Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. AGM Information 2024

Apr 23, 2024

8457_rns_2024-04-23_638704e9-5ea1-4f4e-b0c7-4c6e5b43a9e8.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Klappir

Ályktunartillögur stjórnar Klappa Grænna Lausna hf.

fyrir aðalfund félagsins þann 14. maí 2024.

Dagskrárliður 3

Tillaga um staðfestingu á ársreikningi félagsins

Stjórn félagsins leggur til að ársreikningur fyrir árið 2023 verði samþykktur. Ársreikningur félagsins vegna ársins 2023 er aðgengilegur á vefsíðu Klappa Grænna Lausna hf. www.klappir.com/investors. Ársreikningurinn verður kynntur af forstjóra félagsins, Jóni Ágústi Þorsteinssyni.

Dagskrárliður 4

Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig skuli fara með hagnað eða tap ársins 2023

Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að ekki verði greiddur arður til hluthafa og að tap félagsins vegna rekstrarársins 2023 verði fært til lækkunar á eigirn fé félagsins.

Dagskrárliður 6

Kosning endurskoðenda félagsins

Stjórn félagsins leggur til að KPMG ehf, og Jón Arnar Óskarsson endurskoðandi sem þar starfar, verði kjörir endurskoðunarfirma félagsins.

Dagskrárliður 7

Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna

Lagt er til að stjórnarlaun verði óbreytt eða sem nemur kr. 50.000 fyrir hvern setinn stjórnarfund.

Dagskrárliður 8

Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins

Stjórn félagsins leggur til að framlögð starfskjarastefna verði samþykkt óbreytt. Stjórnarformaður félagsins, Ágúst Einarsson, skýrir frá framkvæmd áður samþykktrar starfskjarastefnu.

Klappir Green Solutions
Hlíðasmára 3, 201 Kópavogi