestingarhreyfingar | |||
| Fjárfestingar í óefnislegum eignum | 14 | ( 29.623.676) | ( 15.800.000) |
| Fjárfestingar í rekstrarfjármunum | 15 | ( 3.346.859) | 0 |
| Fjárfest í eignarhiutum í dötturfélögum | 14 | ( 188.517.261) | ( 4.969.124) |
| Fjárfestingarhreyfingar | ( 221.487.796) | ( 20.769.124) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||
| Innborgað hlutafé | 20 | 133.080.000 | 98.987.473 |
| Tekin ný langtímalán | 0 | 15.000.000 | |
| Tengdir aðilar breyting | 1.680.427 | 45.171.683 | |
| Fjármögnunarhreyfingar | 134.760.427 | 159.159.156 | |
| (Læk kun), hæk kun á handbæru fé á árinu | ( 9.998.192) | 51.266.665 | |
| Handbært fé í ársbyrjun | 80.096.944 | 28.830.279 | |
| Handbært fé í árslok | 70.098.752 | 80.096.944 | |
| Fjárfestinga- og fjármögnunarhreyfingar sem hreyfa ekki handbært fé | |||
| Hlutafjáruknning | 0 | 112.500.000 | |
| Tengdir aðilar, breyting | 0 | ( 112.500.000) |
Samstæðuárseikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Skýringar
Reikningsskilaaðferðir
1. Grundvöllur reikningsskila
Ársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga. Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum og byggir á kostnaðarverðsreikningsskilum. Ársreikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður.
Mat og ákvarðanir
Við gerð ársreiknings þurfa stjórnendur, í samræmi við lög um ársreikninga, að taka ákvarðanir, meta og draga ályktanir sem hafa áhrif á eignir og skuldir á reikningsskiladegi, svo og upplýsingar í skýringum. Við mat og ályktanir er byggt á reynslu og ýmsum öðrum þáttum sem taldir eru viðeigandi og myndu grundvöll þeirra ákvarðana sem teknar eru um bókfært verð eigna og skulda sem ekki liggur fyrir með öðrum hætti.
2. Innlausn tekna
Tekjur af sölu á vörum eru færðar í rekstrarreikning þegar eignarhald flyst til kaupanda. Leigutekjur af fastafjármunum eru færðar línulega í rekstrarreikning á leigutímanum. Afslættir sem eru veittir eru færðir með samna hætti. Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning á því tímabili sem þjónustan er veitt. Tekjur eru ekki færðar ef veruleg óvissa er um innheimtu þeirra. Tekjur af verkum í vinnslu eru færðar miðað við verkstöðu þeirra í árslok. Tekjur eru ekki færðar ef veruleg óvissa er um innheimtu þeirra, tengdan kostnað eða að vörunni verði mögulega skilað.
3. Erlendir gjaldmiðlar
Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi í lok reikningsárs. Gengismunur sem myndast er færður í rekstrarreikning.
4. Óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir eru færðar til eignar á kostnaðarverði að frádreginni niðurfærslu. Viðskiptavild sem myndast annars vegar við kaup á eignarhlutum í dóttur- og hlutdeildarfélögum svarar til mismunar á upphaflegu kaupverði eignarhlutans og hlutdeild í hreinni eign félags á kaupdegi hins vegar og með kaupum á rekstri. Hrein eign innifelur bókfært eigið fé félags, ef við á endurmat bókfærðra eigna og skulda og virði eigna og skulda sem ekki eru bókfærðar í reikningsskilum félagsins. Viðskiptavild er færð á kostnaðarverði að frádreginni niðurfærslu. Viðskiptavild er færð niður á 10 árum. Aðrar óefnislegar eignir félagsins eru hugbúnaður sem er færður niður á 5 árum.
5. Rekstrarfjármunir
Rekstrarfjármunir eru færðir til eignar á kostnaðarverði að frádregnum afskriftum og virðisrýrnun. Afskriftir eru reiknaðar sem fastur hundraðshluti miðað við áætlaðan nýtingartíma rekstrarfjármuna. Rekstarfjármunir eru færðir niður á 5 árum.
