Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. AGM Information 2025

Mar 19, 2025

8457_rns_2025-03-19_0215f55a-6d6d-4dfa-9cd2-f195470aba58.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Klappir

Ályktunartillögur stjórnar Klappa Grænna Lausna hf.

fyrir aðalfund félagsins þann 9. apríl 2025.

Dagskrárliður 3

Tillaga um staðfestingu á ársreikningi félagsins

Stjórn félagsins leggur til að ársreikningur fyrir árið 2024 verði samþykktur. Ársreikningur félagsins vegna ársins 2024 er aðgengilegur á vefsíðu Klappa Grænna Lausna. Ársreikningurinn verður kynntur af forstjóra félagsins, Jóni Ágústi Þorsteinssyni.

Dagskrárliður 4

Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig skuli fara með hagnað ársins 2024

Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að ekki verði greiddur arður til hluthafa vegna ársins 2024 en að hagnaður ársins 2024 verði lagður við eigið fé félagsins.

Dagskrárliður 6

Kosning endurskoðenda félagsins

Stjórn félagsins leggur til að KPMG ehf., og Jón Arnar Óskarsson endurskoðandi sem þar starfar, verði kjörö endurskoðunarfirma félagsins.

Dagskrárliður 7

Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna

Lagt er til að stjórnarlaun verði óbreytt eða sem nemur kr. 50.000 fyrir hvern setinn stjórnarfund.

Dagskrárliður 8

Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins

Stjórn félagsins leggur til að framlögð starfskjarastefna verði samþykkt óbreytt. Starfskjarastefnu félagsins er aðgengileg á vefsíðu félagsins.

Klappir Green Solutions
Hlíðasmára 3, 201 Kópavogi