6. Eignarhlutir í öðrum félögum
Fárfestingar samstæðunnar í hlutabréfum eru bókfærðar á markaðsverði þar sem það liggur fyrir annars kostnaðarverði eða endurmetnu kostnaðarverði.
7. Vörubirgðir
Birgðir samstæðunnar samanstanda af vörum til endursölu. Birgðir eru metnar á kostnaðarverði að teknu tilliti til gallaðra og úreltra vara.
8. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur eru færðar niður um til að mæta almennri áhættu sem fylgir kröfueign félagsins, en hér er ekki um endanlega afskrift að ræða. Annars vegar er um að ræða niðurfærslu vegna krafna sem sérstaklega hafa verið metnar í tapshættu og hins vegar niðurfærslu til að mæta almennri áhættu. Niðurfærslan er dregin frá viðskiptakröfum í efnahagsreikningi.
Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Skýringar, frh.:
9. Handbært fé
Sjóður og bankainnstæður teljast til handbærs fjár.
10. Skatteign
Skatteign er reiknuð og færð í ársreikninginn. Útreikningur hennar byggist á mismun efnahagsliða samkvæmt skattuppgjöri annars vegar og ársreikningi félagsins hins vegar. Mismunur sem þannig kemur fram stafar af því að álagning tekjuskatts er miðuð við aðrar forsendur en reikningsskil félagsins og er þar í meginatriðum um að ræða tímamismun vegna þess að gjöld, einkum afskriftir eru að jafnaði færð fyrr í skattuppgjöri en reikningsskilunum.
Reiknuð skatteign er einungis færð að því marki sem líklegt er talið að skattskyldur hagnaður verði til ráðstöfunar í framtlðinni, sem unnt verður að nýta eignina á móti. Skatteign er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er að hún komi ekki til með að nýtast.
11. Aðrar tekjur
| Aðrar tekjur greinast þannig | 2017 | 2016 |
|---|---|---|
| Skattalvilnun Rannís | 37.876.442 | 30.508.646 |
| Mótteknir styrkir | 16.910.533 | 22.657.407 |
| 54.786.975 | 53.166.053 |
12. Laun og launatengd gjöld
Laun og launatengd gjöld greinast þannig:
| Laun | 116.675.055 | 98.124.769 |
|---|---|---|
| Áfallið orlof breyting | 0 | 9.431.789 |
| Launatengd gjöld | 22.586.189 | 20.088.880 |
| Eignfærð laun | ( 29.624.266) | 0 |
| Laun og launatengd gjöld samtals | 109.636.978 | 127.645.438 |
| Meðalfjöldi ársverka | 12 | 11 |
Laun til framkvæmdastjóra nam 12,5 millj. kr. engin laun voru greidd fyrir stjórnarsetu á árinu 2017.
13. Tekjuskattur
Tekjufærður tekjuskattur í rekstrarreikningi greinist þannig:
| Virkt skatthluttall | 2017 | 2016 | ||
|---|---|---|---|---|
| Tap fyrir tekjuskatt | ( 47.674.302) | ( 63.976.136) | ||
| Tekjuskattur miðað við gildandi skatthluttall | ( 20,0% ) | 9.534.860 | ( 20,0% ) | 12.795.227 |
| Óskattskyldar tekjur | 15,9% | ( 7.575.288) | 9,5% | ( 6.101.729) |
| Ófrádráttarbær kostnaður | ( 0,0% ) | 3.280 | 11,9% | ( 7.601.672) |
| Niðurfæslá skatteignar | 5,2% | ( 2.466.073) | ( 2,2% ) | 1.411.395 |
| Virkur tekjuskattur | 1,1% | ( 503.221) | ( 0,8% ) | 503.221 |
Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Skýringar, frh.:
14. Óefnislegar eignir
| Óefnislegar eignir greinast þannig: | Viðskiptavild | Hugbúnaður | Samtals |
|---|---|---|---|
| Heildarverð 1.1.2017 | 6.768.828 | 18.130.000 | 24.898.828 |
| Yfirtekið við samruna | 180.544.174 | 0 | 180.544.174 |
| Eignfært á árinu | 0 | 29.623.676 | 29.623.676 |
| Heildarverð 31.12.2017 | 187.313.002 | 47.753.676 | 235.066.678 |
| Niðurfært 1.1.2017 | 676.883 | 3.215.833 | 3.892.716 |
| Niðurfært á árinu | 18.731.300 | 3.677.942 | 22.409.242 |
| Niðurfært 31.12.2017 | 19.408.183 | 6.893.775 | 26.301.958 |
| Bókfært verð 1.1.2017 | 7.445.711 | 14.914.167 | 21.006.112 |
| Bókfært verð 31.12.2017 | 167.904.819 | 40.859.901 | 208.764.720 |
| Niðurfærsluhlutfall | 10,0% | 20,0% |
Í upphafi árs fjárfesti félagið í 43,8% eignarhlut í ARK Technology ehf. En fyrir átti félagið 66,2% eignarhlut, voru félögin sameinuð í kjólfarið og miðast samruninn við 1. janúar 2017. Heildarkaupverð eignarhlutans nam 188,5 millj. kr. Við samrunan myndaðist viðskiptavild að fjárhæð 180,5 millj. kr. sem svarar til mismunar á upphaffegu kaupverði eignarhlutans og hlutdeild í hreinni eign félags á kaupdegi. Hrein eign innifelur bókfært eigið fé félags, ef við á endurmat bókfærðra eigna og skulda og virði eigna og skulda sem ekki eru bókfærðar í reikningsskilum félagsins.
Á árinu gerði móðurfélagið samning um kaup á meginhluta af rekstri, aðstöðu og tækjabúnað dótturfélagins síns DataDrive ehf. nam kaupverðið 20 millj. kr.
Siðustu árin hefur samstæðan unnið að þróun á hugbúnaðar og hefur stærsti hluti kostnaður vegna þróunarverkefna sem samanstendur af launakostnaði og öðrum rekstarkostnaði hefur verið gjaldfærður í rekstarreikningi. til samræmis hafa styrkir verið tekjufærðir á meðal annarra tekna í rekstrarreikning. Á árinu nemur eignfærður þróunarkostnaður hugbúnaðar 29,6 millj. kr.
15. Rekstrarfjármunir
| Rekstrarfjármunir greinast þannig: | Tölvubúnaður |
|---|---|
| Keypt á árinu | 3.346.859 |
| Heildarverð 31.12.2017 | 3.346.859 |
| Afskrifað á árinu | 334.686 |
| Niðurfært 31.12.2017 | 334.686 |
| Bókfært verð 31.12.2017 | 3.012.173 |
| Afskriftarhlutfall | 20,0% |
16. Eignarhlutur í öðrum félögum
| Eignarhlutir í dótturfélögum greinast þannig: | Bókfært verð |
|---|---|
| Ark Technology ltd., Bretland | 5.070.237 |
| 5.070.237 |
Í árslok á félagið 100% eignarhlut í breska félaginu Ark Technology ltd. Eignarhluturinn er færður á upprunalegu kaupverði 5,1 millj. kr. ekki hefur verið færð hlutdeild í rekstri dótturfélagsins þar sem rekstur félagins hefur verið överulegur.
Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Skýringar, frh.:
- Skatteign
| Skatteign félagsins samkvæmt efnahagsreikningi greinist pannig: | ||
|---|---|---|
| 31.12.2017 | 31.12.2016 | |
| Skatteign 1.1. | 503.221 | 503.221 |
| Tekjuskattur í rekstrarreikningi | ( 503.221) | 0 |
| Skatteign 31.12.2017 | 0 | 503.221 |
| Skatteign skiptist pannig: | ||
| Óefnislegar eignir | 3.290.883 | ( 76.617) |
| Rekstrarfjármunir | ( 80.000) | 0 |
| Yfirfæranlegt skattalegt tap | 59.769.644 | 55.290.978 |
| Skatteign samtals | 62.980.527 | 55.214.361 |
| Niðurfærsla vegna óvissu um nýtingu á yfirfæranlegu tapi | ( 62.980.527) | ( 54.711.140) |
| Skatteign samtals skv. efnahagsreikningi | 0 | 503.221 |
Í lok árs 2017 nam yfirfæranlegt tap samstæðunnar 298,8 millj. kr. Yfirfæranlegt skattalegt tap er nýtanlegt á móti skattskyldum tekjum í tlu ár frá því að það fellur til. Skattalegt tap félagsins greinst pannig í árslok 2017:
| Samstæða | |
|---|---|
| Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2011, nýtanlegt til ársins 2021 | 1.579.359 |
| Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2012, nýtanlegt til ársins 2022 | 2.779.813 |
| Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2013, nýtanlegt til ársins 2023 | 4.181.352 |
| Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2014, nýtanlegt til ársins 2024 | 46.083.582 |
| Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2015, nýtanlegt til ársins 2025 | 67.457.462 |
| Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2016, nýtanlegt til ársins 2026 | 113.667.512 |
| Yfirfæranlegt skattalegt tap ársins 2017, nýtanlegt til ársins 2027 | 63.099.142 |
| Samtals | 298.848.222 |
- Aðrar skammtímakrófur
| Aðrar skammtímakrófur greinast pannig: | ||
|---|---|---|
| 31.12.2017 | 31.12.2016 | |
| Skattívinun Rannís | 37.619.238 | 30.498.563 |
| Ógreitt hlutafé | 0 | 112.500.000 |
| Aðrar skammtímakrófur | 5.590.684 | 2.132.868 |
| Aðrar skammtímakrófur samtals | 43.209.922 | 145.131.431 |
Áætluð endurgreiðsla að fjárhæð 37,6 millj. kr. er vegna skattívinunar Rannís sem tilheyrir árinu 2017 og er áætlað að verði greidd í október 2018
- Eigið fé
Hlutafé félagsins í árslok er 116,5 millj. kr. að nafnverði. Á árinu var hlutafé aukið að fjárhæð 16,0 millj. kr. að nafnverði. Heildarfjárhæð nýs eigin fjár nam á árinu 133,1 millj. kr.
Í árslok skiptast hlutir félagsins í A og B hluti. Í A hlutaflokki eru útgefnir 50,0 millj. hlutir, hver hlutur í A flokki er að fjárhæð ein króna að nafnverði og eitt atkvæði fylgir hverri krónu í hlutafjár. Í B hlutaflokki eru útgefnir 66,5 millj. hlutir, hlutir í B flokki hafa ekki atkvæðisrétt en að öðru leyti eru hafa flokkarnir sömu réttindi.
Samstæðuárseikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Skýringar, frh.:
| 20. Yfirlit um eiginfjárreikninga: | |||||
|---|---|---|---|---|---|
| Hlutafé | Yfirverðs-reikningur | Bundið eigið fé | Ójafnað eigið fé | Samtals | |
| Eigið fé 1.1.2017 | 100.500.000 | 111.487.473 | 0 | ( 37.445.914) | 174.541.559 |
| Nýtt hlutafé | 16.000.000 | 117.080.000 | 133.080.000 | ||
| Þróunarkostnaður | 29.624.266 | ( 29.624.266) | |||
| Tap ársins | ( 48.177.523) | ( 48.177.523) | |||
| Eigið fé 31.12.2017 | 116.500.000 | 228.567.473 | 29.624.266 | ( 115.247.703) | 259.444.036 |
Á hluthafafundi félagins þann 22. nóvember 2016, var samþykkt heimild til stjórnar um að hækka hlutafé félagsins vegna útgáfu kaupréttta til starfsmanna félagsins. Samkvæmt samþykktinni var hækkunin að fjárhæð allt að 240.000 kr. og í B-flokki hlutabréfa. Með útgáfu jöfnunarhlutabréfa hækkaði þessi heimild í 6.000.000 kr. Á stjórnarfundi þann 23. nóvember 2016, var kaupréttaráætlun fyrir félagið samþykkt af stjórn félagsins.
Þann 2. desember 2016 var ríkisskattstjóra sent erindi með beiðni um staðfestingu á kaupréttaráætlun félagsins, í samræmi við 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Með bréfi ríkisskattstjóra, dags. 7. apríl 2017 var kaupréttarætlun félagsins staðfest.
Félagið hefur í lok ársins gefið út kaupréttarsamninga til starfmanna að nafnverði 3.640.000 kr. Samkvæmt samningum þá ávinnst kauprétturinn í jöfnum hlutföllum á 4 árum. Samningur fellur úr gildi átta árum frá útgáfudegi. Um kaupréttaráætlun og kaupréttarsamninga félagsins gilda almennar reglur um slíka samninga sem fást viðurkenndir af Ríkisskattstjóra, meðal annars að samningar bjóðast öllum starfsmönnum og hámark innlausnar er 600.000 kr. á ári.
Samkvæmt lögum nr. 73/2016 um ársreikninga ber félögum að færa þá fjárhæð sem nemur eignfærðum þróunarkostnaði á bundinn reikning á meðal eigin fjár.
21. Langtimaskuldir
Yfirlit um langtímaskuldir:
| 2017 | 2016 | |
|---|---|---|
| Óverðtryggð lán í íslenskum krónum, vextir 7,4% | 15.000.000 | 15.000.000 |
| Langtímaskuldir samtals þ.m.t. næsta árs afborganir | 15.000.000 | 15.000.000 |
| Næsta árs afborganir | 0 | 0 |
| Langtímaskuldir samkvæmt efnahagsreikningi samtals | 15.000.000 | 15.000.000 |
Langtímalán félagins mun allt koma til greiðslu með einni afborgun á árinu 2022.
Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017
Skýringar, frh.:
22. Tengdir aðilar
Stjórnarmenn, hluthafar, dótturfélög, félög í meirihlutaeigu hluthafa og stjórnendur teljast vera tengdir aðilar félagsins. Langtímaskuldir og skammtímakröfur móðurfélagins við tengda aðila sundurliðast þannig í lok ársins:
| Krófur | Skuldir | |
|---|---|---|
| Klappir ehf. (tengdur aðili eins hluthafa) | 0 | 50.000.000 |
| Aðrir tengdir aðilar | 0 | 1.373.116 |
| 0 | 1.373.116 |
Langtímalán félagins við tengda mun allt koma til greiðslu með einni afborgun á árinu 2019.
Á meðal vaxtagjalda eru gjaldfærðar 10,6 millj. kr. til tengdra aðila sömuleiðis námu gjaldfærðar aðrar þóknanir til tengdra aðila 6,5 millj. kr.
23. Önnur mál
Á árunum 2016–2017 vann samstæðan að rannsókn og þróun á hugbúnaði. Stærsti hluti verkefnisins, sem samanstendur að mestu leyti af launakostnaði, hefur verið gjaldfærður í rekstrareikningi. Samstæðan fékk á árinu 2017 staðfestingu frá Rannis þess efnis að rannsóknar og þróunarverkefnið hafi verið samþykkt á grundveill laga nr. 152/2009. Með staðfestingunni öðlaðist félagið rétt á sérstakri endurgreiðslu byggt á beinum kostnaði við verkefnið. Samstæðan mun sækja um endurgreiðsluna í tengslum við skattskil félagins vegna ársins 2017. Áætluð endurgreiðsla kostnaðar vegna verkefnanna á árinu 2017 nemur 37,9 millj. kr. og hefur verið tekjufærð meðal annarra tekna í rekstarreikning. Sömu fjárhæðir er færðar til eignar meðal annarra skammtímakrafna í efnahagsreikningi 31. desember 2017.
Samstæðuársreikningur Klappir Grænar Lausnir hf. 2017